Ferill 17. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
151. löggjafarþing 2020–2021.
Þingskjal 495 — 17. mál.
Frumvarp til laga
um breytingu á lögum um mannvirki, nr. 160/2010 (flokkun og eftirlit með mannvirkjum).
(Eftir 2. umræðu, 3. desember.)
1. gr.
2. gr.
3. gr.
a. 2. tölul. 1. mgr. orðast svo: Leyfisveitandi hefur yfirfarið og staðfest aðaluppdrætti.
b. 2. mgr. orðast svo:
Leyfisveitandi skal yfirfara og staðfesta séruppdrætti og tilheyrandi greinargerðir áður en vinna við viðkomandi verkþátt hefst.
4. gr.
a. Á eftir 1. málsl. 1. mgr. koma þrír nýir málsliðir, svohljóðandi: Mannvirki skulu flokkuð eftir stærð þeirra, hversu vandasöm hönnun þeirra er, fyrirhugaðri notkun og samfélagslegu mikilvægi. Framkvæmd eftirlits með framkvæmdum skal taka mið af þeirri flokkun. Ráðherra setur í reglugerð nánari ákvæði um flokkun mannvirkja og framkvæmd eftirlits út frá slíkri flokkun.
b. 5. mgr. orðast svo:
Húsnæðis- og mannvirkjastofnun hefur eftirlit með störfum löggiltra hönnuða, löggiltra iðnmeistara og byggingarstjóra, m.a. með úttektum á gæðastjórnunarkerfum þeirra. Eftirlit með gæðastjórnunarkerfum löggiltra hönnuða, byggingarstjóra og iðnmeistara skal fara fram á minnst fimm ára fresti, auk þess sem heimilt er að framkvæma aukið og/eða tíðara eftirlit ef ítrekað koma fram aðfinnslur við störf þeirra. Við framkvæmd eftirlits, sem og við umsókn um starfsleyfi eða endurnýjun þess, skulu eftirlitsskyldir aðilar afla og leggja fram úttektarskýrslu um gerð eða virkni gæðastjórnunarkerfis frá faggiltri skoðunarstofu eða vottunarstofu. Komi í ljós við eftirlit að gæðastjórnunarkerfi uppfylli ekki ákvæði laga þessara eða reglugerða sem settar eru samkvæmt þeim skal gefa eftirlitsskyldum aðila kost á að bæta úr því nema um alvarlegt brot sé að ræða. Um alvarleg og ítrekuð brot fer samkvæmt ákvæðum 57. gr. Heimilt er að kveða nánar á um tilhögun eftirlits í reglugerð.
5. gr.
Gæðastjórnunarkerfi leyfisveitenda.
Leyfisveitanda er heimilt að útvista eftirliti við yfirferð séruppdrátta þegar um vandasama eða umfangsmikla framkvæmd er að ræða. Skoðunarmaður skal uppfylla skilyrði 21. gr. Sé um sérstaklega vandasama framkvæmd að ræða er leyfisveitanda heimilt að gera sérstakar kröfur til hæfis skoðunarmanna. Yfirferð skoðunarmanna er á ábyrgð leyfisveitanda og skal farið eftir ákvæðum 3. mgr. 17. gr. um framkvæmd skoðunar að því leyti sem við á.
6. gr.
a. Orðin „eigin hendi“ í 2. málsl. 2. mgr. falla brott.
b. 3. málsl. 5. mgr. fellur brott.
7. gr.
Uppdrættir sem leyfisveitandi hefur samþykkt skulu ásamt útgefnu byggingarleyfi ætíð vera aðgengilegir eftirlitsmönnum.
8. gr.
a. Á eftir orðunum „aðkeyptrar sérfræðiþjónustu, og“ í 1. málsl. kemur: útvistunar eftirlits.
b. Á eftir 3. málsl. koma fjórir nýir málsliðir, svohljóðandi: Heimilt er að taka mið af meðaltalskostnaði vegna einstakra eftirlitsþátta. Ef sýnt er að umframvinna falli til hjá embætti byggingarfulltrúa skal greiðandi fyrir fram upplýstur um umfang þeirrar umframvinnu eða áætlun gerð í samráði aðila. Gjald fyrir umframvinnu skal innheimt samkvæmt tímagjaldi sem tilgreint er í gjaldskrá. Heimilt er að ákveða að tímagjaldið í gjaldskránni taki ársfjórðungslegum breytingum í samræmi við launavísitölu fyrir starfsmenn sveitarfélaga.
9. gr.
Húsnæðis- og mannvirkjastofnun er heimilt að innheimta gjöld fyrir veitta þjónustu og verkefni sem stofnuninni er falið að annast eða hún tekur að sér, m.a. fyrir undirbúning, svo sem vegna aðkeyptrar sérfræðiþjónustu, útgáfu byggingar- og framkvæmdarleyfis og vottorða, fyrir útmælingu, eftirlit, úttektir, yfirferð hönnunargagna og útgáfu starfsleyfa og löggildinga, samkvæmt gjaldskrá sem stjórn stofnunarinnar setur. Gjaldið skal aldrei vera hærra en nemur þeim kostnaði sem hlýst af því að veita þjónustuna.
10. gr.
a. Á eftir orðinu „gæðakerfa“ í 1. málsl. kemur: byggingarfulltrúa.
b. Á eftir 1. málsl. koma tveir nýir málsliðir er orðast svo: Ráðherra setur í reglugerð nánari ákvæði um flokkun mannvirkja og um framkvæmd eftirlits út frá slíkri flokkun. Jafnframt er heimilt að kveða nánar á um tilhögun eftirlits með störfum löggiltra hönnuða, löggiltra iðnmeistara og byggingarstjóra í reglugerð.
11. gr.
a. Við 1. tölul. bætist nýr málsliður, svohljóðandi: Byggingarfulltrúar og starfsmenn þeirra sem voru starfandi við gildistöku laganna teljast einnig uppfylla skilyrði 1. mgr. 21. gr. sem skoðunarmenn.
b. 2. tölul. fellur brott.
12. gr.
13. gr.
Ráðherra getur einnig kveðið nánar á um notkun rafrænnar byggingagáttar í reglugerð.