Ferill 325. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
151. löggjafarþing 2020–2021.
Þingskjal 379 — 325. mál.
Fyrirspurn
til ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra um stafrænar smiðjur.
Frá Silju Dögg Gunnarsdóttur.
1. Hver er framtíðarsýn ráðherra varðandi mótun umgjarðar um stafrænar smiðjur (FabLab-smiðjur) í kjölfar þess að Nýsköpunarmiðstöð Íslands verður lögð niður?
2. Hvaða stofnanir munu sinna verkefnum sem varða rekstur og þróun stafrænna smiðja á Íslandi og hvaða verkefnum mun hver stofnun sinna?
3. Hversu miklu fjármagni verður úthlutað til stafrænna smiðja í heild samkvæmt núverandi áætlun og hversu miklu til hvers verkefnis um sig?
4. Hversu lengi verður rekstur hverrar stafrænnar smiðju um sig tryggður samkvæmt núverandi áætlun?
Skriflegt svar óskast.