Ferill 1004. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


150. löggjafarþing 2019–2020.
Þingskjal 2111  —  1004. mál.




Fyrirspurn


til heilbrigðisráðherra um fjölda og ríkisfang kórónuveirusmitaðra og ástæðu komu þeirra til landsins.

Frá Gunnari Braga Sveinssyni.


     1.      Hver er skipting þeirra sem greinst hafa með innanlandssmit af kórónuveiru eftir ríkisfangi?
     2.      Hver er skipting þeirra sem greinst hafa með smit á landamærum eftir ríkisfangi?
     3.      Hvernig skiptast þeir sem greinst hafa með smit á landamærum eftir ástæðu fyrir komu til landsins:
                  a.      Íslendingar að flytja heim,
                  b.      Íslendingar að koma úr ferðalagi,
                  c.      erlendir ferðamenn,
                  d.      erlendir ríkisborgarar í atvinnuleit,
                  e.      erlendir ríkisborgarar að sækja um hæli eða alþjóðlega vernd,
                  f.      erlendir ríkisborgarar sem hafa viðkomu á Íslandi,
                  g.      erlendir ríkisborgarar með dvalarleyfi á Íslandi,
                  h.      farandverkamenn,
                  i.      námsmenn,
                  j.      önnur ástæða?
     4.      Hvernig skiptast þeir sem greinst hafa með smit á landamærum eftir ríkisfangi í flokki c–j og hvernig dreifast smitin á milli mánaða?
     5.      Hver er skipting þeirra sem eru í sóttkví heima fyrir og þeirra sem eru í sóttkví í húsnæði á vegum ríkisins (sóttvarnahúsum) eftir ríkisfangi?


Skriflegt svar óskast.