Ferill 435. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


151. löggjafarþing 2020–2021.
Þingskjal 750  —  435. mál.




Svar


heilbrigðisráðherra við fyrirspurn frá Albertínu Friðbjörgu Elíasdóttur um hlutfall starfa utan ráðuneytis vegna COVID-19-faraldursins.


    Fyrirspurnin hljóðar svo:
     Hversu hátt hlutfall starfsmanna ráðuneytisins hefur sinnt störfum sínum utan ráðuneytisins að hluta eða öllu leyti vegna COVID-19-faraldursins?

    Frá upphafi faraldursins hafa 93% starfsmanna sinnt störfum sínum utan ráðuneytisins að hluta eða öllu leyti.