Ferill 248. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


151. löggjafarþing 2020–2021.
Þingskjal 480  —  248. mál.




Svar


félags- og barnamálaráðherra við fyrirspurn frá Ásmundi Friðrikssyni um kvótaflóttamenn og umsækjendur um alþjóðlega vernd.


     1.      Hver var kostnaður stofnana sem heyra beint undir ráðuneytið vegna kvótaflóttamanna og umsækjenda um alþjóðlega vernd á árunum 2018–2020?
    Stofnanir sem heyra beint undir félagsmálaráðuneytið hafa ekki borið beinan kostnað vegna komu kvótaflóttafólks á umræddu tímabili. Kvótaflóttafólk, eins og aðrir sem hafa dvalarrétt hér á landi, nýta almenna þjónustu frá stofnunum sem heyra undir félagsmálaráðuneytið en upplýsingar um kostnað við þjónustu við þennan hóp hafa ekki verið teknar sérstaklega saman. Stofnanir sem heyra bent undir félagsmálaráðuneytið hafa ekki borið kostnað vegna umsækjenda um alþjóðlega vernd en Útlendingastofnun ber ábyrgð á þeim hópi.
    Þess skal þó getið að skv. 5.–6. mgr. 15. gr. barnaverndarlaga, nr. 80/2002, endurgreiðir ríkissjóður sveitarstjórn útlagðan kostnað vegna mála er varða börn sem hafa ekki lögheimili á Íslandi eða eru hér án forsjáraðila sinna. Umræddur kostnaðarliður gerir ekki greinarmun á stöðu barnanna, þ.e. hvort þau eru hér sem umsækjendur um alþjóðlega vernd, hafa fengið alþjóðlega vernd eða eru hér án dvalarréttar eða forsjáraðila en ekki sótt um alþjóðlega vernd. Þess skal þó getið að meiri hluti kostnaðarins snýr annars vegar að fylgdarlausum börnum sem eru umsækjendur um alþjóðlega vernd eða fylgdarlaus börn sem fengið hafa alþjóðlega vernd.
    Árið 2018 var kostnaður 43.472.023 kr.
    Árið 2019 var kostnaður 10.294.077 kr.
    Árið 2020 hefur ekki verið gert upp en kostnaðarstaðan er nú 64.400.452 kr. Þess ber þó að geta að hluti af þeim kostnaði varð til árið 2019 en sökum þess að reikningar bárust seint frá sveitarfélögum þá kemur kostnaðurinn ekki fram fyrr en árið 2020.
    Það skal tekið fram að unnið er að því að innleiða samræmt móttökukerfi fyrir flóttafólk nú, þ.e. óháð því hvort um er að ræða flóttafólk sem hefur komið á eigin vegum eða kvótaflóttafólk í samræmi við þingsályktun um framkvæmdaáætlun í málefnum innflytjenda fyrir árin 2016–2019. Vinnumálastofnun hefur verið falið að þróa og annast samfélagsfræðslu og vera með atvinnuráðgjöf fyrir flóttafólk og Fjölmenningarsetur annast samræmda móttöku flóttafólks.
    Kostnaður vegna þessa verkefnis hjá stofnunum félagsmálaráðuneytisins er eftirfarandi:

2018 2019 2020
Vinnumálastofnun 6.500.000 67.600.000 Uppgjör liggur ekki fyrir
Fjölmenningarsetur 0 8.000.000 11.000.000

     2.      Hver var kostnaður ráðuneytisins vegna þjónustusamnings við Rauða kross Íslands á tímabilinu?
    Félagsmálaráðuneytið gerði samning við Rauða krossinn á Íslandi vegna þjónustu við flóttafólk og var sá samningur óháður því hvort um væri að ræða einstaklinga sem koma á eigin vegum og hafa fengið vernd eða kvótaflóttafólk. Ekki er hægt að kalla fram sérstaklega hver kostnaður er vegna kvótaflóttafólks.
    Kostnaður vegna þjónustu Rauða krossins við kvótaflóttafólk fer eftir samsetningu fjölskyldunnar og er greitt 35% álag vegna þjónustu við kvótaflóttafólk.
    Dæmi:
Fjölskyldusamsetning Kostnaður vegna þjónustu
Einstaklingur 600.006 kr.
Fjögurra manna fjölskylda – öll börn yngri en 18 ára 1.500.016 kr.
Fimm manna fjölskylda, eitt ungmenni eldri en 18 ára 2.100.0023 kr.

    Samkvæmt samningum við Rauða krossinn á Íslandi þá greiddi ráðuneytið:
    Árið 2018: 80.490.621 kr.
    Árið 2019: 90.285.950 kr.
    Árið 2020: Uppgjöri er ólokið en kostnaður sem hefur verið greiddur er 57.123.171 kr.
    Samningur tekur bæði til starfsmannakostnaðar og útlagðs kostnaðar, svo sem húsbúnaðar, túlkakostnaðar, ferðakostnaðar, ráðgjafar, stuðnings, nauðsynja fyrstu dagana eftir komu til landsins og þjálfunar sjálfboðaliða. Það skal tekið fram að um er að ræða kostnað sem hlýst vegna þjónustu við allt flóttafólk óháð því hvernig það kemur til landsins.

     3.      Hver var kostnaður ráðuneytisins vegna stuðnings við sveitarfélög vegna kvótaflóttamanna og umsækjenda um alþjóðlega vernd á tímabilinu?
    Félagsmálaráðuneytið gerir samning við sveitarfélög um þjónustu við móttöku kvótaflóttafólks til tveggja ára.

Samningar við sveitarfélög taka til eftirfarandi þátta:
Framfærsla
Framfærsla Greiðist í 12 mánuði.
Desembergreiðslur Greiðast í desember einu sinni.
Barnabætur Greiðast fyrsta árið.
Meðlag Greiðist fyrstu tvo mánuðina.
Aðstoð til foreldra vegna barna á þeirra framfæri
Leikskóli Greiðist í 11 mánuði.
Skólamáltíðir Greiðast í níu mánuði.
Frístundaheimili Greiðist í níu mánuði.
Skólabyrjun Greiðist við skólabyrjun einu sinni.
Íþróttir og tómstundir Föst eingreiðsla með hverju barni.
Námsstyrkur
Framhaldsskóli Greiðist í tvær annir.
Styrkur vegna sérstakra aðstæðna
Strætókort Eitt kort greitt.
Menntunarkostnaður
Sértækur stuðningur í skóla Greiðist í níu mánuði (20 tímar á mánuði fyrir hvern nema).
Íslenskukennsla Átta námskeið eða sem nemur 480 kennslustundum ásamt sérkennslu.
Grunnkostnaður leikskóla Greiddar eru 100.000 kr. á mánuði í 11 mánuði.
Húsnæðiskostnaður
Húsaleiga Greiddir tveir mánuðir á meðalverði.
Húsnæðisbætur sveitarfélags Greiddar í 12 mánuði.
Sími og internet Greitt í einn mánuð fyrir hverja fjölskyldu.
Heilbrigðiskostnaður
Heilbrigðisþjónusta og lyf Viðmiðið er um 100.000 kr. fyrir hvern einstakling. Greiðist fyrstu sex mánuðina eftir komu til landsins.
Heilbrigðisvottorð Viðmiðið er 35.000 kr. fyrir einstakling.
Gleraugu 30.000 kr. fyrir einstakling.
Tannlæknir Um 115.000 kr. fyrir hvern einstakling sem fellur utan samninga vegna gjaldfrjálsra tannlækninga barna.
Sálfræðiþjónusta Miðað er við 12 viðtöl hjá einstaklingi með túlki. Miðað er við að kostnaður vegna viðtals sé 22.000 kr.
Ráðgjafarþjónusta og stuðningur
Verkefnastj., félagsl. ráðgjöf og sérfræðiráðgj. Greitt í 12 mánuði.
Viðmið:
    Einn einstaklingur 1 mál
    Tveir einstaklingar 1,5 mál
    Þrír einstaklingar 2 mál
    Fjórir og fleiri 2,5 mál
    Einstaklingar sem eru eldri en 18 ára og búa í foreldrahúsum 1 mál
Greitt er fyrir 11,25% stöðugildi fyrir hvert mál
Stuðningurinn heim Fjórar vikur, fimm tímar á viku. Viðmið: 100.000 kr. á fjölskyldu.
Handleiðsla starfsmanna Viðmiðið er um 390.000 kr.
Túlkun Miðað er við um 270.000 kr. á fjölskyldu.

    Gert er ráð fyrir ófyrirséðum kostnaði vegna móttöku flóttafólks og er þá tekið mið af stærð hópsins sem kemur til sveitarfélagsins.
    10 einstaklingar og færri: 10% ófyrirséður kostnaður.
    10–25 einstaklingar: 7,5% ófyrirséður kostnaður.
    25 og fleiri einstaklingar: 5% ófyrirséður kostnaður.
    Gert er ráð fyrir að meðaltalskostnaður vegna móttöku kvótaflóttafólks sé:
10 eða færri
(10% ófyrirséð)
10–25 einstaklingar
(7,5% ófyrirséð)
Fleiri en 25 einstaklingar
(5% ófyrirséð)
Einhleypur 5.980.000 kr. 5.850.000 kr. 5.710.000 kr.
Hjón/fólk í sambúð án barna 4.470.000 kr. 4.360.000 kr. 4.260.000 kr.
Fjölskyldur með börn 3.440.000 kr. 3.360.000 kr. 3.280.000 kr.

    Árið 2018 voru gerðir samningar við þrjú sveitarfélög:
     1.      Ísafjarðarbær, Bolungarvíkurkaupstaður og Súðavíkurhreppur tóku á móti 23 einstaklingum og var gerður samningur á grundvelli þess upp á 77.280.000 kr.
     2.      Mosfellsbær tók á móti tíu einstaklingum og var gerður samningur á grundvelli þess upp á 22.040.000 kr.
     3.      Fjarðabyggð tók á móti 19 einstaklingum og var gerður samningur á grundvelli þess upp á 65.840.000 kr.
    Árið 2019 voru gerðir samningar við sex sveitarfélög:
     1.      Garðabær tók á móti tíu einstaklingum og var gerður samningur á grundvelli þess upp á 59.800.000 kr.
     2.      Mosfellsbær tók á móti ellefu einstaklingum og var gerður samningur á grundvelli þess upp á 56.880.000 kr.
     3.      Seltjarnarnesbær tók á móti fjórum einstaklingum og var gerður samningur á grundvelli þess upp á 23.920.000 kr.
     4.      Árborg tók á móti fimm einstaklingum og var gerður samningur á grundvelli þess upp á 17.200.000 kr.
     5.      Húnaþing vestra tók á móti 23 einstaklingum og var gerður samningur á grundvelli þess upp á 77.280.000 kr.
     6.      Blönduósbær tók á móti 21 einstaklingi og var gerður samningur á grundvelli þess upp á 70.560.000 kr.
    Vegna heimsfaraldursins hefur ekki verið mögulegt að taka á móti kvótaflóttafólki árið 2020 en gert var ráð fyrir móttöku 85 einstaklinga á árinu. Gert er ráð fyrir að sú móttaka flytjist yfir á árið 2021.
    Samningarnir taka til þjónustu og útlagðs kostnaðar á fyrsta ári eftir komu til landsins og á öðru ári taka samningarnir til túlkaþjónustu, námskeiða og frístunda barna upp að ákveðinni fjárhæð eftir atvikum og sálfræðiþjónustu en ekki til fjárhagsaðstoðar. Á öðru ári þá endurgreiðir ríkissjóður útlagðan kostnað vegna fjárhagsaðstoðar frá sveitarfélaginu skv. 15. gr. laga um félagsþjónustu sveitarfélaga nr. 40/1991.
    Ríkissjóður endurgreiðir jafnframt útlagðan kostnað vegna fjárhagsaðstoðar vegna allra erlendra ríkisborgara fyrstu tvö árin eftir að einstaklingur skráir lögheimili sitt hér á landi. Ekki er hægt að veita sundurliðun á kostnaði vegna endurgreiðslna á grundvelli þess hvort um er að ræða kvótaflóttafólk eða erlenda ríkisborgara sem koma hingað til lands á öðrum forsendum.
    Umsækjendur um alþjóðlega vernd eru í þjónustu á vegum Útlendingastofnunar og veitir félagsmálaráðuneytið því ekki stuðning til sveitarfélaga vegna þjónustu við þann hóp.

     4.      Hver var annar kostnaður ráðuneytisins vegna kvótaflóttamanna og umsækjenda um alþjóðlega vernd á tímabilinu?
    Félagsmálaráðuneytið hefur gert samning við International Organization of Migration (IOM) sem annast ferðatilhögun flóttafólks og samfélagsfræðslu fyrir flóttafólk. Frá árinu 2016 hefur verið lögð áhersla á að kvótaflóttafólk sé betur undir það búið að flytjast til Íslands og hefur verið sérstök samfélagsfræðsla fyrir hópinn. Ýmsar útfærslur hafa verið á því, bæði hefur IOM annast fræðsluna að öllu leyti eða í samstarfi við íslensk stjórnvöld og Rauða krossinn á Íslandi. Þá hefur sendinefndin í einu tilfelli annast fræðsluna að öllu leyti án aðkomu IOM.

     Greiðslur til IOM vegna ferðakostnaðar og samfélagsfræðslu frá árunum 2018–2020.
US$ ISK miðað við gengið 31. desember hvers árs
2018 47.827 5.563.715
2019 61.889 7.494.758
2020 0 Ekki hefur verið hægt að taka móti kvótaflóttafólki á þessu ári

Kostnaður vegna sendinefnda.
    Fulltrúar frá félagsmálaráðuneytinu, Útlendingastofnun og Rauða krossinum á Íslandi hafa skipað sendinefndina en hlutverk nefndarinnar er bæði að annast samfélagsfræðslu, funda með fulltrúum Flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna og taka einstaklingsviðtöl við flóttafólk. Þá hafa túlkar ferðast með í tveimur tilvikum. Árið 2019 var ákveðið að auk fyrrgreindra skyldu einnig fulltrúar frá ríkislögreglustjóra auk formanns flóttamannanefndar vera hluti af sendinefndinni. Þá var farið í tvær sendiferðir árið 2019, annars vegar til Líbanons og hins vegar til Keníu, en tekið var á móti fjölmennum hópum frá báðum svæðunum og árið 2018 var boðið upp á samfélagsfræðslu og einstaklingsviðtöl í Jórdaníu.
    Árið 2018 var kostnaður 1.410.332 kr.
    Árið 2019 var kostnaður 4.648.042 kr.
    Enginn kostnaður verður vegna ársins 2020.

Samningur við Samtökin ´78.
    Á síðustu tveimur árum hefur verið tekið á móti hinsegin flóttafólki og hefur því verið gerður samningur við Samtökin ´78 um að annast einstaklingsviðtöl, almenna fræðslu til kvótaflóttafólksins, fræðslu og ráðgjöf til sveitarfélaga og félagasamtaka ásamt túlkakostnaði. Árið 2018 var gerður heildarsamningur við Samtökin ´78 sem tók bæði til almennra ráðgjafar og fræðslu og var einn þáttur í þeim samningi stuðningur við hinsegin flóttafólk og þjónustuaðila þeirra. Einstakir þjónustuliðir voru ekki kostnaðargreindir heldur var gerður heildarsamningur að fjárhæð 12 millj. kr. Árið 2019 var gerður samningur eingöngu um þjónustu við hinsegin flóttafólk og hljóðaði sá samningur upp á 1.995.000 kr.