Ferill 261. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
151. löggjafarþing 2020–2021.
Þingskjal 736 — 261. mál.
Svar
umhverfis- og auðlindaráðherra við fyrirspurn frá Höllu Signýju Kristjánsdóttur um urðunarstaði búfjár sem fargað er vegna sjúkdóma.
1. Hver er ábyrgð Umhverfisstofnunar á að viðhalda og miðla upplýsingum um urðunarstaði búfjár sem hefur verið fargað vegna búfjársjúkdóma?
Umhverfisstofnun ber ábyrgð á útgáfu starfsleyfa og eftirliti með allri urðun úrgangs á urðunarstöðum, sbr. lög nr. 55/2003, um meðhöndlun úrgangs, og lög nr. 7/1998, um hollustuhætti og mengunarvarnir, þ.m.t. aukaafurða dýra sem fara til urðunar og eru því úrgangur.
Eftirlit Umhverfisstofnunar tekur til athugunar á öllum þáttum umhverfisáhrifa viðkomandi starfsemi sem máli skipta sem og hollustuhátta, sbr. 54. gr. laga nr. 7/1998. Eftirlitsaðili hefur eftirlit með því að farið sé að skilyrðum fyrir viðkomandi starfsemi, sbr. 1. mgr. 55. gr. laganna. Ef frávik verða skal eftirlitsaðili krefja rekstraraðila að gera hverjar þær viðeigandi viðbótarráðstafanir sem eftirlitsaðili telur nauðsynlegar til að koma reglufylgni á aftur, sbr. 1. máls. 2. mgr. sama ákvæðis. Eftirlitið felst m.a. í því að athuga hvort starfsemin sé í samræmi við starfsleyfi og ganga úr skugga um að hún sé í samræmi við löggjöf.
Lög nr. 55/2003, um meðhöndlun úrgangs, tóku gildi 7. apríl 2003 og ná því til þeirra urðunarstaða sem hafa verið starfræktir eftir að lögin tóku gildi. Urðunarstað telst ekki vera endanlega lokað fyrr en eftirlitsaðili hefur skoðað vettvang og metið upplýsingar rekstraraðila varðandi lokun og Umhverfisstofnun veitt samþykki fyrir lokun, sbr. 1. mgr. 61. gr. laga nr. 55/2003. Umhverfisstofnun er heimilt að gefa rekstraraðila fyrirmæli um lokunaraðgerðir, vöktun og umsjón með því svæði þar sem rekinn hefur verið urðunarstaður, sbr. 6. mgr. sama ákvæðis. Slík fyrirmæli um frágang og vöktun hafa verið unnin og þeim þinglýst fyrir 18 aflagða urðunarstaði víða um land.
Almenningur á rétt á aðgengi að upplýsingum um starfsemi, m.a. um starfsleyfisumsókn, starfsleyfi og mengunarvarnaeftirlit í samræmi við 6. gr. og IV. viðauka reglugerðar nr. 550/2018 um losun frá atvinnurekstri og mengunarvarnaeftirlit. Umhverfisstofnun birtir upplýsingar um starfsleyfisskylda starfsemi á vefsíðu stofnunarinnar, m.a. starfsleyfi, eftirlitsskýrslur og lokunarfyrirmæli.
2. Hefur Umhverfisstofnun upplýsingar um riðuveikigrafir og miltisbrandsgrafir, svo sem kort eða yfirlit? Ef svo er, hversu langt aftur ná þær upplýsingar?
Skrá um riðuveikigrafir og miltisbrandsgrafir er ekki til hjá Umhverfisstofnun. Rétt er að geta þess að unnið er að reglugerð um mengaðan jarðveg í umhverfis- og auðlindaráðuneytinu þar sem m.a. er mælt fyrir um að Umhverfisstofnun skuli halda skrá yfir menguð svæði og svæði þar sem grunur er um mengun. Þar skulu koma fram upplýsingar um staðsetningu, stærð, tegund mengunar og ástæðu þess að svæði er mengað eða grunur leikur á um mengun. Skráin skal vera aðgengileg á vef Umhverfisstofnunar og uppfærð eftir þörfum. Þá er einnig mælt fyrir um gerð yfirlits yfir eldri svæði sem eru menguð eða þar sem grunur er um mengun. Yfirlitið skal byggt á fyrirliggjandi upplýsingum og skal m.a. taka tillit til þess hvort greftrun dýrahræja hefur farið fram á svæðinu. Drög að reglugerðinni hafa verið birt á samráðsgátt stjórnvalda og er ráðgert að reglugerðin verði sett í upphafi ársins 2021.
3. Þykir ástæða til þess að auka eftirlitsskyldu með urðunarstöðum búfjár vegna búfjársjúkdóma?
Í reglugerð (EB) nr. 1069/2009 eru aukaafurðir dýra flokkaðar í þrjá áhættuflokka og skal förgun þess hagað í samræmi við það. Almennt gildir að efni í 1. áhættuflokki skal fargað sem úrgangi með brennslu, sbr. a- og b-lið 12. gr. reglugerðar (EB) nr. 1069/2009 um heilbrigðisreglur að því er varðar aukaafurðir dýra og afleiddar afurðir sem ekki eru ætlaðar til manneldis, sbr. og reglugerð nr. 674/2017. Efni í 2. áhættuflokki skal fargað með brennslu, eða urðun að undangenginni sæfingu. Á þessu eru þó fjölmargar undantekningar eftir tegund þess efnis sem um ræðir. Ekki hefur verið gerð sérstök áætlun um mögulega urðunarstaði vegna urðunar á búfé sem fellt er vegna búfjársjúkdóma þar sem búfé sem fellt er vegna alvarlegra búfjársjúkdóma á að fara í brennslu, eða eftir atvikum urðun að undangenginni sæfingu. Komi upp neyðarástand þar sem grípa þarf til urðunar á búfé sem fellt er vegna búfjársjúkdóma er leitast við að urða það á urðunarstað sem er vaktaður og undir eftirliti Umhverfisstofnunar en það er gert í algjörum undantekningartilvikum.
Umhverfisstofnun hefur reglubundið eftirlit með 14 urðunarstöðum með starfsleyfi þar sem heimilt er að urða almennan úrgang, og 18 aflögðum urðunarstöðum. Á grundvelli eftirlitsáætlana gerir eftirlitsaðili reglulega áætlanir um reglubundið eftirlit með atvinnurekstri, þ.m.t. um tíðni reglubundinna vettvangsheimsókna fyrir mismunandi starfsemi. Tímabilið milli tveggja reglubundinna vettvangsheimsókna skal byggjast á kerfisbundnu mati á umhverfisáhættu viðkomandi starfsemi og skal, fyrir starfsemi samkvæmt viðaukum I og II (urðun), ekki vera lengra en eitt ár fyrir starfsemi sem veldur mestri áhættu en þrjú ár fyrir starfsemi sem veldur minnstri áhættu, sbr. 4. mgr. 54. gr. laga nr. 7/1998. Þetta mat er einnig þekkt sem áhættumat þar sem tekið er mið af mengunarhættu viðkomandi starfsemi. Þá eru lokunarfyrirmæli eldri urðunarstaða endurskoðuð reglulega. Ekki hefur þótt ástæða til að auka eftirlit með urðunarstöðum búfjár umfram það eftirlit sem viðhaft er og byggist á áhættumati og eftirlitsáætlun. Rétt er einnig að nefna fyrirhugaða skrá yfir menguð svæði og svæði þar sem grunur er um mengun eins og greint er frá í svari við 2. tölul. fyrirspurnarinnar. Gert er ráð fyrir að skráin veiti stjórnvöldum og almenningi upplýsingar um slík svæði og þar með ef tilefni er til viðbragða.
4. Hefur verið gerð áætlun um mögulega urðunarstaði vegna urðunar á fé sem skorið er niður vegna bráðsmitandi búfjársjúkdóma?
Eins og kom fram í svari við 3. tölul. fyrirspurnarinnar þá er urðun í tilfelli alvarlegra búfjársjúkdóma neyðarráðstöfun og því einungis gripið til hennar í algerum undantekningartilfellum. Áætlun liggur ekki fyrir. Rétt er að benda á að unnið er að stefnu um meðhöndlun úrgangs þar sem gert er ráð fyrir að brennslugeta aukist í landinu fyrir úrgang sem verður að farga með þeim hætti. Sveitarfélög fara með forræði á fyrirkomulagi við meðhöndlun úrgangs sem fellur til innan sveitarfélaganna, sbr. 8. og 9. gr. laga nr. 55/2003, um meðhöndlun úrgangs.