Ferill 309. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


151. löggjafarþing 2020–2021.
Þingskjal 345  —  309. mál.




Fyrirspurn


til utanríkis- og þróunarsamvinnuráðherra um netnjósnir bandarísku þjóðaröryggisstofnunarinnar.

Frá Andrési Inga Jónssyni.


     1.      Hvernig hefur ráðuneytið brugðist við uppljóstrun þess efnis að bandaríska þjóðaröryggisstofnunin hafi nýtt aðgang sinn að dönsku fjarskiptaneti til að njósna um stofnanir og fyrirtæki í Danmörku og nágrannalöndum, í ljósi þess að báðir gagnasæstrengirnir sem tengja Ísland við Evrópu liggja um danskt yfirráðasvæði?
     2.      Hyggst ráðuneytið taka málið upp á tvíhliða fundum með dönskum og bandarískum stjórnvöldum eða á vettvangi NATO?


Skriflegt svar óskast.