Ferill 489. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


151. löggjafarþing 2020–2021.
Þingskjal 820  —  489. mál.




Tillaga til þingsályktunar


um aðgerðaáætlun til að styrkja stöðu drengja í skólakerfinu.


Flm.: Helga Vala Helgadóttir, Albertína Friðbjörg Elíasdóttir, Ágúst Ólafur Ágústsson, Guðjón S. Brjánsson, Guðmundur Andri Thorsson, Logi Einarsson, Oddný G. Harðardóttir, Rósa Björk Brynjólfsdóttir.


    Alþingi ályktar að fela mennta- og menningarmálaráðherra að gera tímasetta og fjármagnaða aðgerðaáætlun til fjögurra ára, fyrir árin 2022–2025, til að styrkja stöðu drengja í skólakerfinu. Ráðherra kynni Alþingi aðgerðaáætlunina á haustþingi 2021.

Greinargerð.

    Með tillögu þessari er lagt til að mennta- og menningarmálaráðherra undirbúi og leggi fram aðgerðaáætlun til að styrkja stöðu drengja í skólakerfinu. Ráðherra vinni áætlunina í nánu samráði við sveitarfélög, Menntavísindasvið Háskóla Íslands, Kennarasamband Íslands, hagsmunasamtök námsmanna, Landssamtökin Geðhjálp, Landssamtökin Þroskahjálp og aðila vinnumarkaðarins.
    Lausnin á vanda íslenskra drengja í skólakerfinu er ekki einföld. Mikilvægt er að samráð sé haft við alla sem koma að málinu, það sé sem víðtækast og byggt á gögnum og nýjustu þekkingu. Vandi drengja í skólakerfinu er ein stærsta áskorunin sem það stendur frammi fyrir, drengjum gengur verr í skóla en stúlkum, brottfall þeirra er meira og hátt hlutfall drengja mælist með lélega kunnáttu í lestri.
    Alþjóðlega könnunin PISA sem lögð var fyrir 15 ára nemendur vorið 2018 sýnir fram á að hlutfall nemenda sem ekki ná grunnhæfni í lesskilningi hækkar úr 22% í 26% milli kannana. Hjá drengjum hækkar hlutfallið úr 29% í 34%.
    Mun lægra hlutfall karla en kvenna hefur lokið háskólaprófi undanfarin ár. Drengir virðast því ekki jafn vel undirbúnir og stúlkur fyrir hefðbundið framhaldsskólanám að loknum grunnskóla. Það sést á tölum um brottfall úr framhaldsskólum og útskriftir úr framhaldsskólum og tölfræðilegum upplýsingum frá háskólum landsins.
    Árið 1975 var kynjahlutfall þeirra sem luku stúdentsprófi jafnt. Árið 2018 var hlutfallið hins vegar 60% konur og 40% karlar. Þegar tölur um þá sem ljúka námi í háskóla eru skoðaðar eykst munurinn. Árið 1973 voru 76% þeirra sem luku háskólaprófi karlmenn. Árið 1985 var hlutfall kynjanna jafnt, sem var gríðarlega jákvæð þróun. Í dag er staðan hins vegar sú að 34% þeirra sem ljúka háskólaprófi eru karlmenn. Það er ljóst að einhvers staðar er pottur brotinn og nauðsynlegt er að ráðast í aðgerðir til þess að bæta stöðu drengja í skólakerfinu.
    Líðan nemenda skiptir máli í þessu samhengi. Skýrsla sem fyrirtækið Rannsóknir og greining gerði fyrir mennta- og menningarmálaráðuneytið árið 2018 sýndi að börnum í 8.–10. bekk grunnskóla líður verr nú en fyrir 20 árum. Stúlkum líður almennt verr en drengjum en þær standa sig samt betur í námi. Orsakaþættir eru margir, allt frá minni svefni yfir í neyslu vímuefna, auk þess sem tilkoma samfélagsmiðla meðal barna og ungmenna, sem þekktist ekki fyrr en eftir 2012, á einnig þátt í verri líðan. Mikilvægt er að í undirbúningi aðgerðaáætlunarinnar séu þessir þættir skoðaðir vel, rýnt verði hvað valdi versnandi líðan nemenda og að aðgerðaáætlunin taki á því. Verri líðan stúlkna er sérstakt áhyggjuefni sem taka verður á og er skorað á yfirvöld menntamála og heilbrigðismála að hefja strax skoðun á þeirri stöðu.