Ferill 290. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


151. löggjafarþing 2020–2021.
Þingskjal 732  —  290. mál.




Svar


samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra við fyrirspurn frá Þorsteini Sæmundssyni um upplýsingafulltrúa og samskiptastjóra.


    Svör við fyrirspurninni taka til árabilsins 2011 og til og með 1. desember 2020. Auk upplýsinga um launakostnað er greint frá kostnaði sem er greinanlegur niður á starfsmenn í fjárhagskerfi, þ.e. erlendur ferðakostnaður og símakostnaður.
    Undir ráðuneytið heyra sex stofnanir: Byggðastofnun, Póst- og fjarskiptastofnun, Rannsóknarnefnd samgönguslysa, Samgöngustofa, Vegagerðin og Þjóðskrá Íslands. Mismikil þörf er á upplýsingafulltrúum eftir eðli og umfangi stofnana. Eins eru störf og ábyrgð upplýsingafulltrúa mismunandi á milli stofnana.

     1.      Eru upplýsingafulltrúar eða samskiptastjórar starfandi í ráðuneytinu? Ef svo er, hver er árlegur heildarkostnaður síðustu tíu ár vegna starfa viðkomandi, sundurliðað í laun og annan kostnað?
    Upplýsingar um kostnað samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytisins ná frá árinu 2018 eða frá fyrsta heila starfsári ráðuneytisins. Fyrir þann tíma heyrðu málaflokkar ráðuneytisins, sem og málaflokkar dómsmálaráðuneytisins, undir innanríkisráðuneytið. Kostnaður innanríkisráðuneytisins vegna launa- og annars kostnaður var svipaður og hér er greint frá.
    Árlegur kostnaður er sem hér greinir:

Heildarlaun Heildarlaun með launatengdum gjöldum Erlendur ferðakostnaður Símakostnaður
2018 9.907.322 12.204.228 0 35.880
2019 10.073.600 12.307.234 0 36.264
2020 9.657.949 11.847.377 0 39.036

     2.      Eru upplýsingafulltrúar eða samskiptastjórar starfandi hjá undirstofnunum ráðuneytisins? Ef svo er, hver er árlegur heildarkostnaður hverrar stofnunar síðustu tíu ár vegna starfa viðkomandi, sundurliðað í laun og annan kostnað?
    Svör byggjast á upplýsingum frá stofnunum ráðuneytisins.

Byggðastofnun.
    Enginn upplýsingafulltrúi eða samskiptastjóri er starfandi hjá Byggðastofnun, verkefnin eru hluti starfa forstjóra og staðgengils hans.

Póst- og fjarskiptastofnun.
    Póst- og fjarskiptastofnun hefur verið með starfsmann í hlutverki kynningarfulltrúa, vefstjóra og nú samskiptastjóra, fyrst í hlutastarfi og síðustu rúmlega tvö ár í fullu starfi. Símakostnaður er áætlaður eins á milli ára þar sem svipaðar reglur hafa gilt um heimatengingu starfsmanna.
    Árlegur kostnaður er sem hér greinir:

Heildarlaun Heildarlaun með launatengdum gjöldum Erlendur ferðakostnaður Símakostnaður
2011 4.690.614 5.778.583 0 72.000
2012 5.038.607 6.207.292 0 72.000
2013 5.157.364 6.353.594 0 72.000
2014 5.450.651 6.714.908 0 72.000
2015 5.949.000 7.328.847 0 72.000
2016 6.246.883 7.695.823 0 72.000
2017 6.342.272 7.813.337 0 72.000
2018 7.654.358 9.429.756 0 72.000
2019 10.926.551 13.460.921 0 72.000
2020 11.024.071 13.581.060 0 72.000

Rannsóknarnefnd samgönguslysa.
    Ekki er starfandi upplýsingafulltrúi eða samskiptastjóri hjá stofnuninni. Stjórnandi hverrar rannsóknar fyrir sig sér um að upplýsa um stöðu rannsókna ásamt samskiptum við aðila máls, aðstandendur o.s.frv.

Samgöngustofa.
    Upplýsingar um kostnað Samgöngustofu ná frá árinu 2013 eða frá fyrsta starfsári stofnunarinnar.
    Árlegur kostnaður er sem hér greinir:

Heildarlaun Heildarlaun með launatengdum gjöldum Erlendur ferðakostnaður Símakostnaður
2013 8.965.162 10.765.367 242.391 97.373
2014 9.423.056 11.315.206 0 64.808
2015 10.208.937 12.258.892 0 65.873
2016 10.974.458 13.178.129 0 98.516
2017 11.580.784 13.906.205 0 46.951
2018 12.315.446 14.788.388 296.725 22.428
2019 12.783.295 15.350.181 371.611 57.839
2020 12.984.563 15.591.863 0 12.396

Vegagerðin.
    Hjá Vegagerðinni er starfandi forstöðumaður samskiptadeildar.
    Árlegur kostnaður er sem hér greinir:

Heildarlaun Heildarlaun með launatengdum gjöldum Erlendur ferðakostnaður Símakostnaður
2011 8.132.584 10.135.113 1.117.573 25.517
2012 8.937.009 11.083.392 337.219 53.932
2013 9.885.544 12.265.786 456.635 64.049
2014 10.324.319 12.803.664 105.010 41.752
2015 11.684.874 14.483.520 639.740 51.286
2016 12.331.726 15.225.747 611.180 58.048
2017 12.807.176 15.777.739 516.846 43.864
2018 13.270.703 16.348.799 457.308 31.067
2019 13.549.607 16.653.952 1.365.706 29.079
2020 13.905.025 17.079.153 0 138.726

Þjóðskrá Íslands.
    Enginn upplýsingafulltrúi eða samskiptastjóri er starfandi hjá Þjóðskrá Íslands og hefur aldrei verið. Útgefin verklagsregla er að forstjóri svarar öllum fjölmiðlum og þeir stjórnendur sem hann eftir atvikum vísar fyrirspurnum til.