Ferill 118. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


151. löggjafarþing 2020–2021.
Þingskjal 559  —  118. mál.




Svar


ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra við fyrirspurn frá Ólafi Ísleifssyni um raunverulega eigendur Arion banka.


    Fyrirspurnin hljóðar svo:
    Hverjir eru raunverulegir eigendur Arion banka hf., kt. 581008-0150, í skilningi laga nr. 140/2018, um aðgerðir gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka?

    Með lögum nr. 82/2019, um skráningu raunverulegra eigenda, voru innleidd ákvæði 30. og 31. gr. tilskipunar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2015/849 frá 20. maí 2015 um ráðstafanir gegn því að fjármálakerfið sé notað til peningaþvættis eða til fjármögnunar hryðjuverkastarfsemi, eins og henni var breytt með tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2018/843 frá 30. maí 2018. Í framangreindum ákvæðum 30. og 31. gr. er að finna reglur um skráningu raunverulegs eiganda viðskiptafyrirtækja og annarra lögaðila og fjárvörslusjóða og sambærilegra aðila, eins og raunverulegur eigandi er skilgreindur í tilskipuninni. Tekur gildissvið laga nr. 82/2019, sbr. 2. gr. laganna, mið af framangreindum ákvæðum tilskipunarinnar.
    Samkvæmt 1. og 2. mgr. 2. gr. laga nr. 82/2019 gilda lögin um lögaðila sem stunda atvinnurekstur hér á landi eða eru skráðir í fyrirtækjaskrá, sem og erlenda fjárvörslusjóði eða sambærilega aðila sem eiga viðskipti hér á landi, sbr. 5. gr. laganna. Samkvæmt 3. mgr. 2. gr. laga nr. 82/2019 gilda lögin ekki um stofnanir og fyrirtæki í eigu ríkis og sveitarfélaga né heldur um lögaðila sem skráðir eru á skipulegum markaði samkvæmt skilgreiningu laga um kauphallir. Hvað varðar lögaðila sem skráðir eru á skipulegum markaði samkvæmt skilgreiningu laga um kauphallir er framangreint ákvæði í samræmi við skilgreiningu á hugtakinu „raunverulegur eigandi“ í ákvæði a-liðar 13. tölul. 3. gr. laga nr. 140/2018, um aðgerðir gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka, en þar segir að framangreindir aðilar falli ekki undir skilgreininguna.
    Með ákvæði 13. tölul. 3. gr. laga nr. 140/2018 eru innleidd ákvæði 6. tölul. 3. gr. tilskipunar (ESB) 2015/849 þar sem finna má skilgreiningu á hugtakinu „raunverulegur eigandi“. Í framangreindu ákvæði segir m.a. að þegar um viðskiptafyrirtæki sé að ræða þá teljist raunverulegur eigandi vera einstaklingur eða einstaklingar sem í raun eiga eða stjórna lögaðila í gegnum beina eða óbeina eignaraðild á nægilegu hlutfalli hlutabréfa eða atkvæðisrétti eða eignarhlut í þeirri einingu, þ.m.t. gegnum handhafahlutabréf eða stjórnun eftir öðrum leiðum, nema um sé að ræða fyrirtæki sem skráð er á skipulögðum verðbréfamarkaði sem fellur undir upplýsingakröfur í samræmi við löggjöf ESB eða jafngilda alþjóðlega staðla sem tryggja nægjanlegt gagnsæi hvað varðar upplýsingar um eignarhald.
    Þar sem Arion banki hf., kt. 581008-0150, er skráður á skipulegum markaði fellur hann ekki undir gildissvið laga nr. 82/2019 og því er ekki að finna upplýsingar um raunverulega eigendur hans í fyrirtækjaskrá.
    Arion banki hf. fellur hins vegar undir upplýsingakröfur sem taka til lögaðila sem skráðir eru á skipulegum verðbréfamarkaði og er sú löggjöf á forræði fjármála- og efnahagsráðuneytis. Eru þær upplýsingakröfur þess eðlis að í tilviki hlutafélaga innan EES sem gefa út hlutabréf sem tekin hafa verið til viðskipta á skipulegum verðbréfamarkaði gilda Evrópureglur um flöggunarskyldu, þ.e. skylda eiganda sem fer yfir eða undir ákveðin atkvæðisrétt í félaginu að tilkynna útgefanda hlutabréfanna og lögbæru yfirvaldi um það (Fjármálaeftirlit Seðlabanka Íslands hér á landi), sbr. IX. kafla laga um verðbréfaviðskipti, nr. 108/2007. Útgefanda ber skv. 95. gr. laganna að birta almenningi upplýsingarnar eins fljótt og auðið er og á jafnræðisgrundvelli og er Fjármálaeftirlitinu heimilt að birta upplýsingarnar á heimasíðu sinni.
    Í tilviki fjármálafyrirtækja innan EES, svo sem Arion banka, gilda jafnframt Evrópureglur um virka eignarhluti, sbr. IV. kafla laga um fjármálafyrirtæki, nr. 161/2002. Í þeim felst að aðili sem hyggst eignast, einn eða í samstarfi við aðra, virkan eignarhlut í fjármálafyrirtæki skal tilkynna Fjármálaeftirlitinu fyrir fram um áform sín. Fjármálaeftirlitinu ber síðan að leggja mat á það hvort viðkomandi aðili sé hæfur til að fara með hlutinn. Í 49. gr. a laganna er fjallað um raunverulega eigendur, en þar segir: „Leiki vafi á því, að mati Fjármálaeftirlitsins, hver sé eða verði raunverulegur eigandi virks eignarhlutar skal það tilkynna þeim sem sendi tilkynningu […] eða fjármálafyrirtækinu sjálfu, ef ekki næst til þess sem tilkynnti, að eftirlitið telji viðkomandi ekki hæfan til þess að fara með eignarhlutinn.“ Í 46. gr. laganna er síðan fjallað um afleiðingar þess ef óhæfur aðili eignast eða eykur við virkan eignarhlut sinn.
    Loks er vert að nefna að í 4. mgr. 19. gr. laga um fjármálafyrirtæki kemur fram sérstök upplýsingaskylda vegna eignarhluta í fjármálafyrirtækjum. Í henni felst að fjármálafyrirtæki skal tilgreina á vefsíðu nöfn og hlutfallslegt eignarhald allra þeirra sem eiga umfram 1% hlutafjár eða stofnfjár í fyrirtækinu á hverjum tíma. Sé lögaðili eigandi hlutafjár eða stofnfjár umfram 1% skal jafnframt koma fram hvaða einstaklingur eða einstaklingar séu raunverulegir eigendur viðkomandi lögaðila. Með raunverulegum eiganda samkvæmt ákvæðinu er átt við einstakling eða einstaklinga sem eiga beina eða óbeina hlutdeild í félagi sem nemur 10% eða meira af hlutafé, stofnfé eða atkvæðisrétti eða aðra hlutdeild sem gerir honum eða þeim kleift að hafa veruleg áhrif á stjórnun viðkomandi félags.