Ferill 74. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


151. löggjafarþing 2020–2021.
Þingskjal 246  —  74. mál.




Svar


sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra við fyrirspurn frá Ingu Sæland um rannsóknir á skeldýrum.


     1.      Hversu miklum fjármunum varði Hafrannsóknastofnun árlega til skeldýrarannsókna á árunum 2015–2020?
    Leitað var upplýsinga hjá Hafrannsóknastofnun og byggjast svörin á þeim upplýsingum.
Rannsóknir og vöktun á nytjastofnum, þ.m.t. á skeldýrum, er stór þáttur í starfsemi Hafrannsóknastofnunar á hverju ári. Spurningunni er svarað út frá nytjastofnum skeldýra, þ.e. hörpudisk, kúfskel, kræklingi og beitukóngi.
    Stofnmælingaleiðangrar á hörpudisk eru aðgreindir í verkbókhaldi Hafrannsóknastofnunar en í þeim er einnig safnað upplýsingum um aðra þætti vistkerfisins. Gögn sem safnað er sem hluta af vöktun, t.d. í stofnmælingum og afla, eru þannig nýtt til mats á afrakstursgetu hörpudisks en nýtast jafnframt til grunnrannsókna á líffræði, vistfræði, erfðafræði hörpudisks sem og til vísindarannsókna á veiðistjórnarkerfum. Ekki var farið í eiginlega rannsóknarleiðangra til könnunar á beitukóngi eða kúfskel á tímabilinu 2015–2020.
    Miðað við uppbyggingu verkefnabókhalds Hafrannsóknastofnunar er ekki hægt að svara með beinum hætti hversu miklum fjármunum var varið til skeldýrarannsókna á árunum 2015–2020.

     2.      Hvaða verkefni sem lúta að rannsóknum á skeldýrum hafa verið unnin á þessu árabili og hve miklir fjármunir voru veittir í hvert verkefni?
    Líkt og kemur fram í svari við 1. tölul. fyrirspurnarinnar er uppbygging verkefnabókhalds Hafrannsóknastofnunar ekki þannig að hægt sé að svara með beinum hætti hversu miklum fjármunum var varið til skeldýrarannsókna. Hér á eftir eru talin upp þau verkefni sem unnið var að á árunum 2015–2020 og voru hluti af vöktun og rannsóknum á skeldýrum ásamt árlegri kostnaðaráætlun stofnunarinnar.

Verkefni           Markmið Kostnaður
Hörpuskel           Mat á veiðiþoli hörpudisks í Breiðafirði 2016: 13.980.000
2017: 14.298.000
2018: 14.300.000
2019: 15.315.000
2020: 14.690.000
Rannsóknir á hryggleysingjum      Grunnrannsóknir á líffræði og vistfræði hryggleysingja , þ.m.t. á kræklingi, kúfskel , hörpudisk og beitukóngi 2018: 30.624.020
2019: 19.700.000
2020: 17.125.000

     3.      Hversu margar ritrýndar greinar um skeldýr eftir sérfræðinga Hafrannsóknastofnunar hafa birst í alþjóðlegum vísindaritum á framangreindu árabili, hver er titill greinanna og hvar birtust þær?
    Á árunum 2015 til og með 2020 birtist ein ritrýnd grein í alþjóðlegum tímaritum um skeldýr (beitukóng). Tilvísun í greinina er hér:
    Woods P., and Jonasson, J.P. (2017). Bayesian hierarchical surplus production model of the common whelk Buccinum undatum in Icelandic waters. Fisheries Research 194, 117–128.