Ferill 406. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
151. löggjafarþing 2020–2021.
Þingskjal 744 — 406. mál.
Svar
umhverfis- og auðlindaráðherra við fyrirspurn frá Ágústi Ólafi Ágústssyni um stórhvalaveiðar.
1. Hver er afstaða ráðherra til stórhvalaveiða við Ísland?
Afstaða ráðherra er óbreytt frá fyrri svörum til Alþingis varðandi stórhvalaveiðar við Ísland. Í munnlegu svari við fyrirspurn háttvirts þingmanns, Guðmundar Andra Thorssonar, á 149. löggjafarþingi um hvali, sagðist ráðherra ekki sannfærður um að hvalveiðar hér við land væru sjálfbærar. Þá lýsti hann efasemdum sínum um að hagsmunir Íslendinga af nýtingu hvala væru eins miklir og stundum væri haldið fram. Það er skoðun ráðherra að horfa þurfi til fleiri þátta en vistfræðilegra við ákvörðun um stórhvalaveiðar, svo sem efnahagslegra þátta, hvaða áhrif hvalveiðar hafi á ímynd ferðaþjónustunnar og landsins sem kennir sig við náttúru- og umhverfisvernd. Ráðherra er af þessum sökum mótfallinn stórhvalaveiðum við Ísland.
2. Hyggst ráðherra beita sér fyrir að slíkar veiðar verði ekki heimilar?
Ráðherra hefur látið afstöðu sína skýrt í ljósi en skv. a-lið 5. tölul. 2. gr. forsetaúrskurðar nr. 119/2018, um skiptingu stjórnarmálefna milli ráðuneyta í Stjórnarráði Íslands, fer atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytið með mál er varða stjórn á verndun og nýtingu fiskistofna og annarra lifandi auðlinda hafsins og hafsbotnsins, svo sem stórhvala og sela. Það er því ekki á forræði umhverfis- og auðlindaráðherra að taka ákvarðanir um breytta tilhögun stórhvalaveiða við Ísland.