Ferill 64. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


151. löggjafarþing 2020–2021.
Þingskjal 476  —  64. mál.




Svar


sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra við fyrirspurn frá Ingu Sæland um úthlutun byggðakvóta.


    Fyrirspurnin hljóðar svo:
    Hvernig skiptist úthlutun byggðakvóta skv. 4. mgr. 10. gr. laga um stjórn fiskveiða, nr. 116/2006, til byggðarlaga og skipa, sundurliðað eftir fiskveiðiárum tímabilið 2013/2014– 2019/2020? Óskað er eftir að í svarinu komi fram:
     a.      Skráningarnúmer, nafn, einkennisstafir, heimahöfn, stærð, útgerðarflokkur og eigandi skips.
     b.      Úthlutað aflamark, úthlutaður byggðakvóti, magn heimilda sem fluttar hafa verið frá skipi til skips í eigu annars aðila, afli og landaður afli í byggðarlagi sem tilheyrir byggðakvótaúthlutun skipsins. Fyrir fiskveiðiárin 2016/2017–2019/2020 taki svarið til þorsks, ýsu, ufsa, steinbíts, gullkarfa, keilu og löngu í þorskígildum en fyrir fiskveiðárin 2013/2014–2015/2016 taki svarið til þorsks, ýsu, ufsa og steinbíts í þorskígildum.


    Ráðuneytið leitaði til Fiskistofu varðandi þær upplýsingar sem óskað er eftir í fyrirspurninni. Í svari Fiskistofu kom fram að umbeðnar upplýsingar eru aðgengilegar á vefsvæði stofnunarinnar. Í fylgiskjali eru þær upplýsingar sem óskað er eftir í a- og b-liðum fyrirspurnarinnar.

Fylgiskjal.


Úthlutun byggðakvóta til byggðarlaga og skipa,
sundurliðað eftir fiskveiðiárum 2013/2014– 2019/2020.



www.althingi.is/altext/pdf/151/fylgiskjol/s0476-f_I.pdf