Ferill 472. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


151. löggjafarþing 2020–2021.
Prentað upp.

Þingskjal 795  —  472. mál.
Brottfall. Leiðréttur texti.




Frumvarp til laga


um breytingu á lögum um hlutafélög, nr. 2/1995 (aukinn aðgangur að hlutafélagaskrá).

Flm.: Björn Leví Gunnarsson, Helgi Hrafn Gunnarsson, Jón Þór Ólafsson, Sara Elísa Þórðardóttir, Smári McCarthy, Þórhildur Sunna Ævarsdóttir, Guðmundur Ingi Kristinsson, Inga Sæland, Jón Steindór Valdimarsson, Andrés Ingi Jónsson.


1. gr.

         Við 2. mgr. 147. gr. laga um hlutafélög, nr. 2/1995, með síðari breytingum, bætist nýr málsliður, svohljóðandi: Engin gjaldtaka skal vera fyrir rafræna uppflettingu í skránni og skulu allar upplýsingar birtast í rafrænni uppflettingu.

2. gr.

    Lög þessi öðlast þegar gildi.

Greinargerð.

    Frumvarp þetta var áður lagt fram á 150. löggjafarþingi (82. mál), 149. löggjafarþingi (852. mál) og 148. löggjafarþingi (12. mál) en hlaut ekki afgreiðslu og er nú flutt að nýju með breytingum í ljósi nýlegrar lagasetningar um ársreikningaskrá.
    Með frumvarpinu er lagt til að upplýsingar hlutafélagaskrár verði aðgengilegri fyrir almenning. Lagt er til að ekki skuli taka gjald fyrir rafræna uppflettingu í skránni og að sömu upplýsingar skuli vera aðgengilegar þar og ef greitt væri fyrir eintak af gögnum úr henni. Þessar upplýsingar geta ekki talist aðgengilegar almenningi miðað við núverandi löggjöf þar sem greiða þarf fyrir þær.
    Frumvarp til laga sambærilegt þessu er varðaði aukinn aðgang að fyrirtækjaskrá var samþykkt á Alþingi á 146. löggjafarþingi og varð að lögum nr. 64/2017. Fólu lögin í sér að veita almenningi aðgang að fyrirtækjaskrá án gjaldtöku. Hér er lagt til að gögn sem tengjast þeim sem er að finna í fyrirtækjaskrá verði gerð aðgengileg á sama hátt.