Ferill 390. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
151. löggjafarþing 2020–2021.
Þingskjal 734 — 390. mál.
Svar
umhverfis- og auðlindaráðherra við fyrirspurn frá Karli Gauta Hjaltasyni um malarnámur.
1. Hvaða stofnun ber ábyrgð á að fylgst sé með aflögðum malarnámum og hvernig er eftirliti með þeim háttað? Er vitað um fjölda slíkra náma?
Í 49. gr. eldri laga um náttúruvernd, nr. 44/1999, (felld úr gildi með lögum nr. 60/2013) var mælt fyrir um frágang efnistökusvæða, en nokkur misbrestur hafði verið á að nægjanlega vel væri gengið frá svæðum að lokinni efnistöku. Þá var í lögunum einnig sérstakt ákvæði til bráðabirgða sem mælti fyrir um að umhverfisráðherra skyldi fela Náttúruvernd ríkisins, í samráði við hlutaðeigandi ráðuneyti, stofnanir, sveitarfélög og framkvæmdaraðila, að gera tillögur um frágang efnistökusvæða sem hætt væri að nota og eftir atvikum þeirra sem þá voru í notkun. Stofnunin skyldi gera áætlun um frágang svæðanna og kostnað við hann, svo og tillögur um greiðslu kostnaðar. Þá skyldi stofnunin enn fremur hafa umsjón með frágangi svæðanna sem skyldi lokið eig síðar en árið 2003.
Árið 2000 hóf Vegagerðin vinnu við gerð áætlunar um frágang gamalla ófrágenginna náma í samvinnu við umhverfis- og auðlindaráðuneytið. Afrakstur þeirrar vinnu var Langtímaáætlun um námufrágang 2004–2018. Upplýsingar eru skráðar í námuskrá Vegagerðarinnar, þar sem fram kemur hvaða efnistökusvæðum stofnunin ber ábyrgð á og hver afstaða hennar er til frágangs hverrar námu. Vegagerðin vinnur áfram að frágangi eldri náma samkvæmt langtímaáætlun þrátt fyrir að ekki séu ákvæði um slíkt í nýju lögunum um náttúruvernd. Í árlegri umhverfisskýrslu stofnunarinnar er gerð grein fyrir framvindu mála. Einnig má fá nánari upplýsingar um frágang efnistökusvæða frá árinu 2000 í sérstöku yfirliti sem Vegagerðin hefur tekið saman, www.namur.is/media/fragengnar-namur/Namufragangur-2019_yfirlit-2000-2019.pdf.
Í námuskrá Vegagerðarinnar, sem er að finna á namur.vegagerdin.is/, eru birtar ýmsar upplýsingar um námur, m.a. um staðsetningu við veg, efnisgerð, frágang og heiti jarðar sem náman er staðsett á. Skráðar eru allar jarðefnanámur á landinu óháð efnisgerð og efnisnotkun og því hver námurétthafinn er. Námuskrá Vegagerðarinnar er eini ítarlegi gagnagrunnurinn á Íslandi með almennum upplýsingum um námur. Margar þeirra náma sem skráðar eru í námuskrá Vegagerðarinnar eru ekki lengur í notkun. Mikill fjöldi námanna eru litlar námur og er efnismagn í allmörgum þeirra orðið mjög lítið eða efni jafnvel búið. Í námuskránni eru skráðar samtals 3.344 efnisnámur en þar af eru 2.319 frágengnar námur (tölur síðast uppfærðar 26. mars 2019). Umhverfisstofnun vottar frágang náma og hefur stofnunin vottað frágang á 608 eldri námum sem Vegagerðin hefur gengið frá á undanförnum árum. Auk þess hefur stofnunin eftirlit með námufrágangi í tengslum við nýframkvæmdir Landsvirkjunar, Vegagerðarinnar og fleiri aðila.
Þá er bent á vefinn namur.is sem er samstarfsverkefni Landsvirkjunar, Vegagerðarinnar og Umhverfisstofnunar. Vefurinn er annars vegar ætlaður verktökum og öðrum þeim sem þurfa að nema efni til framkvæmda og hins vegar sveitarstjórnum og öðrum opinberum aðilum sem koma að leyfisveitingum vegna efnistöku. Á vefnum er fjallað um efnistöku á landi, þ.e. landi í einkaeign, á ríkisjörðum og á þjóðlendum, auk efnistöku úr sjó. Farið er yfir hvernig staðið skuli að vali, skipulagningu og frágangi námusvæða. Markmið vefsins er að stuðla að skilvirkni í þessum málaflokki og bættri umgengni við umhverfið með samræmingu vinnubragða og yfirliti á einum stað um lög og reglugerðir tengt efnistöku.
2. Hvernig er fylgst með því að eigendur eða fyrri notendur gangi frá þeim með sómasamlegum hætti og hvaða kröfur eru um það gerðar?
Eins og að framan greinir var í eldri náttúruverndarlögum, nr. 44/1999, ákvæði sem miðuðu að því að tryggja að gengið yrði frá efnistökusvæðum að efnistöku lokinni. Með gildistöku núgildandi laga um náttúruvernd, nr. 60/2013, voru ákvæði um efnistöku, þar á meðal um frágang efnistökusvæða, færð í skipulagslög, nr. 123/2010, og lög um rannsókn og nýtingu á auðlindum í jörðu, nr. 57/1998. Breytingin fól í sér að sá þáttur eftirlits með efnistöku sem hafði verið á höndum Umhverfisstofnunar, þ.e. eftirlit með frágangi efnistökusvæða, var færður til sveitarstjórnar.
Samkvæmt 13. gr. skipulagslaga er öll efnistaka á landi, úr botni vatnsfalla og stöðuvatna og úr hafsbotni innan netlaga háð framkvæmdaleyfi hlutaðeigandi sveitarstjórnar. Þó er eiganda eða umráðamanni eignarlands heimil án leyfis minni háttar efnistaka til eigin nota nema um sé að ræða náttúruverndarsvæði eða jarðminjar eða vistkerfi sem njóta verndar skv. 61. gr. laga um náttúruvernd. Samkvæmt 16. gr. skipulagslaga hefur sveitastjórn eftirlit með að framkvæmdir séu í samræmi við útgefið framkvæmdaleyfi. Sé ásigkomulagi, frágangi, notkun eða umhverfi framkvæmdar ábótavant eða stafi af henni hætta, skal eftirlitsaðili gera framkvæmdaaðila viðvart um það og leggja fyrir hann skriflega um hverju bæta eigi úr. Þegar um er að ræða efnistöku getur sveitarstjórn krafist þess að námuréttarhafi leggi fram tryggingu sem hún telur fullnægjandi fyrir áætluðum kostnaði við eftirlit og frágang efnistökusvæða. Efnistökusvæði skal ekki standa ónotað og ófrágengið lengur en þrjú ár. Sveitarstjórn getur þó veitt undanþágu frá þessu ákvæði, enda séu sérstakar ástæður fyrir tímabundinni stöðvun.
Meðal þess sem koma skal fram í framkvæmdaleyfi, sbr. 12. gr. reglugerðar nr. 772/2012, um framkvæmdaleyfi, er samantekt á lýsingu og frágangi framkvæmdar. Þegar sótt er um framkvæmdaleyfi þarf að koma fram hvernig staðið verður að frágangi og er framkvæmdaraðila skylt að fylgja áætlun sinni um frágang efnistökusvæðis.
Áætlun um frágang skal taka mið af umhverfi efnistökusvæðis og fyrirhugaðri landnotkun til framtíðar. Ef efnistökusvæði er gróið áður en efnistaka hefst, þarf að græða það upp þegar efnistöku lýkur. Bannað er að brenna og urða úrgang í námum og því skal fjarlægja allan úrgang af efnistökusvæðum áður en frágangur hefst.
3. Hvaða úrræðum geta eftirlitsaðilar beitt, t.d. í þeim tilfellum þar sem rusli eða úrgangi er komið þar fyrir?
Um meðhöndlun úrgangs frá námuiðnaði er fjallað í V. kafla laga um meðhöndlun úrgangs, nr. 55/2003, en námuúrgangsstaður skal hafa gilt starfsleyfi sem Umhverfisstofnun veitir. Rekstraraðili skal m.a. gera úrgangsáætlun sem miðar að því að lágmarka úrgang og kveður á um meðhöndlun og þá sérstaklega endurnýtingu eða förgun á úrgangi.
Eins og fram er komið er í 16. gr. skipulagslaga mælt fyrir um eftirlit sveitarfélaga með leyfisskyldum framkvæmdum. Í 2. mgr. ákvæðisins kemur fram að sé ásigkomulagi, frágangi, notkun eða umhverfi framkvæmdar ábótavant eða stafi af henni hætta að mati sveitarstjórnar skuli hún gera framkvæmdaraðila viðvart um það og leggja fyrir hann að bæta úr því sem áfátt er. Í 2. mgr. 16. gr. reglugerðar um framkvæmdaleyfi segir að sé framkvæmd í ósamræmi við útgefið framkvæmdaleyfi eða skilyrði þess skuli skipulagsfulltrúi stöðva framkvæmd þar til úr hafi verið bætt og tilkynna sveitarstjórn þá ákvörðun. Í 1. mgr. 17. gr. reglugerðarinnar segir að sveitarstjórn sé heimilt að beita dagsektum til að knýja framkvæmdaaðila til framkvæmda á ráðstöfunum sem þeim er skylt að hlutast til um samkvæmt reglugerðinni eða láta af atferli sem er ólögmætt. Sinni aðili ekki fyrirmælum sveitarstjórnar innan þess frests sem hún setur getur sveitarstjórn ákveðið dagsektir þar til úr verður bætt. Hámark dagsekta er 500.000 kr. á dag.