Ferill 75. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


151. löggjafarþing 2020–2021.
Þingskjal 245  —  75.
mál.



Svar


sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra við fyrirspurn frá Ingu Sæland um rannsóknir á hvölum.


     1.      Hversu miklum fjármunum varði Hafrannsóknastofnun árlega til hvalarannsókna á árunum 2006–2020?

Ár Upphæð (millj. kr.)
2006 85
2007 174
2008 50
2009 61
2010 72
2011 72
2012 88
2013 94
2014 57
2015 231
2016 106
2017 88
2018 70
2019 79
2020 91

     2.      Hvaða verkefni sem lúta að rannsóknum á hvölum hafa verið unnin á þessu árabili og hve miklir fjármunir voru veittir í hvert verkefni?
    Í samræmi við hlutverk sitt sem meginráðgjafi stjórnvalda um lífríki hafsins við Ísland og nytjastofna þess hefur Hafrannsóknastofnun stundað víðtækar rannsóknir á hvölum undanfarna áratugi. Rannsóknirnar skiptast í fjölmörg misstór verkefni, en segja má að langtímamarkmið flestra þeirra sé að tryggja verndun og eftir atvikum sjálfbæra nýtingu þeirra fjölmörgu hvalastofna sem halda til hér við land. Einnig eru rannsóknir á hvölum mikilvægar til að fylgjast með hugsanlegum áhrifum loftslagshlýnunar á lífríki hafsins. Eftirfarandi er stutt samantekt yfir helstu viðfangsefni Hafrannsóknastofnunar á sviði hvalarannsókna undanfarin 15 ár (2006–2020) og listi yfir öll verkefnin. Þá fylgir aftast í svari þessu tafla sem sýnir kostnað við einstök verkefni.
     1.      Alþjóðlegar hvalatalningar. Frá árinu 1987 hefur Hafrannsóknastofnun reglulega tekið þátt í skipulagningu og framkvæmd á fjölþjóðlegum hvalatalningum í samvinnu við helstu rannsóknastofnanir nágrannaþjóða við Norður-Atlantshaf. Markmið verkefnisins er að afla upplýsinga um útbreiðslu og fjölda hvala á Íslandsmiðum og aðliggjandi hafsvæðum og eru talningarnar mikilvægasti grundvöllur ráðgjafar um stjórnun nýtingar og verndun stofnanna. Einnig gefa hvalatalningarnar mikilvægar vísbendingar um áhrif hlýnunar sjávar á vistkerfið. Á umræddu tímabili fóru fram tvær víðtækar talningar, árin 2007 og 2015–2016.
     2.      Rannsóknir á líffræði og vistfræði nytjastofna hvala. Frá því um 1980 hefur Hafrannsóknastofnun stundað margvíslegar rannsóknir sem byggjast á sýnatöku úr þeim tegundum sem nýttar hafa verið hér við land. Slíkar rannsóknir eru mikilvægar samhliða stofnvistfræðilegum rannsóknum (talningum o.fl.) til að fylgjast með ástandi stofnanna, en þær hafa m.a. leitt í ljós breytingar á kynþroskaaldri og frjósemi langreyðar. Auk þess hafa þessar rannsóknir leitt til fjölmargra samstarfsverkefna með erlendum og innlendum vísindamönnum á sviði mengunar, orkubúskapar, erfðafræði, líffærafræði, fæðuvistfræði o.fl.
     3.      Erfðafræði hvala. Erfðagreiningar fara fram á öllum hvölum sem veiddir eru hér við land og nýtast niðurstöðurnar bæði til eftirlits með afurðum (DNA-gagnabanki) og til margvíslegra stofnerfðafræðilegra rannsókna. Auk sýnatöku úr hrefnu- og langreyðarafla eru tekin húðsýni úr lifandi dýrum tegunda sem ekki eru veiddar (hnúfubak, steypireyði, háhyrningum o.fl.). Varðandi verndun og nýtingu hvala gegna erfðarannsóknir lykilhlutverki í auknum skilningi á stofngerð, þ.e. fjölda stofna í Norður-Atlantshafi og mörkum þeirra. Einnig hafa þær veitt upplýsingar um breytingar á stofnstærðum (hnísa) og kynblöndun tegunda (langreyður/steypireyður).
     4.      Rannsóknir á líffræði og vistfræði hrefnu. Þrátt fyrir að hrefna sé ein algengasta hvalategundin á grunnsævi við Ísland og hrefnuveiðar hafi verið stundaðar við Ísland frá árinu 1914, var þekking á líffræði tegundarinnar lengi takmörkuð. Á tímabilinu 2003–2007 fór fram gagnasöfnun vegna rannsókna á líffræði og vistfræði hrefnu. Alls voru veiddar 200 hrefnur til víðtækra rannsókna á fæðuvistfræði, líffræði, orkubúskap, mengun, sníkjudýrafræði og erfðafræði tegundarinnar.
     5.      Rannsóknir á háhyrningum. Háhyrningar eru efst í fæðukeðju hafsins og éta allt frá stærsta dýri jarðar, steypireyði, niður í síld og jafnvel smærri fiska. Á tímabilinu 2012– 2020 voru stundaðar á Hafrannsóknastofnun rannsóknir á atferli og fæðuvistfræði háhyrninga hér við land. Einkum beindust rannsóknirnar að sérhæfingu og hugsanlegum breytileika í fæðunámi, m.a. sambandi háhyrninga og síldar og fór gagnasöfnun mest fram á síldarslóðum í Breiðafirði og við Vestmannaeyjar.
     6.      Far- og fæðuvistfræði hnúfubaks. Hnúfubak hefur fjölgað mikið við Ísland og víða um heim undanfarna áratugi. Ekki er ljóst hvað veldur þessari fjölgun og lítið vitað um fæðuvistfræði tegundarinnar. Þótt talið sé að meiri hluti stofnsins haldi sig á suðlægari slóðum yfir veturinn, er ljóst að talsverður hluti er hér á veturna og virðist tengjast loðnugöngum að einhverju leyti. Hafrannsóknastofnun hefur lagt aukna áherslu á rannsóknir á hnúfubak með aðstoð gervitunglamerkinga, talninga, ljósmyndagreininga og lífsýnatöku. Rannsóknirnar tengjast að hluta til stærri verkefnaklasa um vistfræði loðnu.
     7.      Meðafli sjávarspendýra. Mikill fjöldi sjávarspendýra og sjófugla drepst árlega í veiðarfærum og hefur þetta vandamál hlotið vaxandi athygli víða um heim. Hér við land virðist vandamálið alvarlegast hvað varðar seli og hnísu í netaveiðum. Lögskylt er að skrá allan meðafla við veiðar og er unnið að því að bæta þá skráningu. Hafrannsóknastofnun hefur á undanförnum árum lagt aukna áherslu á að meta raunverulegan meðafla í samvinnu við Fiskistofu og erlendar vísindastofnanir, svo sem Norður-Atlantshafssjávarspendýraráðið (NAMMCO) og Alþjóðahafrannsóknaráðið (ICES).
     8.      Ljósmyndagreining. Greining einstaklinga af ljósmyndum sem getur gagnast í margvíslegum rannsóknum á hvölum. Hnúfubakur hentar einkar vel til slíkra rannsókna enda auðþekkjanlegur á sporðmynstri, en einnig háhyrningar, steypireyðar og fleiri tegundir. Hafrannsóknastofnun hefur stundað rannsóknir með þessari aðferð síðan 1985 og hefur undanfarin ár starfrækt sérstakan ljósmyndagagnagrunn íslenskra hnúfubaka sem nýtist í samstarfi við fjölmarga íslenska og erlenda aðila.
     9.      Hvalrekar og hvalakomur. Meðal hlutverka Hafrannsóknastofnunar er að halda skrá yfir upplýsingar um hvali sem rekur á land við Ísland og taka þátt í alþjóðlegu samstarfi um rannsóknir á hvalrekum. Árið 2005 var vísindalegt hlutverk stofnunarinnar í þessu samhengi formfest með samkomulagi ýmissa ríkisstofnana um vinnulag og verkaskiptingu varðandi hvalreka. Hvarvetna í heiminum þykir nauðsynlegt að hafa eftirlit af þessu tagi í tengslum við almenna upplýsingaöflun um umhverfi sjávar. Hér er einnig oft um eina möguleikann til að afla gagna um ástand stofnanna og þátt tegundanna í lífríki hafsins. Þetta á einkum við um þær tegundir sem ekki hafa verið veiddar hér við land.
     10.      Mat á ástandi hvalastofna. Umtalsverðum hluta af vinnu sérfræðinga Hafrannsóknastofnunar er varið í úttektir á ástandi hvalastofna en þær eru megingrundvöllur ráðgjafar um verndun og nýtingu stofnanna. Slíkar úttektir fara yfirleitt fram innan alþjóðlegra vísindastofnana, þ.e. hjá Alþjóðahvalveiðiráðinu (IWC) og NAMMCO, áður en þær eru yfirfarnar af ráðgjafanefndum Hafrannsóknastofnunar.

    Verkefnalisti Hafrannsóknastofnunar á sviði hvalarannsókna 2006–2020:
    27.55 Stofngerð langreyðar í Norður-Atlantshafi.
    28.01 NAMMCO Norður-Atlantshafssjávarspendýraráðið (9166).
    28.02 Alþjóðlegar hvalatalningar 2007 (NASS/TNASS ) (9167).
    28.04 Gagnabanki hvalamynda (9168).
    28.05 Alþjóðahvalveiðiráðið IWC (vísindanefnd og commission) (9169).
    28.06 Hvalatalningar í leiðöngrum Hafrannsóknastofnunar.
    28.07 Rannsóknir á hrefnu (verkefnasjóður) (9170).
    28.10 Atferli hnýðings við Ísland.
    28.14 Gagnasöfnun úr hrefnuveiðum (9171).
    28.17 Meðafli sjávarspendýra (9172).
    28.18 Ferðir og hljóðnotkun hnúfubaks.
    28.19 Gagnasöfnun úr langreyðarveiðum (9173).
    28.20 DNA-sýni og gagnabanki hvalaafurða (9174).
    28.21 Hvalakomur og hvalrekar við strendur Íslands (9175).
    28.22 Gagnasöfnun í hvalaskoðunarferðum.
    28.28 Erfðasýni úr meðafla sjávarspendýra (9176).
    US10754 Hvalatalningar á Charlie-Gibbs-svæðinu.
    9178 Rannsóknir á háhyrningum.
    11986 Merkingar á hnúfubak og langreyði.
    9223 Loðnugöngur og umhverfisþættir.
    9173 Stofnstærðir og ástand hvalastofna.
    US9175 Líffræði og vistfræði hvala.

     3.      Hversu margar ritrýndar greinar um hvali eftir sérfræðinga Hafrannsóknastofnunar hafa birst í alþjóðlegum vísindaritum á framangreindu árabili, hver er titill greinanna og hvar birtust þær?
    Á tímabilinu 2006–2020 hafa birst a.m.k. 94 ritrýndar greinar um hvali í alþjóðlegum vísindaritum eftir sérfræðinga Hafrannsóknastofnunar. Auk þess eru niðurstöður hvalarannsókna stofnunarinnar að finna í fjölmörgum skýrslum og bókarköflum sem ekki er getið í eftirfarandi lista.

2020.
     –      Ben Chehida Y., Thumloup J., Schumacher C., Harkins T., Aguilar A., Borrell A., Ferreira M., Rojas-Bracho L., Robertson K.M., Taylor B.L., Víkingsson G.A., Weyna A., Romiguier J., Morin P.A., Fontaine M.C. (2020). Mitochondrial genomics reveals the evolutionary history of the porpoises (Phocoenidae) across the speciation continuum. Sci Rep 10:15190. doi.org/10.1038/s41598-020-71603-9.
     –      Garcia-Garin O., Sala B., Aguilar A., Vighi M., Víkingsson G.A., Chosson V., Eljarrat E., Borrell A. (2020). Organophosphate contaminants in North Atlantic fin whales. Sci Total Environ.
          doi.org/10.1016/j.scitotenv.2020.137768.
     –      Gauffier P., Borrell A., Silva M.A., Víkingsson G., López A., Giménez J., Colaço A., Halldórsson S.D., Vighi M., Prieto R., de Stephanis R., Aguilar A. (2020). Wait your turn, North Atlantic fin whales share a common feeding ground sequentially. Mar Environ Res:104884.
     –      Gilles A., Gunnlaugsson T., Mikkelsen B., Pike D.G., Víkingsson G.A. (2020). Summer Abundance of Harbour Porpoises (Phocoena phocoena) in the Coastal Waters of Iceland and the Faroe Islands. NAMMCO Sci Publ 11. doi.org/10.7557/3.4939.
     –      Gunnlaugsson T., Víkingsson G.A., Halldórsson S.D., Elvarsson B.Þ., Haug T., Lydersen C. (2020). Body mass, muscle, blubber and visceral fat content and their seasonal, spatial and temporal variability in North Atlantic common minke whales. J Cetacean Res Manag 21:59–70.
          doi.org/10.47536/jcrm.v21i1.
     –      Hansen R.G., Pike D., Thorgilsson B., Gunnlaugsson T., Lawson J. (2020). The Geometer: A New Device for Recording Angles in Visual Surveys. NAMMCO Sci Publ 11. doi.org/10.7557/3.5585.
     –      Houghton L., Ramirez-Martinez N., Mikkelsen B., Víkingsson G., Gunnlaugsson T., Øien N., Hammond P. (2020). Oceanic Drivers of Sei Whale Distribution in the North Atlantic. NAMMCO Sci Publ 11. doi.org/10.7557/3.5211.
     –      Pampoulie C., Gíslason D., Ólafsdóttir G., Chosson V., Halldórsson S.D., Mariani S., Elvarsson B.Þ., Rasmussen M.H., Iversen M.R., Daníelsdóttir A.K., Víkingsson G.A. (2020). Evidence of unidirectional hybridization and second-generation adult hybrid between the two largest animals on Earth, the fin and blue whales. Evol Appl. doi.org/10.1111/eva.13091.
     –      Pike, D.G., Gunnlaugsson, T., Mikkelsen, B., Halldórsson, S.D., Víkingsson, G.A., Acquarone, M. & Desportes, G. (2020). Estimates of the Abundance of Cetaceans in the Central North Atlantic from the T-NASS Icelandic and Faroese Ship Surveys Conducted in 2007. NAMMCO Scientific Publications 11. doi.org/10.7557/3.5269.
     –      Pike D., Gunnlaugsson T., Sigurjónsson J., Víkingsson G. (2020). Distribution and abundance of cetaceans in Icelandic waters over 30 years of aerial surveys. NAMMCO Sci Publ 11.
          doi.org/10.7557/3.4805.
     –      Punt A.E., Siple M., Francis T.B., Hammond P.S., Heinemann D., Long K.J., Moore J.E., Sepúlveda M., Reeves R.R., Sigurðsson G.M., Víkingsson G., Wade P.R., Williams R., Zerbini A.N. (2020). Robustness of potential biological removal to monitoring, environmental, and management uncertainties. ICES J Mar Sci. doi.org/10.1093/icesjms/fsaa096.
     –      Punt, A.E., Siple, M., Sigurðsson, G.M., Víkingsson, G., Francis, T.B., Granquist, S.M., Hammond, P.S., Heinemann, D., Long, K.J., Moore, J.E., 2020. Evaluating Management Strategies for Marine Mammal Populations: An Example for multiple species and multiple fishing sectors in Iceland. Can. J. Fish. Aquat. Sci. doi.org/10.1139/cjfas-2019-0386.
     –      Selbmann A., Deecke V.D., Fedutin I.D., Filatova O.A., Miller P.J.O., Svavarsson J. and Samarra, F.I.P. (2020; in press). A comparison of Northeast Atlantic killer whale (Orcinus orca) stereotyped call repertoires. Marine Mammal Science.
2019.
     –      Cabrera A.A., Hoekendijk J.P.A., Aguilar A., Barco S.G., Berrow S., Bloch D., Borrell A., Cunha H.A., Dalla Rosa L., Dias C.P., Gauffier P., Hao W., Landry S., Larsen F., Martín V., Mizroch S., Oosting T., Øien N., Pampoulie C., Panigada S., Prieto R., Ramp C., Rivera-Léon V., Robbins J., Ryan C., Schall E., Sears R., Silva M.A., Urbán J., Wenzel F.W., Palsbøll P.J., Bérubé M. (2019). Fin whale (Balaenoptera physalus) mitogenomics: A cautionary tale of defining sub-species from mitochondrial sequence monophyly. Mol Phylogenet Evol 135:86–97. doi.org/10.1016/j.ympev.2019.02.003.
     –      Dietz R., Letcher R.J., Desforges J.-P., Eulaers I., Sonne C., Wilson S., Andersen-Ranberg E., Basu N., Barst B.D., Bustnes J.O., Bytingsvik J., Ciesielski T.M., Drevnick P.E., Gabrielsen G.W., Haarr A., Hylland K., Jenssen B.M., Levin M., McKinney M.A., Nørregaard R.D., Pedersen K.E., Provencher J., Styrishave B., Tartu S., Aars J., Ackerman J.T., Rosing-Asvid A., Barrett R., Bignert A., Born E.W., Branigan M., Braune B., Bryan C.E., Dam M., Eagles-Smith C.A., Evans M., Evans T.J., Fisk A.T., Gamberg M., Gustavson K., Hartman C.A., Helander B., Herzog M.P., Hoekstra P.F., Houde M., Hoydal K., Jackson A.K., Kucklick J., Lie E., Loseto L., Mallory M.L., Miljeteig C., Mosbech A., Muir D.C.G., Nielsen S.T., Peacock E., Pedro S., Peterson S.H., Polder A., Rigét F.F., Roach P., Saunes H., Sinding M.-H.S., Skaare J.U., Søndergaard J., Stenson G., Stern G., Treu G., Schuur S.S., Víkingsson G. (2019). Current state of knowledge on biological effects from contaminants on arctic wildlife and fish. Sci Total Environ 696:133792. doi.org/10.1016/j.scitotenv.2019.133792.
     –      Foote A.D., Martin M.D., Louis M., Pacheco G., Robertson K.M., Sinding M.-H.S., Amaral A.R., Baird R.W., Baker C.S., Ballance L., Barlow J., Brownlow A., Collins T., Constantine R., Dabin W., Dalla Rosa L., Davison N.J., Durban J.W., Esteban R., Ferguson S.H., Gerrodette T., Guinet C., Hanson M.B., Hoggard W., Matthews C.J.D., Samarra F.I.P., de Stephanis R., Tavares S.B., Tixier P., Totterdell J.A., Wade P., Excoffier L., Gilbert M.T.P., Wolf J.B.W., Morin P.A. (2019). Killer whale genomes reveal a complex history of recurrent admixture and vicariance. Mol Ecol 28:3427–3444.
          doi.org/10.1111/mec.15099.
     –      Jourdain E., Ugarte F., Víkingsson G.A., Samarra F.I., Ferguson S.H., Lawson J., Vongraven D., Desportes G. (2019). North Atlantic killer whale Orcinus orca populations: a review of current knowledge and threats to conservation. Mammal Rev 49:384–400. doi: 10.1111/mam.12168.
     –      Moore S.E., Haug T., Víkingsson G.A., Stenson G.B. (2019). Baleen whale ecology in arctic and subarctic seas in an era of rapid habitat alteration. Progress in Oceanography 176:102118.
          doi.org/10.1016%2Fj.pocean.2019.05.010.
     –      Pike D.G., Gunnlaugsson T., Desportes G., Mikkelsen B., Víkingsson G.A. & Bloch D. (2019). Estimates of the relative abundance of long-finned pilot whales (Globicephala melas) in the Northeast Atlantic from 1987 to 2015 indicate no long-term trends. NAMMCO Sci Publ 11.
          doi.org/10.7557/3.4643.
     –      Pike D., Gunnlaugsson T., Mikkelsen B., Halldórsson S.D., Víkingsson G. (2019). Estimates of the abundance of cetaceans in the central North Atlantic based on the NASS Icelandic and Faroese shipboard surveys conducted in 2015. NAMMCO Sci Publ 11. doi.org/10.7557/3.4941.
     –      Pinfield R., Dillane E., Runge A.K.W., Evans A., Mirimin L., Niemann J., Reed T.E., Reid D.G., Rogan E., Samarra F.I.P., Sigsgaard E.E. and Foote A.D. (2019). False negative detections from environmental DNA collected in the presence of large numbers of killer whales (Orcinus orca). Environmental DNA, doi: 10.1002/edn3.32.
     –      Rita D., Borrell A., Víkingsson G., Aguilar A. (2019). Histological structure of baleen plates and its relevance to sampling for stable isotope studies. Mamm Biol 99:63–70.
          doi.org/10.1016/j.mambio.2019.10.004.
     –      Vighi M., Borrell A., Víkingsson G., Gunnlaugsson T. & Aguilar A. (2019). Strontium in fin whale baleen: A potential tracer of mysticete movements across the oceans? Sci Total Environ 650:1224–1230.
2018.
     –      Alves F., Towers J., Baird R.W., Olson P.A., Bearzi G., Bonizzoni S., Halicka Z., Alessandrini A., Kopelman A.H., Yzoard C., Rasmussen M.H., Bertulli C.G., Jourdain E., Gullan A., Rocha D., Hupman K., Mrusczok M.T., Samarra F.I.P., Magalhães S., Visser I.N., Dinis A. (2018). The incidence of bent dorsal fins in free-ranging cetaceans. Journal of Anatomy 232: 263–269.
     –      Arregui M., Borrell A., Víkingsson G., Ólafsdóttir D., Aguilar A. (2018). Stable isotope analysis of fecal material provides insight into the diet of fin whales. Mar Mammal Sci 34:1059–1069.
          doi.org/10.1111/mms.12504.
     –      Borrell A., Saiz L., Víkingsson G., Gaufier P., Fernández A.L., Aguilar A. (2018). Fin whales as bioindicators of multi-decadal change in carbon and oxygen stable isotope shifts in the North Atlantic. Mar Environ Res 138:129–134. doi.org/10.1016/j.marenvres.2018.04.014.
     –      Borrell A., Sant P., Víkingsson G., Aguilar A., García-Vernet R. (2018). An evaluation of whale skin differences and its suitability as a tissue for stable isotope analysis. J Sea Res 140:59–62. doi.org/10.1016/j.seares.2018.07.011.
     –      Danishevskaya A.Y., Filatova O., Ford J., Matkin C., Miller P., Samarra F., Yurk H. and Hoyt E. (2018). Crowd intelligence can discern between repertoires of killer whale ecotypes. Bioacoustics, DOI: 10.1080/09524622.2018.1538902.
     –      Desforges J.-P., Hall A., McConnell B., Rosing-Asvid A., Barber J.L., Brownlow A., De Guise S., Eulaers I., Jepson P.D., Letcher R.J., Levin M., Ross P.S., Samarra F., Víkingson G., Sonne C., Dietz R. (2018). Predicting global killer whale population collapse from PCB pollution. Science 361:1373–1376. Doi: 10.1126/science.aat1953.
     –      García-Vernet R., Sant P., Víkingsson G., Borrell A., Aguilar A. (2018). Are stable isotope ratios and oscillations consistent in all baleen plates along the filtering apparatus? Validation of an increasingly used methodology. Rapid Commun Mass Spectrom 32:1257–1262.
     –      Garde E., Bertelsen M.F., Ditlevsen S., Heide-Jørgensen M.P., Nielsen N.H., Frie A.K., Ólafsdóttir D., Siebert U., Hansen S.H. (2018). Accuracy of the Aspartic Acid Racemization Technique in Age Estimation of Mammals and the Influence of Body Temperature. NAMMCO Sci Publ 10.
          doi.org/10.7557/3.4400.
     –      Huijser L.A., Bérubé M., Cabrera A.A., Prieto R., Silva M.A., Robbins J., Kanda N., Pastene L.A., Goto M., Yoshida H., Víkingsson G.A., Pallsboll P.J. (2018). Population structure of North Atlantic and North Pacific sei whales (Balaenoptera borealis) inferred from mitochondrial control region DNA sequences and microsatellite genotypes. Conserv Genet 19:1007–1024.
     –      Samarra F.I., Bassoi M., Béesau J., Elíasdóttir M.Ó., Gunnarsson K., Mrusczok M.-T., Rasmussen M., Rempel J.N., Thorvaldsson B. & Víkingsson G.A. (2018). Prey of killer whales (Orcinus orca) in Iceland. PloS One 13:e0207287.
     –      Tavares S.B., Samarra F.I.P., Graves J., Pascoal S. and Miller P.J.O. (2018) Killer whales (Orcinus orca) in Iceland show weak genetic structure among diverse isotopic signatures and observed movement patterns. Ecology and Evolution, DOI: 10.1002/ece3.4646.
2017.
     –      Jourdain E., Tavares S.B. and Samarra F.I.P. (2017). Incidence of probable vertebral column deformities in Norwegian and Icelandic killer whales (Orcinus orca). Aquatic Mammals 43: 682–690.
     –      Nielsen, Nynne H., Gísli A. Víkingsson, Steen H. Hansen, Susanne Ditlevsen, and Mads Peter Heide-Jørgensen. (2017). Two Techniques of Age Estimation in Cetaceans: GLGs in Teeth and Earplugs, and Measuring the AAR Rate in Eye Lens Nucleus. NAMMCO Scientific Publications 10.
          dx.doi.org/10.7557/3.4184.
     –      Richard G., Filatova O.A., Samarra F.I.P., Fedutin I.D., Lammers M. and Miller P.J.O. (2017). Icelandic herring-eating killer whales feed at night. Marine Biology 164: 32. doi: 10.1007/s00227-016-3059-8.
     –      Samarra F.I.P., Tavares S., Béesau J., Deecke V.B., Fennell A., Miller P.J.O., Pétursson H., Sigurjónsson J. and Víkingsson G.A. (2017). Movements of killer whales (Orcinus orca) relative to seasonal and long-term shifts in herring (Clupea harengus) distribution. Marine Biology 164: 159. doi: 10.1007/s00227-017-3187-9.
     –      Samarra F.I., Vighi M., Aguilar A. & Víkingsson G.A. (2017). Intra-population variation in isotopic niche in herring-eating killer whales off Iceland. Mar Ecol Prog Ser 564:199–210.
     –      Tavares S., Samarra F.I.P. and Miller P.J.O. (2017). A multilevel society of herring-eating killer whales indicates adaptation to prey characteristics. Behavioral Ecology 28: 500–514.
2016.
     –      Fernández R., Schubert M., Vargas-Velázquez A.M., Brownlow A., Víkingsson, G.A., Siebert U., Jensen L.F., Øien N., Wall D., Rogan E., Mikkelsen B., Dabin W., Alfarhan A.H., Alquraishi S.A., Al-Rasheid K.A.S. and Guillot G., Orlando L. (2016). A genomewide catalogue of single nucleotide polymorphisms in white-beaked and Atlantic white-sided dolphins. Mol Ecol Resour 16 (1):266–276. doi.org/10.1111/1755-0998.12427.
     –      Filatova O., Miller P., Yurk H., Samarra F., Hoyt E., Ford J., Matkin C. and Barrett-Lennard L. (2016). Physical constraints of dialect evolution in killer whales. Journal of the Acoustical Society of America 140(5): 3755–3764.
     –      Lah, L., Trense, D., Benke, H., Berggren, P., Gunnlaugsson, Þ., Lockyer, C., Öztürk, A., Öztürk, B., Pawliczka, I., Roos, A., Siebert, U., Skóra, K.E., Víkingsson, G. and Tiedemann, R. (2016). Spatially Explicit Analysis of Genome-Wide SNPs Detects Subtle Population Structure in a Mobile Marine Mammal, the Harbor Porpoise. PLoS One 11:e0162792.
          journals.plos.org/plosone/articleid=10.1371/journal.pone.0162792.
     –      Samarra F.I.P., Deecke V. and Miller P.J.O. (2016). Low-frequency signals produced by Northeast Atlantic killer whales (Orcinus orca). Journal of the Acoustical Society of America, 139: 1149–1157.
2014.
     –      Christiansen F., Víkingsson G.A., Rasmussen M.H., Lusseau D. (2014). Female body condition affects foetal growth in a capital breeding mysticete. Funct Ecol 28:579–588.
          doi.org/10.1111/1365-2435.12200.
     –      Fontaine, M.C., Roland, K., Calves, I., Austerlitz, F., Palstra, F.P., Tolley, K. A., Ryan, S., Ferreira, M., Jauniaux, T., Llavona, A., Öztürk, B., Öztürk, A.A., Ridoux, V., Rogan, E., Sequeira, M., Siebert, U., Víkingsson, G.A., Borrell, A., Michaux, J. R. and Aguilar, A. (2014), Postglacial climate changes and rise of three ecotypes of harbour porpoises, Phocoena phocoena, in western Palearctic waters. Molecular Ecology, 23: 3306–3321. doi: 10.1111/mec.12817.
     –      Foote A.D., Kuningas S. and Samarra F.I.P. (2014). North Atlantic killer whale research: past, present and future. Journal of the Marine Biological Association of the UK 94(6): 1245–1252.
     –      Mäkeläinen, P., Esteban, R., Foote, A.D., Kuningas, S., Nielsen, J., Samarra, F.I., Similä, T., van Geel, N.C., and Víkingsson, G.A. (2014). A comparison of pigmentation features among North Atlantic killer whale (Orcinus orca) populations. J. Mar. Biol. Assoc. U.K. 94, 1335–1341.
         doi:10.1017/S0025315414000277.
     –      Olsen, M.T., Pampoulie, C., Daníelsdóttir, A.K., Lidh, E., Bérubé, M., Víkingsson, G.A., and Palsbøll, P.J. (2014). Fin whale MDH-1 and MPI allozyme variation is not reflected in the corresponding DNA sequences. Ecol. Evol., n/a-n/a. doi:10.1002/ece3.1046.
     –      Quintela M., Skaug H.J., Øien N., Haug T., Seliussen B.B., Solvang H.K., Pampoulie C., Kanda N., Pastene L.A., Glover K.A. (2014). Investigating Population Genetic Structure in a Highly Mobile Marine Organism: The Minke Whale Balaenoptera acutorostrata acutorostrata in the North East Atlantic. PloS One 9:e108640 . doi.org/10.1371/journal.pone.0108640.
     –      Víkingsson, G.A., Elvarsson, B.T., Ólafsdottir, D., Sigurjonsson, J., Chosson, V., and Galan, A. (2014). Recent changes in the diet composition of common minke whales (Balaenoptera acutorostrata) in Icelandic waters. – A consequence of climate change? Marine Biology Research, 10:2, 138–152, DOI: 10.1080/17451000.2013.793812.
2013.
     –      Christiansen F., Víkingsson G.A., Rasmussen M.H., Lusseau D. (2013). Minke whales maximise energy storage on their feeding grounds. J Exp Biol 216:427–436 . doi.org/10.1242/jeb.074518.
     –      Ólafsdóttir D., Shinn A.P. (2013). Epibiotic macrofauna on common minke whales, Balaenoptera acutorostrata Lacépède, 1804, in Icelandic waters. Parasit Vectors 6; 105:1–10.
     –      Rasmussen, M.H., Akamatsu, T., Teilmann, J., Víkingsson, G., and Miller, L.A. (2013). Biosonar, diving and movements of two tagged white-beaked dolphin in Icelandic waters. Deep Sea Res. Part II Top. Stud. Oceanogr. 88, 97–105.
     –      Williams, R., Víkingsson, G.A., Gíslason, A., Lockyer, C., New, L., Thomas, L., and Hammond, P.S. (2013). Evidence for density-dependent changes in body condition and pregnancy rate of North Atlantic fin whales over four decades of varying environmental conditions. ICES J. Mar. Sci. 70, 1273–1280. doi.org/10.1093/icesjms/fst059.
2012.
     –      Foote, A.D., Vester, H., Víkingsson, G.A., and Newton, J. (2012). Dietary variation within and between populations of northeast Atlantic killer whales, Orcinus orca, inferred from .13C and .15N analyses. Mar. Mammal Sci. 28, E472–E485. DOI: 10.1111/j.1748-7692.2012.00563.x.
     –      Gunnlaugsson T. (2012). Some Catch-at-Age Analysis Methods and Models Compared on Simulated Data. Open J Mar Sci 2:16. dx.doi.org/10.4236/ojms.2012.21003
     –      Huber S., Ahrens L., Bårdsen B.-J., Siebert U., Bustnes J.O., Víkingsson G.A., Ebinghaus R., Herzke D. (2012). Temporal trends and spatial differences of perfluoroalkylated substances in livers of harbor porpoise (Phocoena phocoena) populations from Northern Europe, 1991–2008. Sci Total Environ 419:216–224. doi.org/10.1016/j.scitotenv.2011.12.050.
     –      Nielsen N.H., Garde E., Heide-Jørgensen M.P., Lockyer C.H., Ditlevsen S., Ólafsdóttir D., Hansen S.H. (2012). Application of a novel method for age estimation of a baleen whale and a porpoise. Mar Mammal Sci 29: doi.org/10.1111/j.1748-7692.2012.00588.x.
     –      Pampoulie C., Ólafsdóttir G., Hauksdóttir S., Skírnisdóttir S., Ólafsson K., Magnúsdóttir S., Chosson V., Halldórsson S.D., Ólafsdóttir D., Gunnlaugsson T., Daníelsdóttir A.K., Víkingsson G.A. (2012). A note on a mother-foetus pair and alleged father match in the Atlantic fin whale (Balaenoptera physalus) off Iceland. J Cetacean Res Manag 12:341–343.
     –      Rotander, A., van Bavel, B., Polder, A., Rigét, F., Auðunsson, G.A., Gabrielsen, G.W., Víkingsson, G., Bloch, D., and Dam, M. (2012a). Polybrominated diphenyl ethers (PBDEs) in marine mammals from Arctic and North Atlantic regions, 1986–2009. Environ. Int. 40, 102–109.
     –      Rotander, A., van Bavel, B., Rigét, F., Auðunsson, G.A., Polder, A., Gabrielsen, G.W., Víkingsson, G., Mikkelsen, B., and Dam, M. (2012b). Methoxylated polybrominated diphenyl ethers (MeO-PBDEs) are major contributors to the persistent organobromine load in sub-Arctic and Arctic marine mammals, 1986–2009. Sci. Total Environ. 416, 482–489. doi:10.1016/j.scitotenv.2011.12.010.
     –      Rotander, A., van Bavel, B., Rigét, F., Auðunsson, G.A., Polder, A., Gabrielsen, G.W., Víkingsson, G., Mikkelsen, B., and Dam, M. (2012c). Polychlorinated naphthalenes (PCNs) in sub-Arctic and Arctic marine mammals, 1986–2009. Environ. Pollut. 164, 118–124.
     –      Rotander, A., Kärrman, A., Bavel, B. van, Polder, A., Rigét, F., Auðunsson, G.A., Víkingsson, G., Gabrielsen, G.W., Bloch, D., and Dam, M. (2012d). Increasing levels of long-chain perfluorocarboxylic acids (PFCAs) in Arctic and North Atlantic marine mammals, 1984–2009. Chemosphere 86, 278–285.
2011.
     –      Anderwald, P., Daníelsdóttir, A.K., Haug, T., Larsen, F., Lesage, V., Reid, R.J., Víkingsson, G. A., and Hoelzel, A. R. (2011). Possible cryptic stock structure for minke whales in the North Atlantic: Implications for onservation and management. Biological Conservation 144, 2479–2489.
         doi:10.1016/j.biocon.2011.07.002.
     –      Foote A.D., Vilstrup J.T., De Stephanis R., Verborgh P., Abel Nielsen S.C., Deaville R., Kleivane L., Martin V., Miller P.J., Øien N., Pérez-Gil M., Rasmussen M., Reid R.J., Robertson K.M., Rogan E., Similä T., Tejedor M.L., Vester H., Víkingsson G.A., Willerslev E., Gilbert M.T.P., Piertney S.B. (2011). Genetic differentiation among North Atlantic killer whale populations. Mol Ecol 20:629–641. doi.org/10.1111/j.1365-294X.2010.04957.x.
2010.
     –      Foote, A.D., Similae, T., Víkingsson, G.A., and Stevick, P.T. (2010). Movement, site fidelity and connectivity in a top marine predator, the killer whale. Evolutionary Ecology 24, 803–814.
         doi:10.1007/s10682-009-9337-x.
2009.
     –      Borchers, D.L., Pike, D.G., Gunnlaugsson, T., and Víkingsson, G.A. (2009). Minke whale abundance estimation from the NASS 1987 and 2001 aerial cue-counting surveys taking appropriate account of distance estimation errors. NAMMCO Sci. Publ. 7, 95–110.
     –      Brodie, P., and Víkingsson, G. (2009). On the feeding mechanisms of the sei whale (Balaenoptera borealis). J. Northwest Atl. Fish. Sci. 42, 49–54.
     –      Gunnlaugsson, T., Víkingsson, G.A., and Pike, D.G. (2009). Combined line-transect and cue-count estimate of sperm whale abundance in the North Atlantic, from Icelandic NASS-2001 shipboard survey. NAMMCO Sci Publ 7, 73–80.
     –      Olsen, E., Budgell, W.P., Head, E., Kleivane, L., Nøttestad, L., Prieto, R., Silva, M.A., Skov, H., Víkingsson, G.A., and Waring, G. (2009). First Satellite-Tracked Long-Distance Movement of a Sei Whale (Balaenoptera borealis) in the North Atlantic. Aquat. Mamm. 35.
     –      Paxton, C.G.M., Burt, M.L., Hedley, S.L., Víkingsson, G.A., Gunnlaugsson, T., and Desportes, G. (2009). Density surface fitting to estimate the abundance of humpback whales based on the NASS-95 and NASS-2001 aerial and shipboard surveys. NAMMCO Sci Publ 7, 143–159.
     –      Pike, D .G., Gunnlaugsson, T., Víkingsson, G.A., Desportes, G., and Bloch, D. (2009a). Estimates of the abundance of minke whales (Balaenoptera acutorostrata) from Faroese and Icelandic NASS shipboard surveys. NAMMCO Sci. Publ. 7, 81–93.
     –      Pike, D.G., Paxton, C.G.M., Gunnlaugsson, T., and Víkingsson, G.A. (2009b). Trends in the distribution and abundance of cetaceans from aerial surveys in Icelandic coastal waters, 1986–2001. NAMMCO Sci. Publ. 7, 117–142.
     –      Pike, D.G., Víkingsson, G.A., Gunnlaugsson, T., and Øien, N. (2009c). A note on the distribution and abundance of blue whales (Balaenoptera musculus) in the Central and Northeast North Atlantic. NAMMCO Sci. Publ. 7, 19–29. doi.org/10.7557/3.2703
     –      Víkingsson, G.A., Pike, D.G., Desportes, G., Öien, N., Gunnlaugsson, T., and Bloch, D. (2009). Distribution and abundance of fin whales (Balaenoptera physalus) in the Northeast and Central Atlantic as inferred from the North Atlantic Sightings Surveys 1987–2001. NAMMCO Sci. Publ. 7, 49–72. doi.org/10.7557/3.2705.
2008.
     –      Nachtigall, P., Mooney, T., Taylor, K., Miller, L., Rasmussen, M., Akamatsu, T., Teilmann, J., Linnenschmidt, M., and Víkingsson, G. (2008). Shipboard measurements of the hearing of the white-beaked dolphin Lagenorhynchus albirostris. J. Exp. Biol. 211, 642–647.
     –      Skov, H., Gunnlaugsson, T., Budgell, W.P., Horne, J., Nottestad, L., Olsen, E., Soiland, H., Víkingsson, G., and Waring, G. (2008). Small-scale spatial variability of sperm and sei whales in relation to oceanographic and topographic features along the Mid-Atlantic Ridge. Deep Sea Res. Part II Top. Stud. Oceanogr. 55, 254–268. doi:10.1016/j.dsr2.2007.09.020.
     –      Waring G.T., Nøttestad L., Olsen E., Skov H., Víkingsson G.A. (2008). Distribution and density estimates of cetaceans along the mid-Atlantic Ridge during summer 2004. J Cetacean Res Manage 10:137–146.
2007.
     –      Fontaine, M.C., Baird, S.J., Piry, S., Ray, N., Tolley, K.A., Duke, S., Birkun, A., Ferreira, M., Jauniaux, T., Llavona, Á., Öztürk, B., Öztürk, A.A., Ridoux, V., Rogan, E., Sequeira, M., Siebert, U., Víkingsson, G.A., Bouquegneau, J.M. and Michaux, J.R. (2007), Rise of oceanographic barriers in continuous populations of a cetacean: the genetic structure of harbour porpoises. Bmc Biol 5:30.
          doi.org/10.1186/1741-7007-5-30.
     –      Mehta A.V., Allen J.M., Constantine R., Garrigue C., Jann B., Jenner C., Marx M.K., Matkin C.O., Mattila D.K., Minton G., Mizroch S.A., Olavarria C., Robbins J., Russell K.G., Seton R.E., Steiger G.H., Víkingsson G.A., Wade P.R., Witteveen B.H., Clapham P.J. (2007). Baleen whales are not important as prey for killer whales Orcinus orca in high-latitude regions. Mar Ecol-Prog Ser 348:297–307. doi.org/10.3354/meps07015.
2006.
     –      Das, K., Vossen, A., Tolley, K., Víkingsson, G., Thron, K., Müller, G., Baumgärtner, W., and Siebert, U. (2006). Interfollicular fibrosis in the thyroid of the harbour porpoise: an endocrine disruption? Arch. Environ. Contam. Toxicol. 51, 720–729.
     –      Kjeld M., Ólafsson Ö., Víkingsson G.A., Sigurjónsson J. (2006). Sex hormones and reproductive status of the North Atlantic fin whales (Balaenoptera physalus) during the feeding season. Aquat Mamm 32:7.
     –      Siebert, U., Tolley, K., Víkingsson, G.A., Ólafsdóttir, D., Lehnert, K., Weiss, R., and Baumgärtner, W. (2006). Pathological Findings in Harbour Porpoises (Phocoena phocoena) from Norwegian and Icelandic Waters. J. Comp. Pathol. 134, 134–142. doi:10.1016/j.jcpa.2005.09.002.
     –      Stevick P., Allen J., Clapham P., Katona S., Larsen F., Lien J., Mattila D., Palsbøll P., Sears R., Sigurjónsson J., Smith T.D., Víkingsson G., Øien N., Hammond P.S. (2006). Population spatial structuring on the feeding grounds in North Atlantic humpback whales (Megaptera novaeangliae). J Zool 270: 244–25.


Kostnaður á hvert verkefni eftir árum. Nokkur verkefni voru sameinuð undir tvö verkefnisnúmer árin 2019 og 2020.


2007 2008 2009 2010 2011 2012 2013 2014 2015 2016 2017 2018 2019 2020
28.02 Hvalatalningar TNASS-2007 86 4,8 4,4 3,8 4 2,1 150,5 28,5 5,7
28.05 IWC 7 7,7 13,8 9,6 8,1 10,4 13,1 10,4 10,6 12,3 10 8,3
28.06 Talningar í öðrum leiðöngrum 7
28.10 Atferli hnýðings við Ísland 6 1,3
28.21 Hvalakomur og hvalrekar við strendur Íslands 1 1,2 5,8 2 1,5 1,5 2 3 3,2 1,3 2,2
28.22 Gagnasöfnun í hvalaskoðunarferðum 2 2,1 2,5
28.07 Hrefnurannsóknir 65 21 27,7 19,2 17,9 24,2 17,9 7,4 6 8,3 11 8,6
27.55 Stofngerð langreyðar í Norður-Atlantshafi 5,2
28.14 Gagnasöfnun úr hrefnuveiðum 8 4,7 6,8 6 4,9 6
28.19 Gagnasöfnun úr langreyðarveiðum 23,2 17,3 25,3 29,6 21
28.28 Erfðasýni úr meðafla sjávarspendýra 1,9 0,6 2,7 0 1,6 1,7 4 3 4 5,8
28.01 NAMMCO 5,2 8,3 7,1 7,8 7,5 5,7 6,7 6,8 6,7 4,6 7,2
28.04 Gagnabanki hvalamynda 2,4 4,1 3,6 7,5 8 5,3 6,7 5,5 4,8 6,5
28.20 DNA-sýni og gagnabanki hvalaafurða 9,2 9,2 9,2 9,2 9,6 2,6 3,5 3,8
28.19 Gagnasöfnun úr atvinnuveiðum hvala 4,1 16 19,3 23,4 0 29,5
28.17 Meðafli sjávarspendýra 3,9 3,5 13,1
Líffræði og vistfræði hvala 42,5 51,7
Stofnstærð hvala 32,1 33,1
Samtals 174 49,7 60,5 72 71,8 88,1 93,8 56,9 231 105,9 87,7 70,1 78,6 90,6