Ferill 69. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


151. löggjafarþing 2020–2021.
Þingskjal 449  —  69.
mál.



Svar


sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra við fyrirspurn frá Ingu Sæland um laxa- og fiskilús.


     1.      Hefur Matvælastofnun fengið tilkynningu frá dýralækni um tilvik laxa- og fiskilúsar, í samræmi við reglugerð um tilkynningar- og skráningarskylda dýrasjúkdóma, á tímabilinu frá 1. janúar 2019 til 30. september 2020?
    Öll eldisfyrirtæki sem stunda laxeldi í sjókvíum hér við land hafa gert þjónustusamning við starfandi dýralækna sem í samráði við gæðateymi stöðvanna fylgjast reglubundið með viðgangi og þróun laxa- og fiskilúsar á hverju sjókvíaeldissvæði fyrir sig. Á grunni slíks eftirlits hefur Matvælastofnun í nokkur skipti borist tilkynning um frávik í fjölda lúsa, bæði 2019 og 2020. Slíkar tilkynningar eru ávallt bornar undir fisksjúkdómanefnd sem tekur þær til faglegrar skoðunar og metur hvort og hvernig skuli brugðist við. Árið 2019 bárust alls átta slíkar tilkynningar og það sem af er árinu 2020 hafa sex tilkynningar borist, allar frá Vestfjörðum.

     2.      Hefur lyfjum eða eitri gegn laxalús verið beitt í sjókvíaeldi hér við land frá 1. janúar 2019 til 30. september 2020? Ef svo er, hversu oft, hvenær, hvar, hjá hvaða fyrirtæki, hvaða lyfjum og/eða eitri var beitt og hvert var magn lyfsins eða eitursins sem beitt var í hverju tilviki fyrir sig?
    Eftir umfjöllun og jákvæða umsögn fisksjúkdómanefndar veitti Matvælastofnun eina heimild til lyfjameðhöndlunar gegn laxalús árið 2019. Sama ár var í sex skipti veitt heimild til meðhöndlunar gegn fiskilús. Það sem af er árinu 2020 hefur Matvælastofnun einnig veitt eina heimild til lyfjameðhöndlunar gegn laxalús og í þrjú skipti gegn fiskilús. Í töflum hér að aftan er betur gerð grein fyrir lyfjameðhöndlunum, annars vegar hjá Arnarlaxi hf. (sem einnig er eigandi Fjarðalax hf.) og hins vegar hjá Arctic Sea Farm hf. Slík meðhöndlun hefur ekki komið til álita hjá öðrum fiskeldisfyrirtækjum.

Tafla 1. Aflúsanir 2019 og 2020 hjá Arnarlaxi/Fjarðalaxi.
Fyrirtæki 2019 Magn lyfs (kg) 2020 Magn lyfs (kg)
Arnarlax/ Fjarðalax Október: Tjaldanes, Arnarfirði (Fiskilús) 0,42 Júní: Tjaldanes, Arnarfirði (Laxalús) 0,4
Október: Laugardalur, Tálknafirði (Fiskilús) 0,35 Nóvember: Steinanes, Arnarfirði (Fiskilús) 0,61
Október: Eyri, Patreksfirði (Fiskilús) 2,1 Nóvember: Laugardalur, Tálknafirði (Fiskilús) 0,4
Nóvember: Hringsdalur, Arnarfirði (Fiskilús) 0,2
Alpha Max (Deltametrin) Alls virkt lyf: 0,2 Alls virkt lyf: 0,4
Slice (Emamectin benzoate) Alls virkt lyf: 2,87 Alls virkt lyf: 1,01

Tafla 2. Aflúsanir 2019 og 2020 hjá Arctic Sea Farm.
Fyrirtæki 2019 Magn lyfs (kg) 2020 Magn lyfs (kg)
Arctic Sea Farm Nóvember: Kvígindisdalur, Patreksfirði (Fiskilús) 0,43 Október: Haukadalsbót og Gemlufall, Dýrafirði (Fiskilús) 0,5
Nóvember: Hvannadalur, Tálknafirði (Fiskilús) 0,1
Nóvember: Eyrarhlíð, Dýrafirði (Laxalús) 0,36
Alpha Max (Deltametrin) Alls virkt lyf: 0,36
Slice (Emamectin benzoate) Alls virkt lyf: 0,53 Alls virkt lyf: 0,5