Ferill 314. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
151. löggjafarþing 2020–2021.
Þingskjal 575 — 314. mál.
2. umræða.
Nefndarálit með breytingartillögu
um frumvarp til laga um breytingu á ýmsum lögum um skatta og gjöld (tryggingagjald o.fl.).
Frá 1. minni hluta efnahags- og viðskiptanefndar.
Heimsfaraldur kórónuveiru leggst af mismiklum þunga á atvinnugreinar landsins. Veitingageirinn er í flokki þeirra sem hafa orðið hart úti vegna faraldursins. Erlendir ferðamenn sjást varla, miklar takmarkanir hafa verið settar um fjölda gesta og fyrirtækjunum gert að loka um lengri eða skemmri tíma. Þrátt fyrir góðan vilja og ýmsar almennar ráðstafanir stjórnvalda til þess að koma til móts við áföll í rekstri, svo sem lokunar- og tekjufallsstyrki, virðist það ekki duga til. Nauðsynlegt er að grípa til frekari ráðstafana til þess að örva reksturinn og laða að viðskiptavini. Enginn vafi er á því að þessi fyrirtæki eru mikilvægur hluti daglegs lífs og menningar- og skemmtanalífs landsmanna en ekki síður ómissandi hluti og ein af forsendum blómlegrar ferðaþjónustu. Ef ferðamannaiðnaðurinn á að geta tekið við sér þegar heimsfaraldurinn er yfirstaðinn er ljóst að veitingageirinn verður að eiga möguleika á að lifa hann af.
Í núverandi árferði, þar sem heilbrigðisógn og samkomutakmarkanir hafa skrúfað að miklu leyti fyrir eftirspurnarhlið hagkerfisins, er ekkert upp úr því að hafa fyrir samfélagið að leyfa fyrirtækjum að falla. Fáir rekstraraðilar hefðu með réttu getað gert ráð fyrir áfalli af þessari stærðargráðu og markaðurinn mun ekki í bráð fylla skarðið sem myndast. Enginn lærir lexíu í rekstri af því að fara á hausinn í heimskreppu. Það sem aftur á móti hefur jákvæð áhrif er að stuðla markvisst að því að atvinnusambönd haldist órofin, að lágmarka tekjufall almennings og að skapa umhverfi sem styður við atvinnusköpun í stað þess að vinna gegn henni.
Að því miða breytingartillögur 1. minni hluta við frumvarp þetta og ýmsar aðrar þær tillögur sem Viðreisn hefur lagt fram í tengslum við meðferð fjárlaga fyrir árið 2021 og tengdra þingmála þennan vetur. Í því sambandi lagði Viðreisn til að hækkun áfengisgjalds yrði frestað en sú tillaga var felld við atkvæðagreiðslu um 5. mál um breytingu á ýmsum lögum vegna fjárlaga fyrir árið 2021 3. desember sl. Þá hefur Viðreisn lagt til að svokölluð ferðagjöf verði hækkuð um 15.000 krónur, framlengd fram á haustið 2021 og gildissvið hennar víkkað svo það taki einnig til viðburða á sviði menningar og lista. Þegar nefndarálit þetta er skrifað er ekki ljóst hvort tillaga Viðreisnar verði samþykkt.
Fyrsti minni hluti leggur nú til tímabundna lækkun virðisaukaskatts á afmörkuðu sviði. Er það enn einn liðurinn í því að koma til móts við veitingageirann.
Tímabundin lækkun virðisaukaskatts.
Veitingarekstur skal samkvæmt núgildandi lögum um virðisaukaskatt standa skil á 11% virðisaukaskatti af sölu á matvörum og öðrum vörum til manneldis, þ.m.t. áfengi. Líkt og áfengisgjald leiðir virðisaukaskatturinn til hærra útsöluverðs sem neytandinn ber. Það er eðli skattheimtu af þessu tagi og ekkert við það að athuga. Virðisaukaskattur er einn af mikilvægari tekjustofnum ríkisins og engin ástæða til annars, þótt ávallt megi rökræða um hlutfall hans, mismunandi þrep eða jafnvel vörur og þjónustu sem er undanþegin þeim skatti. Enda er tillögunni sem hér er lögð fram ekki ætlað að hrófla við þessu kerfi. Hún felur hins vegar í sér að lækka tímabundið, í eitt ár, skatthlutfallið í vel skilgreindri starfsemi sem hefur orðið hart úti í faraldrinum og þarf að hjálpa á fætur að nýju. Besta leiðin til þess að rekstrargrundvöllur sem flestra þeirra batni er með auknum viðskiptum og þar með tekjum.
Að mati 1. minni hluta er tillagan varfærin, að um eins árs skeið standi fyrirtæki með gilt rekstrarleyfi samkvæmt lögum um veitingastaði, gististaði og skemmtanahald annars vegar og fyrirtæki með gilt starfsleyfi fyrir veitingastaði í flokki I hins vegar, skil á 6% virðisaukaskatti í stað 11% af þeim hluta rekstrar sem telst til sölu á matvöru og öðrum vörum til manneldis.
Þessi leið á sér fyrirmyndir utan Íslands en mörg Evrópuríki hafa gripið til sömu aðferðafræði. Er það ekki síst vegna þess að leiðin er einföld í framkvæmd, skjótvirk og mismunar ekki aðilum. Má t.d. nefna Austurríki, Belgíu, Bretland, Írland, Noreg og Tékkland. Aðferðin raskar ekki skyldu fyrirtækjanna til þess að standa skil á virðisaukaskatti en heimilar þeim að innheimta 6% í stað 11% af sölu ársins 2021. Öll skýrsluskil, eftirlit og samskipti við Skattinn verða hefðbundin og án röskunar vegna þessa fyrirkomulags.
Að framansögðu virtu leggur 1. minni hluti til eftirfarandi
BREYTINGU:
Við III. kafla bætist ný grein, svohljóðandi:
Við lögin bætist nýtt ákvæði til bráðabirgða, svohljóðandi:
Þrátt fyrir ákvæði 8. tölul. 2. mgr. 14. gr. laganna skulu fyrirtæki með gilt rekstrarleyfi skv. 7. gr. laga um veitingastaði, gististaði og skemmtanahald, nr. 85/2007, og fyrirtæki með gilt starfsleyfi frá viðeigandi heilbrigðisnefnd sem hefur verið gefið út fyrir veitingastað í flokki I, sbr. 3. mgr. 4. gr. laga um veitingastaði, gististaði og skemmtanahald, nr. 85/2007, standa skil á 6% virðisaukaskatti af sölu á matvörum og öðrum vörum til manneldis, þ.m.t. áfengi, til 31. desember 2021.
Alþingi, 10. desember 2020.
Jón Steindór Valdimarsson.