Ferill 978. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


150. löggjafarþing 2019–2020.
Þingskjal 2129  —  978. mál.




Svar


sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra við fyrirspurn frá Ingu Sæland um álaveiðar.


    Leitað var upplýsinga hjá Fiskistofu og Hafrannsóknastofnun og byggjast svörin á þeim upplýsingum.

     1.      Hversu mörg leyfi hafa verið gefin út til veiða á ál hér á landi í samræmi við reglugerð nr. 408/2019, um bann við álaveiðum, frá 2019?
    Eitt leyfi til álaveiða var gefið út fyrir árið 2019.

     2.      Hafi leyfi verið gefin út 2019 og 2020, hverjir fengu þau leyfi, á hvaða landsvæðum, með hvaða veiðarfærum og hvaða magn var áætlað að veiða?
    Ekkert leyfi gefið út 2020. Eitt leyfi var gefið út 2019 (sbr. svar við 1. tölul.). Leyfishafi: Sigurður B. Eymundsson. Landsvæði: Suðausturland. Veiðiaðferð: Heimild til veiði í álagildru og á stöng. Áætluð veiði: 10 til 20 álar.

     3.      Hver var uppgefin veiði umsækjenda síðustu fimm árin samkvæmt þessum umsóknum hafi þær þá borist stjórnvöldum?
    Ekki bárust upplýsingar um veiði fimm árum áður, en veiði leyfishafa var tveir álar árið 2019.

     4.      Voru sett skilyrði við hugsanleg leyfi samkvæmt ákvæðum reglugerðar nr. 408/2019?
    Vísað er til reglugerðarinnar í útgefnu leyfi, en þar er kveðið á um að afli skuli skráður og upplýsingar um afla sendar Fiskistofu.

     5.      Hver var árleg skráð veiði á ál hér á landi á árunum 2000–2020?
    Fjöldi veiddra ála sem skráðir eru í gagnagrunn Hafrannsóknastofnunar og Fiskistofu á árunum 2015–2020:
Ár Fjöldi ála
2015 4
2016 2
2017 3
2018 0
2019 6
2020 Ekki komið

     6.      Hafa farið fram einhverjar rannsóknir á ál hér á landi eftir að lögum um lax- og silungsveiði var breytt á 148. löggjafarþingi og ráðherra heimilað að banna álaveiðar og þá hvaða?
    Hafrannsóknastofnun hefur ekki gert rannsóknir á ál frá því að lögum um lax- og silungsveiði var breytt á 148. löggjafarþingi og er ekki kunnugt um aðra aðila sem hafa stundað rannsóknir á ál á síðustu árum.
    Talið er að Evrópuállinn (Anguilla anguilla) sé einn stofn og að stofnstærð hans sé nú um 10% af þeirri stofnstærð sem var á sjötta áratug síðustu aldar. Áll hefur verið á lista Convention on International Trade in Endangered Species (CITES) frá 2009 yfir tegundir í útrýmingarhættu og fylgir því bann við inn- og útflutningi af efnahagssvæðinu auk þess sem upprunavottorða er krafist varðandi sölu afurða.
    Með setningu reglugerðar um friðun áls með undanþágum fyrir veiðiréttarhafa er nýting og ábyrgð á höndum þeirra. Væntanlega fást frekari upplýsingar um ástundun, afla og útbreiðslu ála sem síðan getur orðið mikilvæg undirstaða þess að hægt sé að rannsaka vistfræði og veiðiþol stofnsins enn frekar. Með reglugerðinni er komið til móts við tilmæli alþjóðastofnana til verndar álastofnum á meðan það ástand varir sem nú er varðandi minnkandi stofnstærð og veiðiþol í anda varúðarreglu og í samræmi við ábyrga stjórn fiskveiða.