Ferill 437. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
151. löggjafarþing 2020–2021.
Þingskjal 749 — 437. mál.
Svar
samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra við fyrirspurn frá Albertínu Friðbjörgu Elíasdóttur um hlutfall starfa utan ráðuneytis vegna COVID-19-faraldursins.
Fyrirspurnin hljóðar svo:
Hversu hátt hlutfall starfsmanna ráðuneytisins hefur sinnt störfum sínum utan ráðuneytisins að hluta eða öllu leyti vegna COVID-19-faraldursins?
Um 85% starfsmanna ráðuneytisins hafa sinnt störfum sínum utan ráðuneytisins að hluta eða öllu leyti vegna Covid-19-faraldursins. Fjöldi starfsmanna á staðnum hefur verið í samræmi við gildandi samkomutakmarkanir hverju sinni.