Ferill 243. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
151. löggjafarþing 2020–2021.
Þingskjal 263 — 243. mál.
Tillaga til þingsályktunar
um verndun og varðveislu skipa og báta.
Flm.: Sigurður Páll Jónsson, Anna Kolbrún Árnadóttir, Ásmundur Friðriksson, Bergþór Ólason, Birgir Þórarinsson, Gunnar Bragi Sveinsson, Halla Signý Kristjánsdóttir, Karl Gauti Hjaltason, Lilja Rafney Magnúsdóttir, Ólafur Ísleifsson, Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, Þorgerður K. Gunnarsdóttir, Þorsteinn Sæmundsson.
Alþingi ályktar að fela mennta- og menningarmálaráðherra að skipa starfshóp sem geri úttekt á því hvernig staðið er að verndun og varðveislu skipa og báta og geri tillögur að úrbótum. Starfshópurinn taki m.a. saman yfirlit yfir skip og báta sem hafa menningarlegt og atvinnusögulegt gildi, óháð aldri, og endurskoði aldursmörk skipa og báta samkvæmt lögum um menningarminjar, nr. 80/2012. Í starfshópnum eigi sæti fulltrúar frá félagasamtökum er sinna verndun skipa og báta, fulltrúar frá greinum sjávarútvegsins og fulltrúar héraðssafna auk fulltrúa mennta- og menningarmálaráðuneytisins, Þjóðminjasafns Íslands og Minjastofnunar Íslands. Starfshópnum verði jafnframt falið að finna fjárstreymis- eða fjáröflunarleiðir til verkefnisins og móta reglur um meðhöndlun fjármagnsins. Starfshópurinn skili úttekt sinni og tillögum til mennta- og menningarmálaráðherra innan árs frá samþykkt tillögu þessarar. Ráðherra kynni Alþingi niðurstöður starfshópsins.
Greinargerð.
Í umræðum um fyrirspurn Kolbrúnar Halldórsdóttur um undirbúning tillagna um hvernig staðið skuli að varðveislu gamalla skipa og báta sem hafa menningarsögulegt gildi, sbr. ályktun Alþingis frá 9. maí 2000 (428. mál á 131. löggjafarþingi), kom fram að skipuð hefði verið nefnd sem lagt hefði fram tillögur sínar í minnisblaði árið 2002. Þá kom einnig fram að tillögurnar hefðu verið til sérstakrar skoðunar ráðherra og að fram ætti að fara endurskoðun á þjóðminjalögum, nr. 107/2001.
Lög um menningarminjar, nr. 80/2012, leystu m.a. af hólmi þjóðminjalögin. Megintilgangur laganna er að stuðla að verndun menningarminja og auka skilvirkni minjavörslu í landinu. Samkvæmt 3. gr. laganna teljast skip og bátar til forngripa, þ.e. lausra minja og eru aldursmörk skipa og báta sem teljast til forngripa sett við ártalið 1950. Þá teljast fornleifar hvers kyns mannvistarleifar, á landi, í jörðu, í jökli, sjó eða vatni, sem menn hafa gert eða mannaverk eru á og eru 100 ára og eldri, svo sem bátalægi, sbr. d-lið 3. mgr. 3. gr. laganna, eða skipsflök, sbr. i-lið sama ákvæðis. Til byggingararfs teljast hins vegar hús og önnur mannvirki og einstakir hlutar þeirra sem hafa menningarsögulegt, vísindalegt eða listrænt gildi, sbr. 4. gr. laganna.
Hérlendis hafa verið smíðuð fjölmörg skip og bátar. Mikilvægt er að viðhalda þekkingu á smíði gamalla báta og skipa, enn fremur hefur það menntunargildi. Þannig væri hægt að nýta gömul skip við fræðslu ungmenna og nýta uppgerð skip til kennslu. Þá hafa fjölmörg samtök og áhugafélög tekið að sér að viðhalda skipum og bátum og má telja að án aðstoðar þeirra hefði skipum og bátum, sem í eru fólgin menningarverðmæti og arfleifð handverks, verið eytt. Að mati flutningsmanna er mikilvægt að veita þessum samtökum stuðning.
Tilgangur tillögu þessarar er að gera úttekt á því hvernig staðið hefur verið að verndun og varðveislu skipa og báta, m.a. með hliðsjón af lögum um menningarminjar, auk þess að taka saman yfirlit yfir skip og báta sem talin eru hafa menningarlegt og atvinnusögulegt gildi, óháð aldri, í þeim tilgangi að fá heildarmynd af stöðunni. Þá er jafnframt gert ráð fyrir því að starfshópurinn geri tillögur að úrbótum. Mikilvægt er að starfshópurinn hafi til hliðsjónar hvort tilefni sé til að verndun skipa og báta sem hafa varðveislugildi verði sambærileg og verndun byggingararfs. Jafnframt skoði starfshópurinn hvort falla eigi frá því að miða aldursmörk við ártal, sbr. 2. mgr. 3. gr. laga um menningarminjar, og þess í stað verði frekar miðað við aldur.