Ferill 962. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


150. löggjafarþing 2019–2020.
Þingskjal 2121  —  962. mál.




Svar


dómsmálaráðherra við fyrirspurn frá Smára McCarthy um þyrlukost Landhelgisgæslunnar.


     1.      Hvernig var ákvörðun tekin um að nota H225-þyrlur hjá Landhelgisgæslunni?
    Landhelgisgæslan var með á leigu tvær þyrlur, TF-SYN og TF-GNA, af tegundinni AS332L frá Knut Axel Ugland Holding AS. Leigusamningar um þær voru gerðir í kjölfar útboðs sem framkvæmt var af Ríkiskaupum og tóku leigusamningar gildi frá og með 19. janúar 2012 (TF-SYN) og 1. maí 2014 (TF-GNA). Á vormánuðum 2018 hafði leigusali samband og bauð Landhelgisgæslunni að skipta vélunum út fyrir tvær vélar af gerðinni H225, á óbreyttu leiguverði ásamt því að þjálfun á nýja gerð þyrlna yrði útveguð endurgjaldslaust fyrir bæði flugmenn og flugvirkja. Stjórnendur og starfsmenn flugdeildar Landhelgisgæslunnar fóru yfir málið og töldu að þyrlurnar væru nýrri, öflugri og tæknilega fullkomnari en þær sem fyrir voru. Airbus, framleiðandi vélanna, hafði brugðist við galla í gírkassa með endurbótum auk þess sem viðhaldskröfur, tengdar gírkassanum, voru auknar verulega. Eftir endurbæturnar uppfylltu vélarnar strangar kröfur sem flugmálayfirvöld í bæði Evrópu og Bandaríkjunum gera. Í kjölfarið var takmörkunum, sem settar voru á í kjölfar slyss sem varð í Noregi í október 2016, aflétt. Í samráði við dómsmálaráðuneytið var ákveðið að þiggja boðið.

     2.      Var farið í útboð á Evrópska efnahagssvæðinu? Ef svo er, hvernig fór það útboð fram og hvernig var staðið að gerð útboðslýsingar?
    Í gildi voru leigusamningar sem gerðir voru í kjölfar útboðs og útskipti á þyrlunum fóru fram innan þeirra.

     3.      Hvaða fyrirtæki hafa komið til greina sem leigusalar eða seljendur við hugsanleg kaup eða leigu á þyrlum hjá Landhelgisgæslunni á undanförnum áratug?
    Á undanförnum áratug hefur einungis farið fram eitt útboð varðandi leigu á þyrlum. Undirbúningur á útboði vegna kaupa á þremur nýjum þyrlum var langt á veg kominn þegar efnahagsaðstæður á þessu ári urðu þess valdandi að fresta þurfti verkefninu. Á grundvelli áðurnefnds útboðs sem núgildandi leigusamningar byggjast á voru leigusamningar núverandi þyrlna framlengdir og óskað eftir að leigusali útvegaði þriðju þyrlu sömu tegundar (sem sömuleiðis byggðist á umræddu útboði). Landhelgisgæslan setur fram kröfur um drægni, burðargetu, veðurþol og fleiri þætti sem máli skipta með hliðsjón af björgunarsvæði stofnunarinnar og verkefnum. Allar þyrlutegundir sem uppfylla þau skilyrði koma til greina í kjölfar útboðs.

     4.      Hvernig fór áhættumat fram á H225-þyrlum samanborið við aðra valkosti, með hliðsjón af þekktum gírkassavandamálum tegundarinnar?
    Flugmálayfirvöld í Evrópu og Bandaríkjunum hafa samþykkt endurbætur og auknar viðhaldskröfur sem gerðar eru. Vélarnar uppfylla því strangar kröfur flugmálayfirvalda og því var takmörkunum aflétt. Þær endurbætur sem um ræðir höfðu að sjálfsögðu verið gerðar á umræddum leiguvélum, TF-EIR og TF-GRO.

     5.      Hversu mikill tími hefur farið í viðhald á H225-þyrlum Landhelgisgæslunnar samanborið við viðhaldstíma á öðrum tegundum þyrla sem Landhelgisgæslan hefur haft til umráða? Hversu stór hluti viðhaldstímans í hvoru tilfellinu fyrir sig hefur verið vegna vandamála tengdum gírkassa eða málmögnum í olíu?
    Margir ólíkir þættir hafa áhrif á viðhaldsþörf véla og því um flókinn samanburð að ræða. Nákvæmar tölur um slíkt liggja ekki fyrir enda væri um ómarktækan samanburð að ræða þar sem nýju vélarnar hafa aðeins verið í rekstri í skamman tíma. Á meðan þekking og reynsla á viðhaldi þeirra er að byggjast upp, er eðlilegt að meiri tíma sé varið til þess í upphafi. Viðhald gírkassa nýju vélanna hefur verið nokkuð sambærilegt og var vegna eldri vélanna.