Ferill 263. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


151. löggjafarþing 2020–2021.
Þingskjal 447  —  263. mál.




Svar


heilbrigðisráðherra við fyrirspurn frá Söru Elísu Þórðardóttur um meðferðarúrræði og biðlista á Vogi.


     1.      Hversu margir létust meðan þeir voru á biðlista eftir rými á sjúkrahúsinu Vogi á árunum 2018–2020? Svar óskast sundurliðað eftir árum.
    Hluti einstaklinga sem er á biðlista eftir innlagnarþjónustu á Vog skráir sig sjálfur á biðlistann án undangengins faglegs mats á því hvort innlagnarþjónusta sé það þjónustuúrræði sem hentar viðkomandi best. Um þriðjungur þeirra sem skrá sig á biðlistann nýtir ekki þjónustuna þegar hún býðst. Ekki liggja fyrir upplýsingar um orsakir andláts fólks þegar það deyr meðan það bíður þannig að ekki er hægt að draga þá ályktun að biðin hafi orsakað andlátið. Eftirfarandi tafla sýnir fjölda beiðna um innlögn, innlagnir og fjölda einstaklinga sem lést á biðlista á árunum 2018–2020.


Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.



     2.      Hver eru kynjahlutföll þeirra sem eru nú á biðlista eftir rými á sjúkrahúsinu Vogi?
    9. nóvember 2020 voru 518 einstaklingar á biðlistanum á Vogi. Af þeim voru 163 konur, eða 31%, og 355 karlar, eða 69%.

     3.      Hversu margir þeirra sem voru á biðlista eftir rými á Vogi árin 2018–2020 skiluðu sér í meðferð að lokinni bið? Svar óskast sundurliðað eftir árum.
    Eins og fram kom í svari við 1. tölul. fyrirspurnarinnar hefur hluti þeirra einstaklinga sem er á biðlista eftir innlagnarþjónustu á Vogi sjálfur skráð sig á hann, án undangengins faglegs mats á því hvort viðkomandi þurfi á innlagnarþjónustu að halda. Um þriðjungur þeirra sem eru skráðir á biðlista eftir þjónustu á Vogi ákveður síðan að nýta ekki þjónustuna af ýmsum ástæðum.
    Þau ár sem hér er spurt um komu 62–65% þeirra sem voru á biðlistanum í meðferð en fjöldi innlagna þessi þrjú ár var 2.137–2.275 á ári. Aðrir ýmist afþökkuðu innlögn (14–15%), mættu ekki (15%) eða náðist ekki í (6%). Hlutföllin voru svipuð öll árin.

     4.      Hver er staða stefnumótunar um meðferð við áfengis- og vímuefnafíkn og um meðferðarúrræði fyrir fólk með fíknivanda?
    Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin (WHO) er sérhæfð stofnun innan Sameinuðu þjóðanna, sem Ísland er aðili að. Árið 2010 setti WHO fram áætlun um hvernig mætti minnka skaðlega notkun áfengis á heimsvísu og árið 2018 gaf WHO út aðgerðaáætlun með fimm áhersluþáttum fyrir stjórnvöld til að draga úr skaðlegum áhrifum áfengis. Heilbrigðisstefna til ársins 2030 var samþykkt á Alþingi 3. júní 2019 og er ætlunin að aðrar áherslur/stefnur í sértækum málaflokkum innan heilbrigðisþjónustunnar falli að grunnþáttum þeirrar stefnu og hafi samhljóm við hana.
    Í desember 2013 gaf velferðarráðuneytið út stefnu í áfengis- og vímuvörnum til ársins 2020. Í stefnunni voru sett fram sex yfirmarkmið sem embætti landlæknis hefur haft hliðsjón af varðandi forvarnir og heilsueflingu. Nú er hafinn undirbúningur að þingsályktun um lýðheilsustefnu sem áherslur í áfengis- og vímuvörnum falla undir. Lagt er upp með að hún taki mið af nýsamþykktri heilbrigðisstefnu ásamt öðrum alþjóðlegum stefnum í þessum málaflokki sem Ísland er aðili að.
    Einnig er rétt að geta þess að færð hafa verið rök fyrir því að mikilvægt sé að efla nám áfengis- og vímuefnaráðgjafa til að vernda hagsmuni og auka öryggi viðkomandi einstaklinga sem þjónustuna fá. Vinna við undirbúning þess að færa námið upp á háskólastig og gera það að fagháskólanámi (diplóma) er þegar hafin.

     5.      Telur ráðherra að framboð meðferðarúrræða sé nægilega fjölbreytt?
    Ýmis meðferðarúrræði eru í boði fyrir börn og fullorðna með neyslu- og fíknivanda. Á Landspítala eru legurými fyrir einstaklinga með tvíþættan vanda, þ.e. alvarlegan geðrænan vanda auk fíknivanda. Einnig er rekin öflug dagdeildar- og göngudeildarþjónusta á spítalanum. Fyrr á þessu ári var auk þess opnuð afeitrunardeild fyrir ungmenni á spítalanum. Sjúkrahúsið á Akureyri er ekki með innlagnarþjónustu, en sinnir bráðatilfellum og einstaklingum með tvígreiningu. Þá sinnir heilsugæslan fólki með vanda vegna neyslu áfengis eða annarra vímuefna. Geðheilsuteymi fangelsanna veitir einnig meðferð við neyslu- og fíknivanda.
    Á vegum Samtaka áhugafólks um áfengis- og vímuefnavanda (SÁÁ) er veitt heilbrigðisþjónusta, endurhæfing og fræðsla vegna neyslu- og fíknivanda fyrir skjólstæðinga og fjölskyldur þeirra. Sjúkrahúsið Vogur býður upp á ýmsa þjónustu. Eftirmeðferðarstöðin Vík tekur við skjólstæðingum eftir dvöl á Vogi. Á göngudeildum SÁÁ er veitt fjölbreytt starfsemi, þar á meðal fræðsla, ráðgjöf, sálfræðiþjónusta fyrir börn foreldra með fíknivanda og fjölskyldumeðferð. Í samvinnu við Reykjavíkurborg rekur SÁÁ einnig sambýlið Vin í Reykjavík fyrir fólk með fíknivanda sem þarf á langtímastuðningi að halda að meðferð lokinni.
    Önnur úrræði heyra undir eftirlit félagsmálaráðuneytis, þar með talið Hlaðgerðarkot, meðferðarheimilið í Krýsuvík, Stuðlar og meðferðarheimili á vegum Barnaverndarstofu.
    Stöðug þróun er í heilbrigðisvísindum og þar af leiðandi í heilbrigðisþjónustu. Ljóst er að framboð af meðferð við neyslu- og fíknivanda þarf að vera fjölbreytt svo hægt sé að mæta þörfum sem flestra. Fyrirséð er því að heilbrigðisþjónusta fyrir fólk með neyslu- og fíknivanda haldi áfram að þróast í takt við áframhaldandi þróun þekkingar í málaflokknum.

     6.      Hver er afstaða ráðherra gagnvart því að rekin verði ríkisrekin afvötnunarstöð? Hafa einhver skref verið tekin í þá átt að slíkri stöð verði komið á fót?
    Ekki hefur verið tekin ákvörðun um eða skoðað sérstaklega að koma á fót slíkri ríkisrekinni afvötnunarstöð. Rétt er þó að nefna, sbr. svar við 5. tölul. fyrirspurnarinnar, að í vor var opnuð á Landspítala sérstök afeitrunardeild fyrir ungmenni. Sú deild heyrir undir fíknigeðdeild Landspítala og er þar veitt fjölskyldumiðuð þjónusta fyrir ungmenni með alvarlegan fíknivanda. Megináherslan í þjónustu við fólk með neyslu- og fíknivanda er að hún byggist á gagnreyndum aðferðum, sé heildstæð og þróist miðað við bestu þekkingu hverju sinni og mæti þörfum einstaklinganna og fjölskyldna þeirra eins vel og unnt er.
    Ráðherra hefur lagt mikla áherslu á aukið samstarf milli þeirra sem veita þjónustu af þessu tagi, ekki síst milli meðferðaraðila og heilsugæslunnar.