Ferill 133. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


151. löggjafarþing 2020–2021.
Þingskjal 134  —  133. mál.




Frumvarp til laga


um breytingu á lögum um 40 stunda vinnuviku, nr. 88/1971 (lögbundnir frídagar).

Flm.: Þorsteinn Sæmundsson, Anna Kolbrún Árnadóttir, Bergþór Ólason, Birgir Þórarinsson, Gunnar Bragi Sveinsson, Karl Gauti Hjaltason, Ólafur Ísleifsson, Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, Sigurður Páll Jónsson.


1. gr.

    Í stað orðanna „og 17. júní“ í 1. mgr. 6. gr. laganna kemur: 17. júní og 1. desember.

2. gr.

    Lög þessi öðlast þegar gildi.

Greinargerð.

    Frumvarp þetta var áður lagt fram á 148., 149. og 150 löggjafarþingi (138. mál).
    Hinn 1. desember 2018 voru liðin hundrað ár frá því að Ísland varð frjálst og fullvalda ríki með gildistöku sambandslaganna. Af því tilefni voru margvísleg hátíðahöld á árinu, m.a. á vegum Alþingis, enda vel við hæfi að svo mikilvægra tímamóta í lífi þjóðarinnar væri minnst með jákvæðum og afgerandi hætti. Á sama grundvelli er því lagt til með frumvarpi þessu að hér eftir verði 1. desember ár hvert lögbundinn frídagur.
    Í lögum um 40 stunda vinnuviku, nr. 88/1971, er nú, auk helgidaga þjóðkirkjunnar, sérstaklega kveðið á um fjóra heila frídaga: sumardaginn fyrsta, fyrsta mánudag í ágúst (frídag verslunarmanna), 1. maí (baráttudag verkalýðsins) og þjóðhátíðardag Íslendinga 17. júní.
    Að mati flutningsmanna hefur enginn þessara daga haft í för með sér jafnmiklar grundvallarbreytingar á sögu og lífi íslensku þjóðarinnar og fullveldisdagurinn 1. desember 1918, dagurinn sem markaði fullnaðarsigur í sjálfstæðisbaráttu Íslendinga. Með því er ekki gert lítið úr sögu eða mikilvægi þessara daga, sem að sönnu er ærið, en í ljósi þess að mælt er fyrir um að þessir fjórir dagar skuli vera almennir frídagar samkvæmt lögum um 40 stunda vinnuviku og þeir þannig festir í sameiginlegt minni þjóðarinnar, telja flutningsmenn eðlilegt og rétt að fullveldisdagurinn 1. desember verði jafnframt gerður að frídegi á sama hátt og mikilvægis hans verði þannig minnst um alla framtíð.