Ferill 249. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


151. löggjafarþing 2020–2021.
Þingskjal 472  —  249. mál.




Svar


samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra við fyrirspurn frá Ásmundi Friðrikssyni um kvótaflóttamenn og umsækjendur um alþjóðlega vernd.


     1.      Hver var kostnaður stofnana sem heyra beint undir ráðuneytið vegna kvótaflóttamanna og umsækjenda um alþjóðlega vernd á árunum 2018–2020?
    Sex stofnanir heyra beint undir samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytið: Byggðastofnun, Póst- og fjarskiptastofnun, rannsóknarnefnd samgönguslysa, Samgöngustofa, Vegagerðin og Þjóðskrá Íslands. Engin þeirra hefur borið kostnað á tímabilinu vegna kvótaflóttamanna og umsækjenda um alþjóðlega vernd, skv. upplýsingum frá þeim.

     2.      Hver var kostnaður ráðuneytisins vegna þjónustusamnings við Rauða kross Íslands á tímabilinu?
    Ráðuneytið hefur ekki gert þjónustusamning við Rauða kross Íslands og kostnaður því enginn á tímabilinu.

     3.      Hver var kostnaður ráðuneytisins vegna samninga við sveitarfélög um móttöku kvótaflóttamanna og umsækjenda um alþjóðlega vernd á tímabilinu?
    Ráðuneytið hefur ekki gert samninga við sveitarfélög um móttöku kvótaflóttamanna og umsækjenda um alþjóðlega vernd og kostnaður því enginn á tímabilinu.

     4.      Hver var annar kostnaður ráðuneytisins vegna kvótaflóttamanna og umsækjenda um alþjóðlega vernd á tímabilinu?
    Ráðuneytið hefur engan kostnað borið vegna kvótaflóttamanna og umsækjenda um alþjóðlega vernd á tímabilinu.