Ferill 251. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


151. löggjafarþing 2020–2021.
Þingskjal 735  —  251. mál.




Svar


umhverfis- og auðlindaráðherra við fyrirspurn frá Höllu Signýju Kristjánsdóttur um endurskoðun laga um vernd Breiðafjarðar.


    Fyrirspurnin hljóðar svo:
    Hyggst ráðherra hefja vinnu við heildarendurskoðun á lögum um vernd Breiðafjarðar, nr. 54/1995, og ef svo er:
     a.      með hvaða hætti yrði unnið að þeirri endurskoðun,
     b.      hvaða þættir yrðu sérstaklega skoðaðir?


    Umhverfis- og auðlindaráðuneytið hefur þegar hafið samvinnu við Breiðafjarðarnefnd um endurskoðun laga um vernd Breiðafjarðar. Aðdragandi verkefnisins er að Breiðafjarðarnefnd óskaði eftir því með bréfi dags. 2. maí 2018 að ráðuneytið tæki lög um vernd Breiðafjarðar, nr. 54/1995, til endurskoðunar. Breiðafjarðarnefnd var boðuð til fundar í ráðuneytinu í ágúst 2018 og farið yfir helstu atriði er varðaði vernd Breiðafjarðar og var niðurstaða fundarins að tímabært væri að endurskoða lög um vernd Breiðafjarðar. Í upphafi lagði nefndin til að við endurskoðun skyldi lögð áhersla á eftirfarandi atriði:
     1.      Gildissvið laganna: mörk verndarsvæðis Breiðafjarðar.
     2.      Stækkun verndarsvæðis Breiðafjarðar.
     3.      Að lögin endurspegli í ríkari mæli alþjóðasamninga á sviði náttúruverndar sem Íslendingar hafa fullgilt og stefnumörkun íslenskra stjórnvalda í umhverfismálum.
     4.      Fyrirkomulag stjórnar og reksturs verndarsvæðis Breiðafjarðar.
     5.      Skýrar reglur og refsiákvæði.
     6.      Setning reglugerða sem styðja og skýra lög um vernd Breiðafjarðar.
    Í framhaldi af fundi Breiðafjarðarnefndar með ráðuneytinu, eða í október sama ár óskaði ráðuneytið eftir því að Breiðafjarðarnefnd sendi ráðuneytinu tillögur sínar um breytingar á lögunum við fyrsta tækifæri.
    Breiðafjarðarnefnd ákvað í framhaldinu að skoða þá kosti sem koma til greina til þess að auka vernd Breiðafjarðar í framtíðinni og hefur nefndin lagt áherslu á víðtækt samráð við íbúa, sveitarfélög og aðra hagsmunaaðila í sinni vinnu. Í upphafi vinnunnar í ársbyrjun 2019 fundaði Breiðafjarðarnefnd með sérfræðingum sem m.a. kynntu alþjóðasamninga á sviði náttúruverndar og mismunandi leiðir til friðlýsinga á grundvelli íslenskra laga. Eftir þá kynningu samþykkti Breiðafjarðarnefnd að hefja ítarlega kynningar- og samráðsvinnu sem fékk vinnuheitið „Framtíð Breiðafjarðar“. Nefndin einsetti sér strax í upphafi vinnunnar að móta sér ekki endanlega skoðun á því hvaða leiðir henni þættu fýsilegastar, heldur hvetja íbúa, sveitarstjórnir og aðra hagsmunaaðila til málefnalegs samtals og samráðs. Þannig yrðu mestar líkur á því að hægt yrði að finna samhljóm sem tæki tillit til mismunandi sjónarmiða varðandi framtíð Breiðafjarðar. Breiðafjarðarnefnd stóð fyrir fjölsóttu málþingi í Tjarnarlundi í Dalabyggð í október 2019, þar sem mögulegar leiðir fyrir framtíð Breiðafjarðar voru kynntar og hvaða tækifæri fælust í hverri þeirra. Breiðafjarðarnefnd tók jafnframt saman gagnlegar upplýsingar tengdar verkefninu og birti á heimasíðu sinni, www.breidafjordur.is/framtid- breidafjardar/. Nefndin hefur staðið fyrir opnum fundum um framtíð Breiðafjarðar í öllum sveitarfélögum við Breiðafjörðinn auk sérstakra funda með hverri og einni sveitarstjórn. Nú vinnur Breiðafjarðarnefnd að samantekt um áherslur sínar sem nefndin mun skila ráðuneytinu í formi greinargerðar í upphafi ársins 2021. Ráðuneytið gerir ráð fyrir að í væntanlegri greinargerð Breiðafjarðarnefndar til ráðherra um framtíð Breiðafjarðar komi fram tillögur sem ræddar hafa verið á fundum með heimamönnum sem einnig skuli taka til skoðunar.
    Því er einnig við að bæta að nú er unnið að stofnun þjóðgarðs á sunnanverðum Vestfjörðum sem liggur að verndarsvæði Breiðafjarðar, friðlýsing Látrabjargs er í vinnslu á lokastigi og stækkun Þjóðgarðsins Snæfellsjökuls er í kynningu. Má ætla að í framtíðinni verði einhver tenging milli svæðanna og því líklegt að horft verði til þeirrar sviðsmyndar þegar lög um vernd Breiðafjarðar verða endurskoðuð.