Ferill 255. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


151. löggjafarþing 2020–2021.
Þingskjal 537  —  255. mál.




Svar


samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra við fyrirspurn frá Líneik Önnu Sævarsdóttur um beiðnir um undanþágu frá reglum um þungaflutninga.


     1.      Hversu margar beiðnir bárust Samgöngustofu um undanþágu vegna þungaflutninga um brýr samkvæmt reglugerð um stærð og þyngd ökutækja nr. 155/2007, árlega á árunum 2016–2020?
    Samkvæmt umferðarlögum, lögum um Samgöngustofu og reglugerð um stærð og þyngd ökutækja hefur Samgöngustofa það hlutverk að veita undanþágur frá reglum um stærð og þyngd ökutækja. Við mat á umsóknum um undanþágur er haft samráð við Vegagerðina og eftir atvikum aðra veghaldara og lögreglu. Beiðnir um undanþágur eru metnar með hliðsjón af sérþekkingu Vegagerðarinnar á vegakerfi landsins, bæði leiðum og ástandi og burðarþoli vega. Sérstök áhersla hefur verið lögð á að láta viðskiptavini stofnunarinnar ekki bíða lengur en brýn nauðsyn krefur. Því er lögð áhersla á að ákvörðun liggi fyrir samdægurs sé þess kostur.
    Að meðaltali eru um 20 umsóknir um undanþágu vegna þungaflutninga afgreiddar dag hvern og á sl. ári voru þær á fimmta þúsund, sbr. töflu í svari við 2. tölul. Sótt er um undanþágu fyrir flutningaleið en ekki einstaka vegarkafla eða brýr. Upplýsingar sem liggja fyrir eru eftir hverri umsókn, þeim efnisatriðum sem komu til álita og niðurstöðu. Það kerfi sem notað er býður ekki upp á að unnar séu tölfræðilegar upplýsingar, svo sem um fjölda brúa á leiðum, hve oft tilteknar brýr hafa verið á tilteknum leiðum, hve margar umsóknir bárust eða fjölda umsókna sem var hafnað eða voru samþykktar.

     2.      Hversu margar undanþágur voru:
                  a.      veittar á sama tímabili,
                  b.      veittar með skilyrðum,
                  c.      nýttar af umsækjendum?

    a. Undanþágur eru veittar eftir umfjöllun og mat Samgöngustofu og Vegagerðarinnar, val þeirra á leið og ákvörðun um hvernig farmur verður fluttur. Fyrir kemur að undanþágur eru veittar með skilyrðum sem ekki eru í samræmi við umsókn um undanþágu, sem dæmi má nefna skilyrði um að ekið sé eftir annarri leið en óskað var eftir. Umsóknum er því sjaldan hafnað, þær eru fremur veittar með öðrum hætti en upphaflega var óskað eftir.
    Undanþágufjöldi árin 2016–2020:
    2016: 5.200 undanþágur.
    2017: 5.239 undanþágur.
    2018: 5.005 undanþágur.
    2019: 4.794 undanþágur.
    2020: 4.166 undanþágur.
    Tölur ársins 2020 miðast við umsóknir til 17. nóvember. Fyrirvari er gerður um að vegna fyrirkomulags í málaskrár stofnunarinnar geta allt að 50, eða um 1% undanþága árlega, verið tvítaldar.
    b. Allar undanþágur eru gefnar út með skilyrðum. Í undanþágunni er tekið fram fyrir hverju verið er að veita undanþágu og er undanþágan skilyrt af því.
    c. Ekki er sérstaklega fylgst með að undanþágur séu nýttar. Undanþágur sem gefnar eru út eru skilyrtar við ákveðin tímamörk eða við stakan flutning á tilteknum tíma. Gera má ráð fyrir að undanþágurnar sem gefnar eru út séu nýttar í flestum tilfellum.

     3.      Fyrir hvaða tíu brýr var oftast sótt um undanþágu og hversu oft fyrir hverja þeirra?
         Undanþágur eru miðaðar við þær leiðir sem flytja þarf tiltekinn farm en miðast ekki við einstök mannvirki. Upplýsingar um einstök mannvirki liggja því ekki fyrir.

     4.      Hversu oft var sótt um undanþágu vegna þungaflutninga um brúna um Sléttuá í botni Reyðarfjarðar?
    Sjá svar við 3. tölul. hér að framan.

     5.      Hvaða brýr skipta landinu upp með tilliti til möguleika á þungaflutningum á milli landshluta?
    Til viðbótar við almenna þungaumferð á vegum er óskað undanþága fyrir margs konar aðra flutninga. Oftast er óskað undanþága til að koma sérstökum tækjum sem nauðsynleg eru atvinnulífinu milli landshluta. Helst má nefna bílkrana sem algengt er að séu 48–60 t að heildarþyngd og í sumum tilfellum allt að 70 t. Síðan má nefna tæki til efnisvinnslu auk annarra sérstakra flutninga.
    Takmarkanir á burðargetu brúa geta haft í för með sér verulegan kostnaðarauka þar sem fara þarf langar leiðir til að sneiða hjá hindrunum, auk þess sem stundum er alls ekki fært.
    Um heildarþyngd og ásþunga ökutækja á þjóðvegum gildir reglugerð 155/2017. Á grundvelli þeirrar reglugerðar er birt auglýsing nr. 664/2017 um hvaða þjóðvegir eru opnir fyrir umferð fyrir allt að 49 tonna heildarþunga háð gerð og útbúnaði ökutækis.
    Árið 1970 var tekinn í notkun nýr álagsstaðall við hönnun brúa hér á landi. Þær brýr sem byggðar eru eftir 1970 eru gerðar fyrir allt að 49 tonna heildarþunga, en háð gerð og útbúnaði ökutækis samkvæmt reglugerð nr. 664/2017 um heildarþyngd og ásþunga ökutækja á þjóðvegum. Almennt eru brýr sem byggðar eru eftir árið 1970 ekki takmarkandi í þessum efnum.
    Endurnýjun þeirra brúa sem takmarka þungaflutninga hefur verið jöfn og þétt undanfarna áratugi. Þó standa nokkrar eftir. Flestar þessara brúa eru einbreiðar. Við forgangsröðun á breikkun einbreiðra brúa hefur m.a. verið horft til burðargetu þeirra, umferðarmagns, ástands og hættu með tilliti til slysa og óhappa. Brýrnar sem Vegagerðin metur sem takmarkandi við þungaflutninga fara hér á eftir:

Vegur Brú Byggingarár Hönnunarálag Samgönguáætlun
Hringvegur Sléttuá í Reyðarfjarðarbotni 1953 20 t 2030–2034
Hringvegur Dalsá í Fáskrúðsfjarðarbotni 1955 20 t 2030–2034
Hringvegur Tunguá í Fáskrúðsfjarðarbotni 1955 20 t 2030–2034
Hringvegur Stöðvará í Stöðvarfirði 1962 20 t 2030–2034
Hringvegur Karlsá í Lóni 1955 20 t 2030–2034
Hringvegur Reyðará í Lóni 1962 20 t 2030–2034
Hringvegur Jökulsá á Fjöllum við Grímsstaði 1947 27 t 2025–2029
Hringvegur Lagarfljót 1958 49 t 2030–2034
Hringvegur Ölfusá 1945 49 t sjá skýringar
Vestfjarðavegur Þverdalsá á Dynjandisheiði 1959 20 t aflögð 2021
Vestfjarðavegur Fjarðarhornsá 1957 34 t ekki á áætlun
Vestfjarðavegur Skálmardalsá 1956 34 t ekki á áætlun
Norðausturvegur Bakkaá í Bakkafirði 1952 20 t ekki á áætlun
Norðausturvegur Staðará í Bakkafirði 1953 20 t ekki á áætlun
Norðausturvegur Sandá í Þistilfirði 1961 20 t ekki á áætlun

Hringvegur (1): Jökulsá á Fjöllum við Grímsstaði.
    Brúin er byggð árið 1947. Á henni eru engar undanþágur leyfðar. Hámarkshraði er 30 km/klst. Ný brú er fyrirhuguð á 2. tímabili samgönguáætlunar (2025–2029).

Hringvegur (1): Ölfusá.
    Brúin á Ölfusá var byggð árið 1945. Hún er tveggja akreina og hönnuð fyrir allt aðra umferð og álag en nú er. Búið er að breikka brúna, bæta við lögnum og gönguleið. Brúin hefur verið endurreiknuð þannig að hún sé örugg fyrir leyfilegri umferð. Sérstaklega er fylgst með burðarköplum brúarinnar þar sem tæring er farin að hafa áhrif á burðarþol þeirra. Ný brú er í undirbúningi sem fyrirhugað er að fjármagna sem samvinnuverkefni. Á brúnni eru engar undanþágur leyfðar. Fyrir þann flutning sem ekki kemst yfir brúna þarf að fara langa hjáleið um Óseyrarbrú.

Hringvegur (1) á Suðurfjörðum: Sléttuá í Reyðarfjarðarbotni, Dalsá og Tunguá í Fáskrúðsfjarðarbotni og Stöðvará í Stöðvarfjarðarbotni.
    Brýrnar eru byggðar á árunum 1955–1962. Hönnunarálag er 20 t. Endurnýjun þeirra allra er fyrirhuguð á 3. tímabili samgönguáætlunar (2030–2034).

Brú á Lagarfljóti.
    Brú á Lagarfljóti var byggð árið 1958. Hún var þá tveggja akreina og hönnuð fyrir 20 t vagnlest. Frá þeim tíma hefur verið bætt við gönguleið og lögnum og hún endurreiknuð þannig að hún sé örugg fyrir leyfilega umferð. Undirstöður brúarinnar eru að hluta til frá 1905 og er fylgst sérstaklega með sigi þeirra með mælingum.

Hringvegur (1) í Lóni: Karlsá í Lóni og Reyðará í Lóni.
    Brýrnar eru byggðar á árunum 1955 og 1962. Endurnýjun er fyrirhuguð á 3. tímabili samgönguáætlunar.

Norðausturvegur (85): Bakkaá og Staðará í Bakkafirði.
    Brýrnar eru byggðar árin 1952 og 1953. Þær eru mjög takmarkandi fyrir undanþáguflutninga. Framkvæmdir við endurnýjun þeirra hafa ekki verið settar á áætlun.

Norðausturvegur (85): Sandá í Þistilfirði.
    Brúin var byggð árið 1962 og getur verið takmarkandi fyrir undanþáguflutninga. Framkvæmdir við endurnýjun hennar hafa ekki verið settar á áætlun.

Vestfjarðavegur (60): Þverdalsá á Dynjandisheiði (verður aflögð 2021) og Fjarðarhornsá og Skálmardalsá á Barðaströnd.
    Brýrnar eru byggðar 1956 og 1957. Hönnunarálag er 34 t. Þær voru styrktar sérstaklega þegar núverandi reglugerð um leyfilega þyngd tók gildi. Þessar brýr eru í lélegu ástandi sem getur haft áhrif á burðargetu.