Ferill 65. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
151. löggjafarþing 2020–2021.
Þingskjal 503 — 65. mál.
Svar
fjármála- og efnahagsráðherra við fyrirspurn frá Loga Einarssyni um eignir og tekjur landsmanna árið 2019.
Svörin við fyrirspurninni byggjast á skattframtalsgögnum einstaklinga fyrir tekjuárin 1998–2019 frá embætti ríkisskattstjóra þar sem það eru bestu og heildstæðustu upplýsingarnar sem völ er á um eignir og tekjur landsmanna. Gögnunum er raðað eftir fjölskyldunúmeri framtals. Tveir samskattaðir aðilar teljast saman sem ein fjölskylda, óháð því hvort um er að ræða hjón eða samskattað par. Einhleypingur, þ.m.t. einstætt foreldri, telst sem ein fjölskylda og ósamskattað par í sambúð telst sem tvær fjölskyldur. Vert er að hafa í huga að þar sem hér er stuðst við skattframtöl telst unglingur í foreldrahúsum í þessari röðun sem ein fjölskylda frá og með 16 ára aldri þrátt fyrir að sami unglingurinn komi fram sem barn á framfæri framteljanda á öðru framtali. Þar sem flestir í þeim hópi eiga litlar eignir og hafa lágar eða engar tekjur hafa þeir ekki teljandi áhrif á tölulegar niðurstöður varðandi þann hóp sem á mestar eignir eða hefur hæstar tekjur. Öðru máli gegndi ef um væri að ræða tölur um heildardreifingu eigna og tekna eða meðaltöl og miðgildi framteljenda. Í svarinu er því ekki gerð tilraun til þess að skilgreina „landsmenn“ sem fólk sem telst vera orðið fullorðið eða t.d. sem er á vinnumarkaði heldur eru þeir taldir saman hér sem framteljendur í skilningi skattalaga. Í gögnunum eru einnig meðtaldir þeir einstaklingar og sambýlingar sem eru með afbrigðilega álagningu, eða handreiknaðir, eins og sá hópur er oft nefndur sökum þess að sérfræðingar RSK þurfa að handreikna álagningu þeirra. Þetta eru einstaklingar þar sem framtölum er að einhverju leyti ábótavant og er algeng ástæða fyrir handreikningi búseta erlendis hluta úr ári. Á árinu 2019 voru samtals 242.320 fjölskyldur í gögnum ríkisskattstjóra miðað við framangreinda skilgreiningu á framteljendum, 5%-hópurinn er námundaður við 12.100 fjölskyldur, 1% við 2.420 fjölskyldur og 0,1%-hópurinn við 242 fjölskyldur.
Gæði gagnanna eru að mestu leyti óbreytt yfir þann tíma sem hér um ræðir með þeirri undantekningu þó að á framtali 2009 voru innstæður og vextir af innstæðum forskráð í fyrsta sinn á skattframtöl og hafa verið það síðan. Þetta þýddi að innstæður og vextir af innstæðum hækkuðu gríðarlega á milli framtala 2008 og 2009. Það hafði hins vegar ekki afgerandi áhrif á hlutfallstölurnar á þessum tíma. Þá er rétt að taka fram að hlutabréf eru talin á nafnvirði í þessum gögnum og fasteignir eru taldar á fasteignamatsverði. Þá skal sérstaklega tekið fram að uppsöfnuð lífeyrisréttindi eru ekki talin fram sem eignir á skattframtali og eru þau því ekki talin með í þessari nálgun þótt lífeyrisréttindi séu með verðmætustu eignum hvers einstaklings.
1. Hvert var eigið fé þeirra a) 5%, b) 1%, c) 0,1% landsmanna sem mest áttu árið 2019 og hvert var hlutfall eigin fjár þeirra af eigin fé allra landsmanna árið 2019? Hverjar eru sambærilegar tölur fyrir árin 1998–2018?
Eigið fé þeirra 5% framteljenda sem áttu mestar eignir við árslok 2019 var 1.999 milljarðar kr. samkvæmt niðurstöðum álagningar 2020 og hlutfall eigin fjár þeirra af eigin fé allra framteljenda var 40,1%. Eigið fé þess 1% framteljenda sem áttu mestar eignir áttu við árslok 2019 var 865 milljarðar kr. og hlutfall eigin fjár þeirra af eigin fé allra framteljenda var 17,3%. Eigið fé þess 0,1% framteljenda sem mest áttu við lok árs 2019 var 282 milljarðar kr. og hlutfall eigin fjár þeirra af eigin fé allra framteljenda var 5,7%. Sambærilegur tölur fyrir árin 1998–2018 er að finna í töflu 1.
Tafla 1. Upphæð og hlutfall eigin fjár hjá þeim hluta framteljenda sem mest áttu af heildar eigin fé 1998–2019, raðað eftir heildareignum.
| Efstu 5% | Efsta 1% | Efsta 0,1% | ||||
| Ár | Eigið fé, millj. kr. | Hlutfall af heild | Eigið fé, millj. kr. | Hlutfall af heild |
Eigið fé, millj. kr.
|
Hlutfall af heild |
| 1998 | 228.350 | 38,5% | 99.660 | 16,8% | 29.352 | 4,9% |
| 1999 | 259.070 | 38,0% | 113.422 | 16,6% | 32.538 | 4,8% |
| 2000 | 286.654 | 37,7% | 124.563 | 16,4% | 37.231 | 4,9% |
| 2001 | 318.178 | 37,1% | 137.221 | 16,0% | 39.348 | 4,6% |
| 2002 | 346.316 | 38,1% | 155.928 | 17,1% | 49.443 | 5,4% |
| 2003 | 390.889 | 38,6% | 180.944 | 17,9% | 60.941 | 6,0% |
| 2004 | 445.154 | 38,1% | 201.653 | 17,2% | 64.114 | 5,5% |
| 2005 | 571.814 | 37,2% | 254.767 | 16,6% | 79.922 | 5,2% |
| 2006 | 695.255 | 40,7% | 328.875 | 19,3% | 112.685 | 6,6% |
| 2007 | 885.999 | 43,6% | 447.733 | 22,0% | 174.226 | 8,6% |
| 2008 | 931.468 | 47,2% | 474.197 | 24,0% | 173.848 | 8,8% |
| 2009 | 963.405 | 50,4% | 480.084 | 25,1% | 170.799 | 8,9% |
| 2010 | 894.334 | 56,3% | 448.976 | 28,3% | 162.119 | 10,2% |
| 2011 | 943.132 | 50,9% | 443.241 | 23,9% | 155.020 | 8,4% |
| 2012 | 1.010.625 | 48,7% | 470.267 | 22,7% | 167.120 | 8,1% |
| 2013 | 1.051.922 | 47,8% | 482.697 | 21,9% | 168.667 | 7,7% |
| 2014 | 1.126.162 | 46,1% | 506.336 | 20,7% | 167.754 | 6,9% |
| 2015 | 1.249.385 | 44,4% | 559.353 | 19,9% | 186.879 | 6,6% |
| 2016 | 1.388.292 | 43,5% | 612.632 | 19,2% | 201.323 | 6,3% |
| 2017 | 1.646.667 | 42,0% | 718.550 | 18,3% | 236.596 | 6,0% |
| 2018 | 1.864.000 | 40,8% | 802.139 | 17,6% | 260.224 | 5,7% |
| 2019 | 1.998.910 | 40,1% | 864.983 | 17,3% | 282.236 | 5,7% |
2. Hverjar voru heildareignir þeirra a) 5%, b) 1%, c) 0,1% landsmanna sem mest áttu árið 2019 og hvert var hlutfall heildareigna þeirra af heildareignum allra landsmanna árið 2019? Hverjar eru sambærilegar tölur fyrir árin 1998–2018?
Heildareignir þeirra 5% framteljenda sem áttu mestar eignir í lok árs 2019 samkvæmt skattframtölum voru 2.232 milljarðar kr. og hlutfall eigna þeirra af heildareignum allra framteljenda var 31,2%. Heildareignir þess 1% framteljenda sem mestar eignir áttu í lok árs 2019 voru 905 milljarðar kr. en það svarar til 12,6% af heildareignum allra framteljenda. Heildareignir þess 0,1% framteljenda sem mestar eignir áttu í lok árs 2019 voru 289 milljarðar kr. eða sem nam 4,0% af heildareignum. Sambærilegar tölur fyrir árin 1998–2018 koma fram í töflu 2.
Tafla 2. Upphæð og hlutfall heildareigna hjá þeim hluta landsmanna sem mestar eignir áttu 1998–2019.
| Efstu 5% | Efsta 1% | Efsta 0,1% | ||||
| Ár | Heildareignir, millj. kr. | Hlutfall af heild | Heildareignir, millj. kr. | Hlutfall af heild | Heildareignir, millj. kr. | Hlutfall af heild |
| 1998 | 271.489 | 28,3% | 115.708 | 12,1% | 35.299 | 3,7% |
| 1999 | 302.888 | 27,6% | 125.126 | 11,4% | 35.570 | 3,2% |
| 2000 | 341.328 | 27,6% | 140.171 | 11,3% | 41.876 | 3,4% |
| 2001 | 379.203 | 27,0% | 154.552 | 11,0% | 45.720 | 3,3% |
| 2002 | 406.230 | 27,1% | 169.783 | 11,3% | 52.777 | 3,5% |
| 2003 | 459.505 | 27,5% | 196.977 | 11,8% | 64.891 | 3,9% |
| 2004 | 534.942 | 27,8% | 225.007 | 11,7% | 70.273 | 3,6% |
| 2005 | 700.350 | 28,5% | 292.425 | 11,9% | 90.397 | 3,7% |
| 2006 | 868.991 | 30,8% | 382.162 | 13,6% | 128.595 | 4,6% |
| 2007 | 1.119.197 | 33,1% | 523.029 | 15,5% | 195.915 | 5,8% |
| 2008 | 1.196.965 | 32,7% | 554.000 | 15,1% | 200.779 | 5,5% |
| 2009 | 1.233.236 | 32,4% | 561.351 | 14,8% | 197.110 | 5,2% |
| 2010 | 1.133.966 | 32,7% | 517.756 | 14,9% | 183.550 | 5,3% |
| 2011 | 1.148.891 | 31,8% | 500.980 | 13,9% | 169.389 | 4,7% |
| 2012 | 1.216.785 | 31,5% | 523.679 | 13,6% | 180.929 | 4,7% |
| 2013 | 1.255.310 | 31,5% | 531.540 | 13,3% | 181.580 | 4,6% |
| 2014 | 1.319.381 | 31,3% | 547.868 | 13,0% | 174.887 | 4,2% |
| 2015 | 1.436.353 | 31,7% | 596.807 | 13,2% | 191.418 | 4,2% |
| 2016 | 1.578.257 | 31,8% | 654.087 | 13,2% | 208.293 | 4,2% |
| 2017 | 1.851.952 | 32,0% | 758.641 | 13,1% | 241.358 | 4,2% |
| 2018 | 2.091.545 | 31,8% | 843.830 | 12,8% | 265.618 | 4,0% |
| 2019 | 2.231.966 | 31,2% | 905.327 | 12,6% | 289.100 | 4,0% |
3. Hverjar voru tekjur tekjuhæstu a) 5%, b) 1%, c) 0,1% landsmanna árið 2019, með og án fjármagnstekna, og hvert var hlutfall tekna þeirra af tekjum allra landsmanna árið 2019? Hverjar eru sambærilegar tölur fyrir árin 1998–2018?
Heildartekjur með fjármagnstekjum samkvæmt skattframtölum hjá tekjuhæstu 5% framteljenda voru 411 milljarðar kr. árið 2019 og hlutfall tekna þeirra af heildartekjum allra framteljenda var 21,0%. Heildartekjur með fjármagnstekjum hjá tekjuhæsta 1% framteljenda voru 152 milljarðar kr. og hlutfall tekna þeirra af öllum tekjum var 7,8%. Þá voru heildartekjur hjá tekjuhæsta 0,1% framteljenda samtals 48 milljarðar kr. og hlutfall tekna þeirra af heildartekjum var 2,5%. Sambærilegur tölur fyrir árin 1998–2018 er að finna í töflu 3.
Tafla 3. Upphæð og hlutfall heildartekna með fjármagnstekjum hjá tekjuhæsta hluta framteljenda 1998–2019.
| Efstu 5% | Efsta 1% | Efsta 0,1% | ||||
| Ár | Heildartekjur, millj. kr. | Hlutfall af heild | Heildartekjur, millj. kr. | Hlutfall af heild | Heildartekjur, millj. kr. | Hlutfall af heild |
| 1998 | 66.997 | 18,6% | 21.672 | 6,0% | 4.845 | 1,3% |
| 1999 | 78.534 | 19,2% | 26.223 | 6,4% | 6.187 | 1,5% |
| 2000 | 90.940 | 19,7% | 32.223 | 7,0% | 8.795 | 1,9% |
| 2001 | 106.117 | 20,6% | 41.584 | 8,1% | 15.384 | 3,0% |
| 2002 | 118.497 | 21,4% | 49.008 | 8,9% | 20.608 | 3,7% |
| 2003 | 138.711 | 23,2% | 64.270 | 10,8% | 31.104 | 5,2% |
| 2004 | 153.350 | 23,4% | 68.055 | 10,4% | 25.820 | 3,9% |
| 2005 | 209.261 | 27,2% | 110.690 | 14,4% | 48.628 | 6,3% |
| 2006 | 257.266 | 28,5% | 137.487 | 15,2% | 60.248 | 6,7% |
| 2007 | 366.171 | 33,2% | 222.967 | 20,2% | 112.446 | 10,2% |
| 2008 | 288.565 | 26,0% | 133.520 | 12,0% | 46.011 | 4,1% |
| 2009 | 246.970 | 23,3% | 104.425 | 9,9% | 37.208 | 3,5% |
| 2010 | 201.874 | 20,5% | 70.351 | 7,2% | 19.226 | 2,0% |
| 2011 | 217.645 | 20,7% | 73.711 | 7,0% | 18.931 | 1,8% |
| 2012 | 234.075 | 21,0% | 81.119 | 7,3% | 21.321 | 1,9% |
| 2013 | 258.041 | 21,5% | 94.655 | 7,9% | 28.139 | 2,3% |
| 2014 | 285.346 | 22,0% | 111.236 | 8,6% | 38.773 | 3,0% |
| 2015 | 308.336 | 22,0% | 116.952 | 8,3% | 35.167 | 2,5% |
| 2016 | 349.911 | 22,2% | 138.776 | 8,8% | 48.899 | 3,1% |
| 2017 | 397.307 | 22,6% | 165.292 | 9,4% | 63.739 | 3,6% |
| 2018 | 394.168 | 21,1% | 146.834 | 7,9% | 45.521 | 2,4% |
| 2019 | 411.277 | 21,0% | 152.353 | 7,8% | 48.275 | 2,5% |
Heildartekjur án fjármagnstekna hjá tekjuhæstu 5% framteljenda voru 338 milljarðar kr. árið 2019 og hlutfall þeirra af tekjum allra framteljenda (án fjármagnstekna) var 18,4%. Heildartekjur án fjármagnstekna hjá tekjuhæsta 1% framteljenda voru 101 milljarðar kr. eða sem svaraði til 5, 5% af heildartekjum framteljenda (án fjármagnstekna). Heildartekjur án fjármagnstekna hjá tekjuhæsta 0,1% framteljenda voru 19 milljarðar kr. og hlutfall þeirra af tekjum allra framteljenda (án fjármagnstekna) var 1,0%. Sambærilegar tölur fyrir árin 1998–2018 er að finna í töflu 4.
Tafla 4. Upphæð og hlutfall heildartekna án fjármagnstekna hjá tekjuhæsta hluta framteljenda 1998–2019.
| Efstu 5% | Efsta 1% | Efsta 0,1% | ||||
| Ár | Tekjur án fjármagnstekna, millj. kr. |
Hlutfall af heild | Tekjur án fjármagnstekna, millj. kr. | Hlutfall af heild | Tekjur án fjármagnstekna, millj. kr. | Hlutfall af heild |
| 1998 | 60.323 | 17,5% | 17.549 | 5,1% | 3.190 | 0,9% |
| 1999 | 66.840 | 17,4% | 19.128 | 5,0% | 3.120 | 0,8% |
| 2000 | 74.571 | 17,5% | 21.671 | 5,1% | 3.769 | 0,9% |
| 2001 | 82.241 | 17,4% | 23.302 | 4,9% | 3.790 | 0,8% |
| 2002 | 89.664 | 17,7% | 25.973 | 5,1% | 4.778 | 0,9% |
| 2003 | 94.730 | 17,8% | 27.794 | 5,2% | 4.991 | 0,9% |
| 2004 | 104.895 | 18,1% | 31.697 | 5,5% | 6.232 | 1,1% |
| 2005 | 119.925 | 18,6% | 38.150 | 5,9% | 9.177 | 1,4% |
| 2006 | 140.442 | 19,1% | 45.783 | 6,2% | 11.250 | 1,5% |
| 2007 | 171.639 | 20,3% | 62.240 | 7,4% | 19.735 | 2,3% |
| 2008 | 180.983 | 19,9% | 59.871 | 6,6% | 14.239 | 1,6% |
| 2009 | 175.460 | 19,2% | 53.418 | 5,9% | 10.756 | 1,2% |
| 2010 | 173.744 | 19,0% | 52.169 | 5,7% | 10.430 | 1,1% |
| 2011 | 191.841 | 19,5% | 57.271 | 5,8% | 10.431 | 1,1% |
| 2012 | 202.984 | 19,4% | 61.046 | 5,8% | 11.187 | 1,1% |
| 2013 | 216.772 | 19,4% | 66.734 | 6,0% | 13.636 | 1,2% |
| 2014 | 229.779 | 19,1% | 69.855 | 5,8% | 13.756 | 1,1% |
| 2015 | 251.739 | 19,3% | 78.548 | 6,0% | 16.798 | 1,3% |
| 2016 | 273.321 | 18,9% | 83.109 | 5,7% | 15.899 | 1,1% |
| 2017 | 298.780 | 18,6% | 91.678 | 5,7% | 18.845 | 1,2% |
| 2018 | 323.962 | 18,6% | 98.705 | 5,7% | 19.689 | 1,1% |
| 2019 | 337.655 | 18,4% | 100.814 | 5,5% | 18.570 | 1,0% |
4. Hvað áttu tekjuhæstu a) 10%, b) 5%, c) 1%, d) 0,1% landsmanna árið 2019 stóran hluta af annars vegar eigin fé landsmanna og hins vegar heildareignum landsmanna árið 2019? Hverjar eru sambærilegar tölur fyrir árin 1998–2018?
Tekjuhæstu 10% framteljenda samkvæmt skattframtölum áttu í lok árs 2019 samanlagt 35,5% af eigin fé allra framteljenda og 33,1% af heildareignum. Tekjuhæstu 5% framteljenda í lok árs 2019 áttu samanlagt 23,2% af eigin fé allra framteljenda og 20,6% af heildareign allra. Tekjuhæsta 1% framteljenda átti við lok árs 2019 samanlagt 9,1% af eigin fé allra framteljenda og 7,2% af heildareignum. Tekjuhæsta 0,1% framteljenda átti við lok árs 2019 samanlagt 2,6% af eigin fé allra framteljenda sem svarar til 1,9% af heildareignum allra framteljenda. Sambærilegar tölur fyrir árin 1998–2018 er að finna í töflu 5.
Tafla 5. Hlutfall eigin fjár af heild og hlutfall heildareigna af heild hjá tekjuhæsta hluta framteljenda 1998–2018.
| Efstu 10% | Efstu 5% | Efsta 1% | Efsta 0,1% | |||||
| Ár | Eigið fé |
Heildareignir | Eigið fé | Heildareignir | Eigið fé | Heildareignir | Eigið fé | Heildareignir |
| 1998 | 30,1% | 28,5% | 20,7% | 18,4% | 9,3% | 7,5% | 3,1% | 2,3% |
| 1999 | 31,8% | 29,1% | 22,2% | 18,9% | 9,7% | 7,4% | 2,8% | 1,9% |
| 2000 | 32,1% | 29,3% | 21,8% | 18,7% | 9,7% | 7,4% | 2,8% | 2,0% |
| 2001 | 30,6% | 28,5% | 20,5% | 17,9% | 9,1% | 6,9% | 2,9% | 1,9% |
| 2002 | 31,0% | 28,3% | 21,4% | 18,1% | 10,0% | 7,3% | 3,9% | 2,6% |
| 2003 | 33,0% | 29,7% | 23,2% | 19,3% | 10,9% | 8,0% | 3,9% | 2,7% |
| 2004 | 34,5% | 30,7% | 24,2% | 20,1% | 10,7% | 8,2% | 2,9% | 2,2% |
| 2005 | 36,0% | 32,1% | 25,3% | 21,3% | 11,2% | 8,9% | 3,1% | 2,5% |
| 2006 | 40,2% | 35,0% | 28,7% | 23,6% | 13,5% | 10,4% | 3,7% | 3,0% |
| 2007 | 43,4% | 37,6% | 32,1% | 26,1% | 16,3% | 12,2% | 6,1% | 4,2% |
| 2008 | 45,9% | 37,3% | 34,4% | 25,6% | 17,9% | 11,8% | 5,6% | 3,6% |
| 2009 | 43,0% | 34,7% | 32,4% | 23,5% | 17,0% | 10,4% | 5,9% | 3,2% |
| 2010 | 38,8% | 31,9% | 28,2% | 20,7% | 15,3% | 8,8% | 5,9% | 3,0% |
| 2011 | 35,5% | 30,6% | 23,9% | 19,1% | 11,0% | 7,2% | 4,4% | 2,5% |
| 2012 | 35,3% | 30,6% | 24,2% | 19,2% | 10,8% | 7,2% | 4,2% | 2,4% |
| 2013 | 35,9% | 31,3% | 24,8% | 19,8% | 11,4% | 7,6% | 4,0% | 2,4% |
| 2014 | 35,0% | 31,2% | 24,3% | 19,8% | 10,7% | 7,4% | 3,5% | 2,1% |
| 2015 | 35,8% | 32,2% | 24,7% | 20,6% | 10,6% | 7,6% | 2,9% | 1,9% |
| 2016 | 36,2% | 32,9% | 24,8% | 21,0% | 10,6% | 7,8% | 3,0% | 2,1% |
| 2017 | 36,7% | 34,0% | 24,9% | 21,6% | 10,7% | 8,2% | 3,4% | 2,4% |
| 2018 | 36,1% | 33,9% | 23,9% | 21,2% | 9,4% | 7,4% | 2,3% | 1,7% |
| 2019 | 35,0% | 33,1% | 23,2% | 20,6% | 9,1% | 7,2% | 2,6% | 1,9% |