Ferill 414. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


151. löggjafarþing 2020–2021.
Þingskjal 842  —  414. mál.




Svar


utanríkis- og þróunarsamvinnuráðherra við fyrirspurn frá Andrési Inga Jónssyni um viðveru herliðs.


     1.      Hversu mikil var viðvera erlends herliðs á öryggissvæðinu á Keflavíkurflugvelli á árunum 2018–2020? Óskað er eftir að fram komi upphafs- og lokadagsetning viðveru hvers hóps, upprunaríki, fjöldi liðsmanna og tilefni viðveru.
    Sjá meðfylgjandi yfirlit yfir viðveru erlends liðsafla á öryggissvæðinu á Keflavíkurflugvelli á árunum 2018–2020. Erfitt er að gefa upp nákvæma komu- og brottfarardaga hvers hóps þar sem dagsetningar komu og brottfarar einstaklinga í hópum geta verið afar mismunandi. Þannig geta hópar verið nokkrar vikur að koma og að fara.


Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.




     2.      Telur ráðherra að munur sé á fastri viðveru herliðs annars vegar og daglegri viðveru herliðs yfir lengri tíma hins vegar? Ef svo er, í hverju felst sá munur?
    Að mati ráðuneytisins felur almennur skilningur á orðalaginu föst viðvera herliðs hér á landi í sér fasta búsetu sömu einstaklinga á ársgrundvelli. Þetta orðfæri er þannig talið eiga við það fyrirkomulag á viðveru herliðs sem tíðkaðist hér á landi fyrir árið 2006. Á þeim tíma fluttust bandarískir hermenn hingað til langdvalar ásamt fjölskyldum sínum. Þetta fól í sér að bandaríski herinn hélt úti fjölbreyttri þjónustu innan varnarsvæðisins, svo sem íbúðarhúsnæði, leik- og grunnskólum, aðstöðu til afþreyingar, verslun, kirkjustarfi og læknis- og sálfræðiþjónustu.
    Um þessar mundir eru tveir hermenn með fasta viðveru hér á landi. Annar er hermálafulltrúi Bandaríkjanna sem starfar í sendiráði Bandaríkjanna í Reykjavík. Hinn er norskur tengiliður Atlantshafsbandalagsins og Noregs hér á landi og hefur sá vinnuaðstöðu á öryggissvæðinu á Keflavíkurflugvelli. Báðir búa á höfuðborgarsvæðinu.
    Almennur skilningur á orðfærinu dagleg viðvera herliðs yfir lengri tíma er af ráðuneytinu talin fela í sér tímabundna dvöl mismunandi einstaklinga er tengist tímabundnum verkefnum. Algengasta dæmið um slík verkefni er loftrýmisgæsla. Viðvera henni tengd miðast að jafnaði við nokkrar vikur í hvert eitt sinn (fjórar til átta vikur). Fámennur hópur getur dvalið lengur við kafbátaeftirlit, eða í allt að sex mánuði sem er hámarksdvöl kafbátaeftirlitssveita í Evrópu. Hermenn koma án fjölskyldna sinna og dvelja í skammtímagistingu. Gistiríkjaþjónusta við þeirra persónulegu þarfir felst fyrst og fremst í aðgengi að mötuneyti og íþróttahúsi.
    Samið var við Bandaríkin árin 2006, 2016 og 2017 og við Atlantshafsbandalagið árið 2007 um uppbyggingu á öryggissvæðinu á Keflavíkurflugvelli og stuðning við tímabundna viðveru erlends liðsafla hér á landi. Aðildarþjóðir Atlantshafsbandalagsins eru nú þjálfaðar og útbúnar fyrir tímabundna viðveru enda mun ódýrari rekstur og umhverfisvænni en föst viðvera. Markmið Íslands og aðildarþjóða Atlantshafsbandalagsins er að liðsaflinn sé færanlegur og staðsettur á hverjum tíma þar sem þörf er á honum, flugtími stuttur, varnarmannvirki, gistiríkjastuðningur, þjálfað starfslið með sérfræðiþekkingu, kerfi, búnaður og birgðir til staðar fyrirvaralaust.
    Föst viðvera herliðs hér á landi hefur ekki komið til umræðu enda ekki talin þörf á henni.
    Alls fóru sex vinnustundir í að taka þetta svar saman.