Ferill 376. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
151. löggjafarþing 2020–2021.
Þingskjal 628 — 376. mál.
2. umræða.
Nefndarálit með breytingartillögu
um frumvarp til laga um breytingu á búvörulögum, nr. 99/1993 (úthlutun tollkvóta).
Frá minni hluta atvinnuveganefndar.
Undanfarin misseri hefur orðið ljóst að afkomubrestur blasir við í íslenskum landbúnaði. Aukinn innflutningur búvara sem framleiddar eru erlendis við önnur skilyrði en á Íslandi hefur þrengt að mörkuðum og heimsfaraldur kórónuveiru hefur aukið enn á þann vanda sem fyrir var. Eftirspurn hefur dregist verulega saman vegna fækkunar ferðamanna og sóttvarnaaðgerða stjórnvalda. Þannig hefur sala á kjöti dregist saman um rúm 9% síðastliðna þrjá mánuði. Þá hefur einnig verið samdráttur í sölu innlendra mjólkurafurða. Til viðbótar hrannast nú upp kjötbirgðir bæði í búfé á fæti hjá bændum og í birgðageymslum sláturleyfishafa. Alvarlegar afleiðingar heimsfaraldurs kórónuveiru, aukinn innflutningur erlendra búvara, brotakennd tollaframkvæmd og fyrirhugað uppboð tollkvóta kalla á brýnar aðgerðir af hálfu stjórnvalda. Grípa verður til ráðstafana til þess að koma í veg fyrir að meira kjöt komi inn á yfirfullan markað með tilheyrandi verðhruni á kjöti til framleiðenda. Verja þarf íslenskan landbúnað og þau fjölþættu verðmæti sem í honum felast fyrir samfélagið.
Þegar staða íslenskra bænda er borin saman við stöðu bænda í nágrannaríkjum Íslands, einkum í Noregi og í aðildarríkjum Evrópusambandsins, er ljóst að mikill munur er þar á. Íslenskir bændur standa höllum fæti og hafa farið halloka í forgangsröðun stjórnvalda. Í nágrannaríkjunum hafa stjórnvöld mun meiri heimildir til að grípa til aðgerða vegna tímabundins ójafnvægis á markaði. Má sem dæmi nefna að í Noregi eru bændur og afurðasölufyrirtæki með undanþágur frá samkeppnislöggjöf og framkvæmdastjórn Evrópusambandsins hefur umfangsmiklar heimildir til að grípa til aðgerða sem gera bændum kleift að auka samstarf sín á milli. Þá hafa þessi ríki gripið til viðamikilla stuðningsaðgerða vegna heimsfaraldursins og má þar nefna sem dæmi:
1. Bændum standa til boða fjárstyrkir vegna núverandi ástands allt að 100.000 evrur eða um 16 milljónir kr.
2. Bændum standa til boða hagstæð lán allt að 200.000 evrur eða um 32 milljónir króna.
3. Vegna ójafnvægis á mörkuðum með landbúnaðarvörur hefur verið innleidd tímabundin undanþága frá evrópskum samkeppnisreglum fyrir landbúnaðinn.
Að mati minni hlutans þarf að grípa til fleiri og umfangsmeiri aðgerða en frumvarpið mælir fyrir um. Miðflokkurinn hefur lagt fram ítarlegar tillögur til að efla landbúnaðinn sem mikilvæga framleiðslugrein í landinu. Hinn 5. nóvember mælti formaður Miðflokksins fyrir tillögu til þingsályktunar um stóreflingu innlendrar matvælaframleiðslu og öruggt og fyrirsjáanlegt rekstrarumhverfi landbúnaðar. Með tillögunni er lagt til að forsætisráðherra verði falið að hrinda í framkvæmd 24 aðgerðum á sviði landbúnaðar í samráði við bændur. Meðal markmiða tillögunnar er að stórefla innlenda matvælaframleiðslu, tryggja matvæla- og fæðuöryggi, veita neytendum umhverfisvæna, holla og næringarríka fæðu, treysta afkomu bænda, auka sjálfbærni og umhverfisvernd, varðveita þekkingu, efla rannsóknir og menntun í landbúnaði, auka skilning á mikilvægi landbúnaðarframleiðslu og vernda landgæði.
Að mati minni hlutans kalla þær aðstæður sem nú eru uppi á að gripið sé til skjótvirkra aðgerða. Til að stemma stigu við neikvæðum áhrifum heimsfaraldursins er nauðsynlegt að falla frá úthlutun tollkvóta á fyrri hluta næsta árs. Því leggur minni hlutinn til að úthlutun tollkvóta næsta árs verði frestað tímabundið meðan ráðrúm gefst til að rýna stöðuna og koma í veg fyrir langvarandi afleiðingar offramboðs búvara á innlenda framleiðendur. Ráðherra skipi starfshóp sem falið verður að gera tillögur um hvernig megi stemma stigu við neikvæðum áhrifum faraldursins og hvenær auglýsa skuli tollkvóta að nýju.
Minni hlutinn leggur til að frumvarpið verði samþykkt með eftirfarandi
BREYTINGU:
Við bætist ný grein, svohljóðandi:
Við lögin bætist nýtt ákvæði til bráðabirgða, svohljóðandi:
Þrátt fyrir ákvæði 3. mgr. 65. gr búvörulaga, nr. 99/1993, skal ráðherra fresta auglýsingu útboðs tollkvóta fyrir árið 2021 þar til starfshópur, sem hann skipar, gerir tillögur um hvenær auglýsa skal tollkvóta að nýju. Starfshópurinn skal jafnframt gera tillögur um aðgerðir til að stemma stigu við neikvæðum áhrifum heimsfaraldurs kórónuveiru á innlenda matvælaframleiðslu.
Alþingi, 16. desember 2020.
| Sigurður Páll Jónsson, frsm. |
Ólafur Ísleifsson. |