Ferill 77. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


151. löggjafarþing 2020–2021.
Þingskjal 237  —  77. mál.




Svar


sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra við fyrirspurn frá Ara Trausta Guðmundssyni um sölu og nýtingu matvöru.


     1.      Telur ráðherra æskilegt, með minni matarsóun að markmiði, að stuðlað verði að opnun matvælamarkaða þar sem framleiðendur selja vörur við góðar aðstæður og neytendur geta keypt eftir vigt?
    Að mati ráðherra er mikilvægt að draga úr matarsóun. Matvælamarkaðir þar sem framleiðendur selja vörur við fullnægjandi aðstæður og neytendur geta keypt vörur eftir vigt þurfa að uppfylla þær kröfur sem gerðar eru í regluverki sem gildir um sölu á matvælum þar sem rík áhersla er lögð á að matvælaöryggi sé tryggt. Að því gefnu að framangreindar kröfur séu uppfylltar er heimilt að opna slíka markaði.

     2.      Kæmi til greina að mati ráðherra að skylda matvöruverslanir yfir tiltekinni stærð til að semja við góðgerðasamtök, svo dæmi sé tekið, um nýtingu vara sem eru á síðasta söludegi og eru til þess fallnar að nýtast betur?
    Ráðherra telur mikilvægt að matvöruverslanir verði hvattar til þess að nýta afgangsvörur, sem annars færu til spillis, til matargjafa. Í júní 2020 skilaði starfshópur skipaður af umhverfis- og auðlindaráðherra tillögum að aðgerðum gegn matarsóun. Þar eru lagðar til 24 aðgerðir á ábyrgð stjórnvalda annars vegar og atvinnulífs hins vegar gegn matarsóun. Endanlegar tillögur liggja ekki fyrir en í drögum að tillögum má finna aðgerðir sem styðja við og skapa hvata til matargjafa og annarrar dreifingar matvæla sem annars færu til spillis. Ráðherra mun horfa til framangreindrar vinnu þegar endanlegar tillögur liggja fyrir.