Ferill 295. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
151. löggjafarþing 2020–2021.
Þingskjal 583 — 295. mál.
Svar
umhverfis- og auðlindaráðherra við fyrirspurn frá Karli Gauta Hjaltasyni um útflutning á úrgangi.
1. Hversu mikið magn af úrgangi er flutt árlega frá landinu? Hversu mikið af þeim úrgangi er endurnýtanlegt?
Árlegur útflutningur á úrgangi síðustu þrjú árin hefur samkvæmt upplýsingum frá tollakerfi Skattsins verið eftirfarandi:
| Ár | Tonn alls |
| 2017 | 119.740.581 |
| 2018 | 121.620.939 |
| 2019 | 122.057.705 |
Endurnýtanlegur úrgangur til útflutnings á árunum 2017–2019 var 99,9985% af heildarútflutningi úrgangs. Almennt eru einungis spilliefni flutt út til förgunar. Spilliefni sem flutt voru út til förgunar á tímabilinu voru 0,0015% af heildarútflutningi úrgangs.
2. Til hvaða landa er úrgangurinn fluttur? Hversu mikið af honum er flutt út til endurvinnslu?
Á árunum 2017–2019 var úrgangurinn eingöngu fluttur til ríkja innan EES. Tölur yfir viðtökulönd þarf að taka með fyrirvara um að upplýsingar séu rétt út fylltar í útflutningsskýrslum. Búast má við að Holland, sem er algengt umflutningsland, sé í einhverjum tilfellum skráð sem viðtökuland.
Útflutningur á úrgangi í prósentum (námundað) á árabilinu 2017–2019 samkvæmt upplýsingum frá tollakerfi Skattsins:
| Viðtökuland | Hlutfall |
| Holland | 58% |
| Spánn | 20% |
| Svíþjóð | 11% |
| Bretland | 5% |
| Noregur | 1% |
| Danmörk | 1% |
| Þýskaland | 1% |
| Önnur lönd | 3% |
Endurvinnsluefni, sem einkum eru málmar, plastúrgangur og pappír, eru eingöngu flutt út í þeim tilgangi að endurvinna efnin. Það getur síðan farið eftir gæðum efnisins, markaðsaðstæðum o.fl. hver verður lokameðhöndlun hjá móttökuaðila. Af heildarútflutningi úrgangs á árunum 2017–2019 voru 99,985% flutt út til endurvinnslu, en hluti af því endar hugsanlega í endurnýtingu.
3. Hvað er gert við þann úrgang, ef einhver er, sem er fluttur út en fer ekki til endurvinnslu? Hvernig er fylgst með því hvert hann ratar?
Almennt fer það sem ekki hentar í endurvinnslu í endurnýtingu og þá yfirleitt í orkunýtingu á brennslustöð. Förgun á spilliefnum er annars vegar urðun að undangenginni tæknilegri meðhöndlun og hins vegar brennsla við stýrðar aðstæður.
Umhverfisstofnun hefur eftirlit með flutningi úrgangs til og frá Íslandi samkvæmt lögum um meðhöndlun úrgangs, nr. 55/2003, og reglugerð nr. 822/2010 um flutning úrgangs á milli landa. Umhverfisyfirvöld umflutningslanda og viðtökulanda fara einnig með eftirlit, sbr. reglugerð (EB) nr. 1013/2006, með síðari breytingum.
Gerður er greinarmunur á því hvort úrgangur fer úr landi til förgunar eða endurnýtingar. Bannað er að flytja út úrgang til förgunar til landa utan EES. Bann er við útflutningi úrgangs til endurnýtingar til landa sem ekki falla undir ákvörðun Efnahags- og framfarastofnunarinnar (OECD).
Spilliefni eða hættulegan úrgang er heimilt að flytja úr landi til förgunar að gefnu leyfi umhverfisyfirvalda í bæði útflutnings- og viðtökulandi. Jafnframt þarf að vera búið að semja um viðtöku og úrvinnslu á úrganginum í viðtökulandi.
Umhverfisstofnun gerir eftirlitsáætlun og viðhefur virkt eftirlit með flutningi úrgangs milli landa. Stofnunin fær mánaðarlega upplýsingar úr tollakerfi Skattsins um allan inn- og útflutning á úrgangi. Þær upplýsingar eru nýttar til þess að fylgjast með að eftirfarandi kröfum sé fullnægt:
– Óheimilt er að flytja tilteknar tegundir úrgangs milli tiltekinna landa.
– Skylt er að tilkynna inn- og útflutning spilliefna og annars úrgangs sem fer til förgunar.
– Úrgangi sem fluttur er úr landi til endurnýtingar þarf að fylgja sérstakt eyðublað.
– Úrgangi sem fluttur er til landsins til endurnýtingar þarf að fylgja sérstakt eyðublað.
– Óheimilt er að flytja úrgang sem vöru á milli landa.
Jafnframt eru framkvæmdar gámaskoðanir þar sem skoðaðar eru leyfisskyldar sendingar.
Eftirfylgni er góð þegar um spilliefni er að ræða. Þegar um er að ræða endurvinnsluefni er áskorunum háð að fylgjast með farvegum úrgangs eftir að fyrsti móttökuaðili eftir útflutning tekur við honum. Fyrir utan reglubundið eftirlit sem rakið er hér að framan hafa verið í gangi ýmis verkefni, m.a. á vegum tollsins, Europol (Löggæslusamvinnustofnun Evrópusambandsins) og IMPEL (samstarf stofnana í Evrópu um innleiðingu og eftirfylgni umhverfislöggjafar) í þeim tilgangi að rannsaka ólöglegan flutning úrgangs og fylgja eftir farvegum hans. Dæmi um slíkt samstarf eru SWEAP (Shipment of Waste Enforcement Actions Project) og OLAF (European Anti Fraud Office).
Samkvæmt upplýsingum frá Úrvinnslusjóði, sem semur við aðila um úrvinnslu á úrgangi m.a. með útflutningi, er unnið að leiðum til að tryggja betur rekjanleika úrgangsins sem fluttur er til útlanda. Fyrirhugað er að vinna að samkomulagi við miðlara og aðra þá aðila sem meðhöndla úrgang við flutning á milli landa, til að mynda með úttektum eða öðrum leiðum til að tryggja betur það upplýsingaflæði sem þarf að vera til staðar hvað varðar endanlega meðhöndlun og úrvinnslu úrgangs sem fluttur hefur verið út til endurvinnslu.