Ferill 5. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
151. löggjafarþing 2020–2021.
Þingskjal 479 — 5. mál.
2. umræða.
Breytingartillaga
við frumvarp til laga um breytingu á ýmsum lögum vegna fjárlaga fyrir árið 2021.
Frá Birgi Þórarinssyni.
1. gr. orðist svo:
Við lögin bætist nýtt ákvæði til bráðabirgða, svohljóðandi:
Ráðherra skal endurskoða fjárhæð og tilhögun kolefnisgjalds skv. I. kafla með hliðsjón af skýrslu Hagfræðistofnunar Háskóla Íslands, Áhrif kolefnisgjalds á eldsneytisnotkun, frá júní 2020 og leggja fram lagafrumvarp eða gera Alþingi grein fyrir þeirri endurskoðun eigi síðar en 1. mars 2021.