Ferill 150. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
151. löggjafarþing 2020–2021.
Þingskjal 791 — 150. mál.
Svar
félags- og barnamálaráðherra við fyrirspurn frá Önnu Kolbrúnu Árnadóttur um biðtíma hjá Greiningar- og ráðgjafarstöð ríkisins.
1. Hver er biðtími eftir greiningu hjá Greiningar- og ráðgjafarstöð ríkisins? Óskað er eftir yfirliti yfir biðtíma síðustu fjögur ár, sundurliðað.
Greiningar- og ráðgjafarstöð ríkisins (GRR) er miðlæg þjónustu- og þekkingarmiðstöð sem starfar á þverfaglegum grunni og sinnir börnum að 18 ára aldri. Í ársskýrslum stofnunarinnar er hægt að nálgast upplýsingar um verkefni hennar og skipulag á greining.is
Þegar grunur vaknar um alvarleg þroskafrávik hjá barni hefst ferli athugana og rannsókna sem getur leitt til tilvísunar á GRR. Sé um þekkt heilkenni eða alvarlegan meðfæddan vanda að ræða er ekki krafist ítarlegrar frumgreiningar en annars þarf frumgreining að hafa farið fram áður en tilvísun er send á stofnunina. Það er á ábyrgð þess sérfræðings sem gerir frumathugun að stuðla að því að viðeigandi þjónusta, þjálfun og sérkennsla hefjist sem fyrst.
Helstu tilvísendur til GRR eru sálfræðingar og aðrir sérfræðingar leikskóla- og grunnskólaþjónustu, sérfræðingar á heilbrigðisstofnunum og sjálfstætt starfandi sálfræðingar og barnalæknar. Áhersla er lögð á að börn sem búast má við að verði með mesta skerðingu í þroska og færni til frambúðar njóti forgangs að þjónustunni.
Þegar fjallað er um biðtíma þá er í sjálfu sér ekki hægt að gefa út nákvæmar upplýsingar um það vegna þess hve aðstæður geta verið breytilegar. Á GRR er stöðugt símat í gangi á því hvenær einstaklingar komast í greiningu. Það mat byggist á mörgum þáttum, m.a. umfangi röskunar og áhrifum hennar á aðstæður hvers og eins einstaklings.
Á meðfylgjandi töflu er yfirlit yfir biðtíma hjá GRR síðustu fjögur ár, sundurliðað eftir árum:
| Ár | Algengur biðtími 2–18 ára eftir greiningu |
| 2017 | 10–17 mán. |
| 2018 | 16–19 mán. |
| 2019 | 13–21 mán. |
| 2020 | 13–24 mán. |
Þegar fjallað er um biðtíma eftir þjónustu er mikilvægt að eftirfarandi sé haft í huga:
* Biðtími er mismunandi eftir aldurshópum og alvarleika röskunar.
* Börn á aldrinum 0–2ja ára þurfa öllu jöfnu ekki að bíða eftir þjónustu.
* Börn á aldrinum 2–6 ára geta þurft að bíða eftir þjónustu í allt að 24 mánuði. Þess ber þó að geta að sé um alvarlega röskun að ræða getur biðtíminn farið niður í örfáa mánuði.
* Börn og unglingar 6–18 ára þurfa að bíða í allt að 24 mánuði. Þess ber þó að geta að sé um alvarlega röskun að ræða getur biðtíminn styst um helming.
2. Hversu mörg börn eru á biðlista hjá stöðinni? Óskað er eftir upplýsingum um lengd biðlista síðustu fjögur ár, sundurliðað.
Meðfylgjandi er línurit sem sýnir fjölda barna á biðlista sl. fjögur ár.
Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.
Meðfylgjandi línurit sýnir fjölda samþykktra tilvísana til GRR sl. fjögur ár.
Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.
Fjöldi tilvísana jókst nokkuð á árunum 2016–2018 en fækkaði töluvert á seinasta ári eftir að skerpt var á inntökuskilyrðum og skýrari grein gerð fyrir markhópum stöðvarinnar.
Eins og sjá má á meðfylgjandi yfirliti yfir klíníska þjónustu á vegum GRR er starfsemin fjölþætt. Auk þess sem gerðar eru þverfaglegar greiningar á börnum sem vísað er til hennar, t.d. vegna gruns um einhverfu eða þroskahömlun, er lögð mikil áhersla á íhlutun og ráðgjöf. Fjöldi þverfaglegra athugana hefur haldist stöðugur á seinustu árum þrátt fyrir að mikil fjölgun hafi orðið í hópi barna af erlendum uppruna en lengri tími fer í greiningar hjá þeim börnum.
Á sama tíma hefur þjónusta tengd ráðgjöf og íhlutun aukist. Tímabundin ráðgjöf og íhlutun byggist oft á niðurstöðum frumgreiningar og er þá veitt á meðan beðið er eftir endanlegri greiningu hjá GRR.
Rannsóknir hafa sýnt að ef sérhæfð og öflug þjálfun hefst snemma getur hún stuðlað að markverðum árangri ekki hvað síst hjá börnum með einhverfu. Á stofnuninni fer fram öflug fræðsla og kennsla m.a. um helstu íhlutunarleiðir og kennsluaðferðir sem nýtast foreldrum og þjónustuaðilum við uppeldi og íhlutun barna og ungmenna með þroskafrávik. Jafnframt er veitt langtímaeftirfylgd fyrir börn og ungmenni sem greinst hafa með samþætta og flókna fötlun á GRR. Hún er oft veitt í nokkur ár og mörg börn njóta þeirrar þjónustu að 18 ára aldri en fjölgun hefur orðið í þeim hópi undanfarin ár.
Meðfylgjandi er tafla sem m.a. sýnir verulega aukinn fjölda barna sem naut tímabundinnar ráðgjafar og íhlutunar og langtímaeftirfylgdar.
Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.
Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.
Myndin hér að framan sýnir að á seinustu árum hefur tilvísunum fyrir börn af erlendum uppruna aukist. Á seinustu fimm árum hefur tilvísunum fyrir börn sem eiga foreldra sem báðir eru erlendir fjölgað mikið. 30% af tilvísunum sem bárust á árinu 2019 voru fyrir börn af erlendum uppruna. Athuganir á þessum hópi barna geta verið flóknar og tímafrekar og þeim fylgir meiri kostnaður m.a. vegna þjónustu túlka.
3. Hversu mikið fjármagn hefur ríkissjóður veitt árlega til starfseminnar síðustu fjögur ár?
Hér fylgja upplýsingar um þróun fjárveitinga til stöðvarinnar.
Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.
Alþingi hefur nú samþykkt framlag að upphæð 80 millj. kr. til að fækka þeim sem eru á bið eftir þjónustu. Framlagið gerir það að verkum að biðlistinn fer niður í um 200 börn fyrir mitt ár 2022. Markhópurinn væri fyrst og fremst börn á aldrinum 2–6 ára. Biðlistinn í þeim aldurshópi færi niður úr 214 börnum niður í 80–90 börn. Markmiðið væri að á þeim tíma yrði meðalbiðtími aldrei lengri en 10 mánuðir. Hér er þó rétt að taka það fram að sé um alvarlegar raskanir að ræða er og verður biðtími styttri.
GRR vinnur að tveimur tilraunaverkefnum og hefur gert samstarfssamning um stofnun landshlutateyma á Suðurlandi og Suðurnesjum. Markmiðið er að auka samvinnu og samráð milli GRR og þjónustuaðila í heimabyggð við greiningu og íhlutun fatlaðra barna. Snúa markmiðin m.a. að því að stytta biðtíma eftir þjónustu GRR og stuðla að virkari forgangsröðun að þjónustu stofnunarinnar og að tilvísanir til GRR verði í samræmi við þörf fyrir frekari greiningu, að í greiningarferlinu sé samfella í þjónustu við barnið í heimabyggð og stuðningur eftir þörfum frá GRR.
Félags- og barnamálaráðherra og heilbrigðisráðherra hafa óskað eftir því að unnin verði víðtæk greining á ástæðu þess að bið barna eftir heilbrigðis- og félagsþjónustu er svo löng sem raun ber vitni og að tillögum um hvaða leiðir eru færar til úrbóta verði skilað til félags- og barnamálaráðherra og heilbrigðisráðherra fyrir 15. febrúar 2021.
Undanfarin ár hefur undir forystu félagsmálaráðuneytisins verið unnið að undirbúningi lagaumhverfis sem miðar að því að tryggja börnum og aðstandendum þeirra snemmbæran, samþættan stuðning þvert á kerfi. Verkefnið hefur verið unnið í víðtæku samráði við fjölmarga aðila, svo sem önnur ráðuneyti, þingmannanefnd um málefni barna, félagasamtök og almenning.
Markmið þessara breytinga er að tryggja að mismunandi þjónustukerfi innan velferðarþjónustunnar vinni betur saman. Lagabreytingarnar sem að er stefnt taka til allrar þjónustu sem fer fram innan skólakerfisins, í leik-, grunn- og framhaldsskólum, á frístundaheimilum og í félagsmiðstöðvum. Þær taka einnig til þjónustu sem er veitt innan heilbrigðiskerfisins, í heilsugæslu, á heilbrigðisstofnunum og sjúkrahúsum og félagsþjónustu sem er veitt innan sveitarfélaga, barnaverndarþjónustu og þjónustu við börn með miklar stuðningsþarfir.
Ljóst er að fyrrgreindar breytingar, gangi þær eftir, hafa veruleg áhrif á biðlista á Greiningar- og ráðgjafarstöð ríkisins þar sem fleiri börn njóta snemmtæks stuðnings á fyrri þjónustustigum sem ætti að draga úr þörf þeirra fyrir þjónustu stöðvarinnar. Um leið skapast svigrúm til að sinna þeim börnum og fjölskyldum þeirra sem hafa miklar eða mjög miklar stuðningsþarfir.
Þær breytingar sem nú er lagt upp með í breyttri lagaumgjörð í þjónustu við börn og ungmenni á Íslandi hafa m.a. það markmið að draga úr fjölda tilvísana til GRR og styrkja stöðu þjónustu við börn og ungmenni í þeirra nærumhverfi.