Ferill 56. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


151. löggjafarþing 2020–2021.
Prentað upp.

Þingskjal 56  —  56. mál.
Flutningsmenn.




Frumvarp til laga


um breytingu á lögum um samvinnufélög, lögum um einkahlutafélög, lögum um hlutafélög og lögum um sameignarfélög (viðurlög vegna hlutfalls kynja í stjórn).

Flm.: Lilja Rafney Magnúsdóttir, Albertína Friðbjörg Elíasdóttir, Bryndís Haraldsdóttir, Halla Signý Kristjánsdóttir, Halldóra Mogensen, Hanna Katrín Friðriksson, Inga Sæland.


I. KAFLI
Breyting á lögum um samvinnufélög, nr. 22/1991, með síðari breytingum.
1. gr.

    Við 77. gr. laganna bætist ný málsgrein, svohljóðandi:
    Samvinnufélagaskrá getur lagt dagsektir á samvinnufélag sem fer ekki að ákvæði 4. málsl. 1. mgr. 27. gr. Greiðast dagsektirnar þangað til samvinnufélag tilkynnir samvinnufélagaskrá að hlutfall hvors kyns sé ekki lægra en 40%. Dagsektir geta numið frá 10.000 kr. til 100.000 kr. á dag. Við ákvörðun um fjárhæð dagsekta er heimilt að taka tillit til fjárhagslegs styrkleika félags. Dagsektir renna í ríkissjóð og eru aðfararhæfar. Ráðherra er heimilt að setja nánari ákvæði um ákvörðun og innheimtu dagsekta í reglugerð.

II. KAFLI
Breyting á lögum um einkahlutafélög, nr. 138/1994, með síðari breytingum.
2. gr.

    Við 126. gr. laganna bætist ný málsgrein, svohljóðandi:
    Hlutafélagaskrá getur lagt dagsektir á einkahlutafélag sem fer ekki að ákvæði 3. og 4. málsl. 1. mgr. 39. gr. Greiðast dagsektirnar þangað til einkahlutafélag tilkynnir hlutafélagaskrá að hlutfall hvors kyns sé ekki lægra en 40%. Dagsektir geta numið frá 10.000 kr. til 100.000 kr. á dag. Við ákvörðun um fjárhæð dagsekta er heimilt að taka tillit til fjárhagslegs styrkleika félags. Dagsektir renna í ríkissjóð og eru aðfararhæfar. Ráðherra er heimilt að setja nánari ákvæði um ákvörðun og innheimtu dagsekta í reglugerð.

III. KAFLI
Breyting á lögum um hlutafélög, nr. 2/1995, með síðari breytingum.
3. gr.

    Við 152. gr. laganna bætist ný málsgrein, svohljóðandi:
    Hlutafélagaskrá getur lagt dagsektir á hlutafélag sem fer ekki að ákvæði 2. og 3. málsl. 1. mgr. 63. gr. Greiðast dagsektirnar þangað til hlutafélag tilkynnir hlutafélagaskrá að hlutfall hvors kyns sé ekki lægra en 40%. Dagsektir geta numið frá 10.000 kr. til 100.000 kr. á dag. Við ákvörðun um fjárhæð dagsekta er heimilt að taka tillit til fjárhagslegs styrkleika félags. Dagsektir renna í ríkissjóð og eru aðfararhæfar. Ráðherra er heimilt að setja nánari ákvæði um ákvörðun og innheimtu dagsekta í reglugerð.

IV. KAFLI
Breyting á lögum um sameignarfélög, nr. 50/2007, með síðari breytingum.
4. gr.

    Á eftir 51. gr. laganna kemur ný grein, 51. gr. a, ásamt fyrirsögn, svohljóðandi:

Dagsektir.

    Firmaskrá getur lagt dagsektir á sameignarfélag sem fer ekki að ákvæði 3. málsl. 1. mgr. 13. gr. Greiðast dagsektirnar þangað til sameignarfélag tilkynnir firmaskrá að hlutfall hvors kyns sé ekki lægra en 40%. Dagsektir geta numið frá 10.000 kr. til 100.000 kr. á dag. Við ákvörðun um fjárhæð dagsekta er heimilt að taka tillit til fjárhagslegs styrkleika félags. Dagsektir renna í ríkissjóð og eru aðfararhæfar. Ráðherra er heimilt að setja nánari ákvæði um ákvörðun og innheimtu dagsekta í reglugerð.

5. gr.

    Lög þessi öðlast gildi 1. janúar 2022.

Greinargerð.

    Sambærilegt frumvarp var lagt fram á 149. löggjafarþingi (186. mál) og á 150. löggjafarþingi (19. mál) en hlaut ekki afgreiðslu. Í frumvarpinu er lagt til að það varði dagsektum ef ekki er farið að ákvæðum laga um kynjahlutföll í stjórnum félaga. Málefni þetta var til umræðu í atvinnuveganefnd á 148. löggjafarþingi og þá fundaði nefndin m.a. með fulltrúum Félags kvenna í atvinnurekstri sem vísuðu til þess að staða mála hér á landi væri óviðunandi hvað varðar hlutfall kvenna í stjórnum félaga. Félagið ítrekaði þá afstöðu í umsögn um málið til efnahags- og viðskiptanefndar á 150. löggjafarþingi.
    Með lögum nr. 13/2010, um breytingu á lögum um hlutafélög og lögum um einkahlutafélög, voru lögfest ákvæði um kynjahlutföll í stjórnum hlutafélaga. Ákvæðin öðluðust gildi 1. september 2013 þannig að gefinn var rúmur aðlögunartími. Með lögum nr. 49/2011 var gerð sambærileg breyting á lögum um sameignarfélög og lögum um samvinnufélög. Í ákvæðunum felst að þar sem starfsmenn eru fleiri en 50 að jafnaði á ársgrundvelli skuli hvort kyn eiga fulltrúa í stjórn þegar hún er skipuð þremur mönnum en þegar stjórnarmenn eru fleiri en þrír skuli tryggt að hlutfall hvors kyns sé ekki lægra en 40%.
    Í Noregi voru samþykkt lög um kynjakvóta í stjórnum stærri hlutafélaga árið 2003. Þar var kveðið á um fjölda fulltrúa af hvoru kyni í samræmi við fjölda meðlima stjórna og að hlutur hvors kyns í stjórn skyldi vera að lágmarki 40% í stjórnum sem í sætu fleiri en níu einstaklingar. Eftir innleiðingu norsku laganna hækkaði hlutur kvenna í stjórnum hlutafélaga úr 6% árið 2002 í 40% árið 2011. Hlutfall kvenna í stjórnum stórra fyrirtækja í Noregi hækkaði úr fjórðungi stjórnarmanna árið 2004 í 36% árið 2006 og náði 42% árið 2009. Samkvæmt Sissel Jensen, norskum hagfræðingi, er aukinn hlutur kvenna meðal þeirra sem fá hæst laun bein afleiðing kynjakvótans. Konur fá frekar tækifæri til að vera meðal æðstu stjórnenda þegar stjórnin sjálf er skipuð bæði körlum og konum. Þessar niðurstöður koma heim og saman við tilgang laganna, þ.e. að fleiri konur fá tækifæri til áhrifa í viðskiptalífinu.
    Þrátt fyrir að Ísland hafi fylgt nokkuð fast á eftir fordæmi Noregs með lagasetningu um kynjakvóta í stjórnum félaga hefur ekki náðst sami árangur á Íslandi. Gefinn var rúmur aðlögunartími fyrir gildistöku ákvæða um hlutfall kynja í stjórnum en hlutfallið hefur ekki jafnast og ákvæðum hefur í reynd ekki verið fylgt. Samkvæmt upplýsingum frá Hagstofu Íslands voru konur 26,2% stjórnarmanna fyrirtækja sem greiða laun og skráð voru í hlutafélagaskrá í lok árs 2018. Hafa þessi hlutföll staðið nokkurn veginn óbreytt frá árinu 2014 í um 26%. Ekki varð teljandi breyting þar á árið 2019 en þá var hlutfall kvenna 26,5%. Árið 2018 var hlutfall kvenna í stjórnum fyrirtækja með yfir 50 launþega 33,5% og hækkaði hlutfall þeirra aðeins um 1% árið 2019 í 34,7% stjórnarmanna í fyrirtækjum með 50 launþega eða fleiri. Flutningsmenn telja því tímabært að skýrt verði kveðið á um það í lögum að heimilt sé að leggja dagsektir á félög sem fara ekki að ákvæðum um hlutföll kynja í stjórnum svo að markmið þeirra nái fram að ganga.
    Þrátt fyrir að um töluvert inngrip sé að ræða telja flutningsmenn nauðsynlegt að grípa til slíkra aðgerða til að ákvæði um kynjahlutföll í stjórnum samvinnufélaga, einkahlutafélaga, hlutafélaga og sameignarfélaga nái markmiði sínu. Jafnframt sé löggjafanum heimilt, þrátt fyrir eignarréttarákvæði stjórnarskrárinnar, að setja athafnafrelsi nauðsynlegar skorður séu fyrir því eðlilegar og málefnalegar ástæður.