Ferill 985. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
150. löggjafarþing 2019–2020.
Þingskjal 2050 — 985. mál.
Fyrirspurn
til sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra um rannsóknir á karfa.
Frá Ingu Sæland.
1. Hversu miklum fjármunum varði Hafrannsóknastofnun árlega til karfarannsókna á árunum 2015–2020?
2. Hvaða verkefni sem lúta að rannsóknum á karfa hafa verið unnin á þessu árabili og hve miklir fjármunir voru veittir í hvert verkefni?
3. Hversu margar ritrýndar greinar um karfa eftir sérfræðinga Hafrannsóknastofnunar hafa birst í alþjóðlegum vísindaritum á framangreindu árabili, hver er titill greinanna og hvar birtust þær?
Skriflegt svar óskast.