Ferill 88. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
151. löggjafarþing 2020–2021.
Þingskjal 89 — 88. mál.
Frumvarp til laga
um breytingu á lögum um fæðingar- og foreldraorlof, nr. 95/2000 (afnám takmarkana).
Flm.: Björn Leví Gunnarsson, Halldóra Mogensen, Helgi Hrafn Gunnarsson, Smári McCarthy.
1. gr.
2. gr.
Greinargerð.
Í lögum um fæðingar- og foreldraorlof, nr. 95/2000, er kveðið á um lágmarkstíma sem starfsmanni er heimilt að taka fæðingarorlof. Í 2. málsl. 2. mgr. 10. gr. laganna segir að aldrei megi taka fæðingarorlof skemur en tvær vikur í senn. Með þessu frumvarpi er takmörkunin á því hversu stuttan tíma hægt er að taka fæðingarorlof felld úr gildi. Slík takmörkun er óþörf, enda er fæðingarorlof alltaf tekið í samráði við vinnuveitanda. Þegar starfsmaður telur sig hafa hag af því að taka fæðingarorlof í svo stuttan tíma er rétt að sá möguleiki sé til staðar.
Við meðferð málsins á 150. löggjafarþingi barst velferðarnefnd umsögn umboðsmanns barna um málið. Í umsögninni segir umboðsmaður það vissulega vera mikilvægt að tryggja foreldrum sveigjanleika við töku fæðingarorlofs en tryggja verði að eftirlit sé haft með því að fæðingarorlofi sé raunverulega ráðstafað í þágu barna þannig að foreldrar leggi niður launuð störf á vinnumarkaði. Ástæðan fyrir því að lágmarkstími fyrir töku fæðingarorlofs hafi verið lengdur úr einni viku í tvær hafi verið sú að það hafi viljað brenna við að foreldrar hafi ekki lagt niður störf þegar þeir hafi einungis tilkynnt um fæðingarorlof í eina viku. Það hafi síðan gert framkvæmdaraðilum kerfisins erfiðara fyrir að fylgjast með því hvort foreldri leggi sannanlega niður störf í svo stuttan tíma. Með hliðsjón af þessu telur umboðsmaður ekki ástæðu til þess að leggja til þær breytingar sem lagðar eru til í frumvarpinu.
Fyrirkomulag laganna um lágmarkstíma fæðingarorlofs er erfitt í framkvæmd fyrir foreldra sem eru í óreglulegu vakta- eða hlutastarfi og því ekki með fastan vinnutíma. Tveggja vikna lágmarkstími kann því að virkja letjandi fyrir foreldra í slíkum aðstæðum sem vinnur gegn því markmiði laganna að tryggja börnum umönnun foreldra á mikilvægasta æviskeiði þeirra. Ekki er hægt að fallast á það sem rök fyrir tveggja vikna lágmarkstíma að það sé erfitt fyrir framkvæmdaraðila kerfisins að fylgjast með því hvort foreldrar leggi raunverulega niður störf sín á umsömdum tíma. Þar tekur hið opinbera fram fyrir hendur einstaklinga til þess að sinna sínum þörfum en ekki þörfum foreldra og barna.