Aðrar útgáfur af skjalinu:
PDF
Word Perfect.
Þingskjal 2096, 150. löggjafarþing 993. mál: pakkaferðir og samtengd ferðatilhögun (framlenging).
Lög nr. 111 10. september 2020.
Þingskjal 2096, 150. löggjafarþing 993. mál: pakkaferðir og samtengd ferðatilhögun (framlenging).
Lög nr. 111 10. september 2020.
Lög um breytingu á lögum um pakkaferðir og samtengda ferðatilhögun, nr. 95/2018, með síðari breytingum (framlenging).
1. gr.
Eftirfarandi breytingar verða á ákvæði til bráðabirgða í lögunum:- Í stað dagsetningarinnar „31. júlí 2020“ í 1. málsl. 2. mgr. kemur: 30. september 2020.
- Lokamálsliður 2. mgr. fellur brott.
- Í stað dagsetningarinnar „1. september 2020“ í 1. málsl. 10. mgr. kemur: 1. nóvember 2020.
2. gr.
Lög þessi öðlast þegar gildi.Samþykkt á Alþingi 3. september 2020.