Ferill 96. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


151. löggjafarþing 2020–2021.
Prentað upp.

Þingskjal 97  —  96. mál.
Viðbót.




Frumvarp til laga


um breytingu á skaðabótalögum, nr. 50/1993, með síðari breytingum (gjafsókn).

Flm.: Guðmundur Ingi Kristinsson, Inga Sæland.


1. gr.

    Á eftir 27. gr. laganna kemur ný grein, ásamt fyrirsögn, svohljóðandi:

Gjafsókn.

    Gjafsókn skal veitt þeim sem höfðar mál til viðurkenningar á skaðabótaskyldu vegna líkamstjóns eða til að krefjast greiðslu skaðabóta vegna líkamstjóns þrátt fyrir að skilyrðum 1. mgr. 126. gr. laga um meðferð einkamála sé ekki fullnægt, enda hafi heildartekjur viðkomandi verið undir meðaltali heildartekna á næstliðnu almanaksári samkvæmt tölum frá Hagstofu Íslands. Fer að öðru leyti um gjafsókn samkvæmt almennum reglum.

2. gr.

    Lög þessi öðlast þegar gildi.

Greinargerð.

    Efni þessa frumvarps er að finna í frumvarpi sem lagt var fram á 150. löggjafarþingi (430. mál) en hlaut ekki afgreiðslu. Það frumvarp fjallaði einnig um grundvöll reglulegrar uppfærslu fjárhæða skaðabótalaga. Betur þykir fara á því að leggja málin fram í aðskildum frumvörpum. Því er í þessu frumvarpi aðeins fjallað um gjafsókn í skaðabótamálum. Efnisatriði frumvarpsins eru að meginefni til þau sömu og í fyrrnefndu frumvarpi sem lagt var fram á 150. löggjafarþingi en gerð er breyting þess efnis að veiting gjafsóknar taki mið af fjárhag viðkomandi. Þá eru gerðar smávægilegar breytingar formlegs eðlis.
    Það er einstaklingum oft þung byrði að höfða dómsmál vegna líkamstjóns sem þeir hafa orðið fyrir. Þeir fallast því gjarnan frekar á þær bætur sem tryggingafélög bjóða að fyrra bragði og gefa eftir þann rétt sem þeir þó telja sig eiga. Til þess að stemma stigu við þessu vandamáli sem snýr að tekjulægri einstaklingum og þar með bæta réttaröryggi þeirra sem hafa orðið fyrir líkamstjóni er lagt til að þeir eigi kost á því að höfða mál til viðurkenningar á skaðabótaskyldu eða greiðslu skaðabóta sem rekja má til líkamstjóns með því að rýmka rétt þeirra til gjafsóknar.
    Í almennum reglum um gjafsókn samkvæmt lögum nr. 91/1991, um meðferð einkamála, sbr. reglugerð nr. 45/2008 um skilyrði gjafsóknar og starfshætti gjafsóknarnefndar, eru sett ströng skilyrði um bága fjárhagsstöðu umsækjenda fyrir veitingu gjafsóknar. Með frumvarpi þessu er lagt til að gjafsókn skuli veitt, í þeim tegundum dómsmála sem um ræðir, að því skilyrði uppfylltu að heildartekjur umsækjanda á næstliðnu almanaksári hafi verið undir meðaltali heildartekna hér á landi það sama ár samkvæmt tölum frá Hagstofu Íslands. Árið 2019 var meðaltal heildartekna samkvæmt útgefnum tölum Hagstofunnar 5.677.000 kr. Þannig nær hin nýja regla til þeirra sem hafa lágar tekjur, þótt þær séu hærri en núgildandi tekjuviðmið fyrrnefndrar reglugerðar.
    Efni frumvarpsins samræmist 3. mgr. 126. gr. laga um meðferð einkamála sem kveður á um að gjafsókn verði enn fremur veitt eftir því sem fyrir er mælt í öðrum lögum. Að frátöldum almennum skilyrðum fyrir gjafsókn skv. 1. mgr. 126. gr. fyrrnefndra laga gilda ákvæði XX. kafla sömu laga um veitingu gjafsóknar á grundvelli þess ákvæðis sem mælt er fyrir um í frumvarpi þessu.