Ferill 12. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


151. löggjafarþing 2020–2021.
Þingskjal 338  —  12. mál.
2. umræða.



Nefndarálit með breytingartillögu


um frumvarp til laga um breytingu á lögum um merkingar og upplýsingaskyldu varðandi vörur sem tengjast orkunotkun, nr. 72/1994, með síðari breytingum (orkumerkingar).

Frá atvinnuveganefnd.


    Nefndin hefur fjallað um málið og fengið á sinn fund Ingva Má Pálsson og Erlu Sigríði Gestsdóttur frá atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneyti, Lárus M. K. Ólafsson frá Samtökum iðnaðarins og Margréti Ósk Óskarsdóttur og Ragnhildi Sif Hafstein frá Húsnæðis- og mannvirkjastofnun.
    Nefndinni bárust umsagnir frá Húsnæðis- og mannvirkjastofnun og sameiginleg umsögn frá Samtökum iðnaðarins og SVÞ – Samtökum verslunar og þjónustu.
    Í frumvarpinu eru lagðar til breytingar á lögum um merkingar og upplýsingaskyldu varðandi orkunotkun heimilistækja o.fl., nr. 72/1994. Lögin eru rammalöggjöf, upphaflega sett til innleiðingar á tilskipun 92/75/EB, og síðar breytt til að innleiða breytingar á henni með tilskipun 2010/30/ESB. Á grundvelli hennar hefur fjöldi reglugerða um merkingar og upplýsingaskyldu varðandi orkunotkun einstakra vörutegunda verið settur. Með frumvarpi þessu er hins vegar innleidd ný reglugerð (ESB) 2017/1369 sem kemur í stað tilskipunar 2010/30/ESB. Markmið reglugerðarinnar er að upplýsa neytendur um orkunotkun vöru og að samræmdar upplýsingar liggi fyrir sem geri neytendum kleift að taka upplýsta ákvörðun um kaup á vörum. Samþykkt frumvarpsins kallar á aukna upplýsingagjöf seljenda og birgðasala sem framleiða, selja eða flytja inn vörur sem tengjast orkunotkun. Um markmið og efni frumvarpsins vísast að öðru leyti til greinargerðar með því.
    Þær umsagnir sem nefndinni bárust vegna málsins voru jákvæðar. Með samþykkt frumvarpsins verður markaðseftirlit með vörum á markaði einfaldara með aukinni yfirsýn yfir vörur sem settar eru á markað í því skyni að ná fram auknum orkusparnaði og þar með draga úr neikvæðum umhverfisáhrifum. Þá er bent á að sú reglugerð sem lagt er til að innleiða sé hluti af aðgerðum Evrópusambandsins til að ná markmiðum þess um að draga úr losun gróðurhúsalofttegunda. Staða Íslands í orkumálum sé hins vegar gjörólík stöðu flestra ríkja sem eru aðilar að EES-samningnum þar sem hlutfall endurnýjanlegra orkugjafa hér er mun hærra en almennt gengur og gerist.
    Fyrir nefndinni kom fram að skylda til skráningar upplýsinga um orkunotkun í miðlægan vörugagnagrunn þegar framleitt er eða flutt inn á innri markað Evrópska efnahagssvæðisins sem eigi að auðvelda neytendum samanburð sé ekki talin íþyngjandi fyrir íslensk fyrirtæki sem eru að jafnaði seljendur en ekki birgðasalar. Þá eigi nýr sameiginlegur kvarði, A–G, fyrir orkunotkun tiltekinna flokka rafmagnstækja og ljósgjafa að vera til bóta fyrir neytendur þar sem eldri kvarði (A++) hafi ekki þótt nógu skýr. Þá var bent á að raforkuþörf Íslendinga er nær alveg uppfyllt með raforku frá endurnýjanlegum orkugjöfum, ólíkt því sem gerist hjá ríkjum Evrópusambandsins. Jafnframt kom fram fyrir nefndinni að gert er ráð fyrir að merkingar verði myndrænar en að hægt verði að sækja ítarlegri leiðbeiningar í vörugagnagrunninn. Nefndin telur mikilvægt að þær leiðbeiningar verði aðgengilegar á íslensku.
    Nefndin telur jákvætt að fyrir liggi samræmdar og aðgengilegar upplýsingar um orkunotkun og aðra notkunareiginleika sem geri neytendum kleift að taka upplýsta ákvörðun um kaup líkt og stefnt er að með þessu frumvarpi.
    Að þessu virtu leggur nefndin til að frumvarpið verði samþykkt með eftirfarandi

BREYTINGU:


     1.      Við 3. gr.
                  a.      Efnismálsliður c-liðar orðist svo: Vara eða kerfi sem hefur áhrif á orkunotkun meðan á notkun stendur og sett er á markað eða tekin í notkun, þ.m.t. bæði hlutir sem settir eru á markað eða teknir eru í notkun fyrir viðskiptavini og hafa áhrif á orkunotkun meðan á notkun stendur, og hlutir sem ætlunin er að setja í vörur.
                  b.      Orðið „Myndræn“ í 4. tölul. d-liðar falli brott.
                  c.      Efnismálsliður 6. tölul. d-liðar orðist svo: Hlutfall á milli afkasta, þjónustu, vöru eða orkuframleiðslu og þeirrar orku sem til þarf.
     2.      Í stað orðanna „sem eru ekki vörur sem tengjast“ í d-lið 5. gr. komi: ótengdar.

Alþingi, 12. nóvember 2020.

Lilja Rafney Magnúsdóttir,
form.
Ásmundur Friðriksson, frsm. Albertína Friðbjörg Elíasdóttir.
Halla Signý Kristjánsdóttir. Haraldur Benediktsson. Helgi Hrafn Gunnarsson.
Njáll Trausti Friðbertsson. Ólafur Ísleifsson. Sigurður Páll Jónsson.