Ferill 89. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


151. löggjafarþing 2020–2021.
Þingskjal 90  —  89. mál.




Frumvarp til laga


um breytingu á lögum um almannatryggingar, nr. 100/2007 (fjárhæð bóta).

Flm.: Inga Sæland, Guðmundur Ingi Kristinsson.


1. gr.

    69. gr. laganna orðast svo:
    Bætur almannatrygginga, svo og greiðslur skv. 63. gr. og fjárhæðir skv. 22. gr., skulu breytast árlega í samræmi við launavísitölu, þó þannig að þær hækki aldrei minna en verðlag samkvæmt vísitölu neysluverðs.

2. gr.

    7., 12., 15. og 17. tölul. ákvæðis til bráðabirgða í lögunum falla brott.

3. gr.

    Lög þessi öðlast þegar gildi en koma til framkvæmda við álagningu opinberra gjalda á árinu 2021 vegna tekna ársins 2020.

Greinargerð.

    Frumvarpið var lagt fram á 150. löggjafarþingi (135. mál) en náði ekki fram að ganga. Í umsögnum sem velferðarnefnd bárust við meðferð málsins á því þingi var almennt lýst ánægju með efni frumvarpsins.
    Samkvæmt 69. gr. laga um almannatryggingar, nr. 100/2007, skulu fjárhæðir bóta almannatrygginga, meðlagsgreiðslur skv. 63. gr. laganna og fjárhæð tekjutryggingar skv. 22. gr., breytast árlega í samræmi við fjárlög og skal ákvörðun þeirra taka mið af launaþróun, þó þannig að þær hækki aldrei minna en verðlag samkvæmt vísitölu neysluverðs. Mögulega hefur verið stefnt að því í upphafi að tryggja að öryrkjar og ellilífeyrisþegar njóti hækkunar á ráðstöfunartekjum í sama hlutfalli og almenningur. Í reynd hefur framkvæmdin þó verið önnur og virðist meginreglan vera sú að vísitölu neysluverðs er fylgt við ákvörðun bóta þó að hún hækki mun minna en launavísitölur. Þar sem Alþingi fer með fjárstjórnarvaldið skv. 41. gr. stjórnarskrárinnar og núverandi löggjöf felur Alþingi að ákvarða hækkanir bóta hafa dómstólar talið það falla utan hlutverks síns að dæma um hvort rétt hafi verið staðið að hækkun bóta skv. 69. gr. laga um almannatryggingar. Því er hér lagt til að hækkun bóta fylgi ávallt launaþróun eins og hún kemur fram í launavísitölu Hagstofu. Tenging bótafjárhæða við vísitölur þekkist í öðrum lögum, t.d. breytast fjárhæðir skaðabóta mánaðarlega í samræmi við lánskjaravísitölu, sbr. 15. gr. skaðabótalaga, nr. 50/1993. Í frumvarpinu er lagt til að fjárhæðir bóta og annarra greiðslna samkvæmt lögum um almannatryggingar taki mið af þróun launavísitölu. Verður að telja það fyrirkomulag sanngjarnt þar sem bætur greiddar á grundvelli laganna eiga almennt að koma í stað atvinnutekna sem öryrki getur ekki aflað sér eða ellilífeyrisþegi nýtur eigi lengur. Þá nýtur ríkissjóður aukinna tekna þegar laun hækka þar sem stofn tekjuskatts hækkar. Því er ákveðið samræmi á milli aukinna útgjalda ríkissjóðs og aukinna tekna. Þá er lagt til að bætur hækki þó aldrei minna en verðlag samkvæmt vísitölu neysluverðs. Þannig er tryggt að bætur lækki ekki skyndilega ef launaþróun er neikvæð.
    Einnig er lagt til að felldir verði brott þeir töluliðir ákvæðis til bráðabirgða í lögum um almannatryggingar sem vísa til 69. gr. og hafa ekki lengur þýðingu.