Ferill 304. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


151. löggjafarþing 2020–2021.
Þingskjal 878  —  304. mál.




Svar


fjármála- og efnahagsráðherra við fyrirspurn frá Höllu Signýju Kristjánsdóttur um vangoldið vátryggingariðgjald ökutækis.


    Fyrirspurnin hljóðar svo:
     Hyggst ráðherra leggja til breytingu á lögum um ökutækjatryggingar, nr. 30/2019, sem tryggir að vangoldið vátryggingariðgjald færist ekki yfir á nýjan eiganda við eigendaskipti á ökutæki eða að gerð sé krafa um að tryggingariðgjöld verði gerð upp við eigendaskipti en skv. 12. gr. laganna hvílir vangoldið vátryggingariðgjald ásamt vöxtum og kostnaði sem lögveð á ökutæki í tvö ár og fellur ekki niður við eigendaskipti?

    Lög um ökutækjatryggingar, nr. 30/2019, tóku gildi þann 1. janúar 2020 samhliða gildistöku nýrra umferðarlaga, nr. 77/2019. Í eldri umferðarlögum, nr. 50/1997, var ekki að finna lögveðsheimild vegna vátryggingariðgjalds en kveðið var á um lögtaksrétt vegna gjaldsins. Í lögunum um ökutækjatryggingar var það nýmæli lögfest að kveðið var á um lögveðsheimild vegna vátryggingariðgjalds og heimildinni markaður tveggja ára gildistími. Þá er kveðið á um að lögveðið falli ekki niður við eigendaskipti og er sá réttur óháður því hvort nýr eigandi sé grandlaus, sbr. 12. gr. laganna. Í skýringum við lagaákvæðið í greinargerð frumvarpsins kemur fram að ákvæðið eigi sér fyrirmynd í 7. gr. laga um brunatryggingar, nr. 48/1994.
    Ljóst er að viðskipti með fasteignir lúta annarri umgjörð en viðskipti með ökutæki sem endurspeglast m.a. í ítarlegra lagaumhverfi á fasteignamarkaði. Sá eðlismunur sem er á þessum viðskiptum leiðir til þess að auðveldara er að fylgjast með ógreiddum iðgjöldum af fasteignum. Eðli lögveða sem leyndra hafta getur valdið kaupendum tjóni og bersýnilegt er að það geti átt við í viðskiptum með ökutæki, þar sem ekki er gerður áskilnaður um milligöngu bifreiðasala og örðugt getur reynst að fá upplýsingar um ógreidd vátryggingariðgjöld ökutækis.
    Fjármála- og efnahagsráðuneytinu hafa borist ábendingar um efnisatriði í lögum um ökutækjatryggingar sem talið er nauðsynlegt að sæti endurskoðun. Á meðal ábendinga er það atriði sem fyrirspurn þessi lýtur að. Innan ráðuneytisins er unnið að yfirferð á þeim ábendingum sem borist hafa um lög um ökutækjatryggingar. Stefnt er að því að afrakstur þeirrar vinnu verði tillaga að frumvarpi til laga um breytingu á lögum um ökutækjatryggingar sem hægt verði að leggja fram á Alþingi á næstunni.