Ferill 988. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


150. löggjafarþing 2019–2020.
Þingskjal 2137  —  988. mál.




Svar


sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra við fyrirspurn frá Ingu Sæland um rannsóknir á humri.


    Leitað var upplýsinga hjá Hafrannsóknastofnun og byggjast svörin á þeim upplýsingum.

     1.      Hversu miklum fjármunum varði Hafrannsóknastofnun árlega til humarrannsókna á árunum 2015–2020?
    Rannsóknir Hafrannsóknastofnunar beinast æ meira að vistkerfum fremur en einstökum tegundum og eru rannsóknirnar skipulagðar á þann veg. Því er nokkrum annmörkum háð að svara spurningum um kostnað vegna rannsókna á einstakri tegund. Þá eru rannsóknaleiðangrar oft margþættir þar sem ýmsum ólíkum rannsóknum er sinnt með það að markmiði að tryggja sem besta notkun þess fjármagns sem stofnun hefur yfir að ráða.
    Sem dæmi fara stofnmælingar botnfiska fram í þremur leiðöngrum ásamt rannsóknum á öðrum þáttum vistkerfisins. Erfitt er að áætla þar kostnað á hverja tegund. Auk þess fara fram rannsóknir á þeim í öðrum leiðöngrum eins og rannsóknaleiðöngrum á rækju og á lífríki strandsjávar.
    Í rannsóknaleiðöngrum vegna uppsjávarfiska eru einnig víðtækar vistfræðirannsóknir auk mælinga á umhverfisþáttum sjávar.
    Sama gildir um skrif sérfræðinga stofnunarinnar á ritrýndum greinum. Þær taka oft á mörgum tegundum, vistkerfum, ráðgjöf eða rannsóknaraðferðum og því erfitt að flokka skrifin eftir tegundum. Reynt er að gera það eins og kostur er.

     2.      Hvaða verkefni sem lúta að rannsóknum á humri hafa verið unnin á þessu árabili og hve miklir fjármunir voru veittir í hvert verkefni?
    Rannsóknir og vöktun á nytjastofnum, þ.m.t. á humri, er stór þáttur í starfsemi Hafrannsóknastofnunar á hverju ári. Stofnmælingarleiðangrar á humri eru aðgreindir í verkbókhaldi stofnunarinnar en í þeim er einnig safnað upplýsingum um aðra þætti vistkerfisins. Gögn sem safnað er sem hluti af vöktun, t.d. í stofnmælingum og afla, eru þannig nýtt til mats á afrakstursgetu humars en nýtast jafnframt til að grunnrannsókna á líffræði, vistfræði, erfðafræði humars sem og til vísindarannsókna á veiðistjórnarkerfum.
    Ekki er óvarlegt að ætla að um 50 millj. kr. hafi að jafnaði verið varið til humarrannsókna á árunum 2015–2020.
    Hér á eftir eru talin upp þau verkefni sem unnið var að á árunum 2015–2020 og voru hluti af vöktun og rannsóknum á humri ásamt árlegri kostnaðaráætlun stofnunarinnar.

Verkefni Markmið Kostnaður
Stofnmæling humars Að meta stofnstærð humars í þeim tilgangi að veita stjórnvöldum ráðgjöf um sjálfbæra nýtingu stofnsins. 2015: 45.700.000
2016: 46.200.000
2017: 36.200.000
2018: 39.717.000
2019: 44.440.000
2020: 47.895.000
Rannsóknir á hryggleysingjum Grunnrannsóknir á líffræði og vistfræði hryggleysingja, þ.m.t. á humri. Fyrir 2018 voru grunnrannsóknir inni í fjárhagsáætlun stofnmælingar humars. 2018: 30.624.020
2019: 19.700.000
2020: 17.125.000
Kjörhæfni við humarveiðar Rannsóknir á kjörhæfni humarvörpu. 2017: 7.200.000
Atferli humars Rannsókn á atferli humars með hlustunarduflum. 2020: 9.000.000

     3.      Hversu margar ritrýndar greinar um humar eftir sérfræðinga Hafrannsóknastofnunar hafa birst í alþjóðlegum vísindaritum á framangreindu árabili, hver er titill greinanna og hvar birtust þær?
    Á árunum 2015 til og með 2020 birtust tvær ritrýndar greinar í alþjóðlegum tímaritum um humar:

     –      Gallagher, J., Finarelli, J., Jonasson, J., & Carlsson, J. (2019). Mitochondrial D-loop DNA analyses of Norway lobster (Nephrops norvegicus) reveals genetic isolation between Atlantic and East Mediterranean populations. Journal of the Marine Biological Association of the United Kingdom, 99(4), 933-940. doi:10.1017/S0025315418000929
     –      Raouf Kilada, Ann-Lisbeth Agnalt, Nanette Hammeken Arboe, Sigurvin Bjarnason, AnnDorte Burmeister, Eva Farestveit, Óskar Sindri Gíslason, Anika Guðlaugsdóttir, Diana Guðmundsdóttir, Jónas Páll Jónasson, Ingibörg G. Jónsdóttir, Merete Kvalsund, Michael Sheridan, Don Stansbury, Guldborg Søvik, Feasibility of using Growth Band Counts in Age Determination of Four Crustacean Species in the Northern Atlantic, Journal of Crustacean Biology, Volume 35, Issue 4, 1 July 2015, Pages 499-503, doi.org/10.1163/1937240X-00002353