Ferill 341. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


151. löggjafarþing 2020–2021.
Þingskjal 959  —  341. mál.
2. umræða.



Breytingartillaga


við frumvarp til laga um reglubundna og viðvarandi upplýsingaskyldu útgefenda verðbréfa og flöggunarskyldu.

Frá meiri hluta efnahags- og viðskiptanefndar (ÓBK, BN, JSV, BHar, OH, ÓGunn, ÞórP).


     1.      Við 5. gr.
                  a.      Í stað „7. mgr.“ í síðari málslið 3. mgr. komi: 6. mgr.
                  b.      Í stað orðsins „framfylgja“ í 5. mgr. komi: fylgja.
                  c.      Orðin „á Íslandi“ í fyrirsögn falli brott.
     2.      Í stað „1.–4. tölul.“ í e-lið 13. gr. komi: a–d-liðar.
     3.      3. mgr. 14. gr. orðist svo:
                  Aðili sem sendir tilkynningu á grundvelli 1. mgr. skal tilkynna aftur þegar hann aflar sér undirliggjandi hlutabréfa, ef slíkt leiðir af sér að hann nái þeim mörkum sem koma fram í 1. mgr. 12. gr. eða fer yfir þau.
     4.      Í stað „eða, ef móðurfélagið er sjálft dótturfélag annars félags, og móðurfélags þess sendir tilkynningu“ í 16. gr. komi: eða ef móðurfélagið er sjálft dótturfélag annars félags og móðurfélag þess sendir tilkynningu.
     5.      Við 37. gr.
                  a.      Í stað orðanna „jafngilt 100.000 evrum“ og orðanna „að jafnvirði 100.000 evrum“ í fyrri málslið 6. mgr. komi: jafnvirði 100.000 evra.
                  b.      Í stað orðanna „að jafnvirði 50.000 evrum“ í síðari málslið 6. mgr. komi: jafnvirði 50.000 evra.
     6.      Í stað „1. mgr.“ í 2. tölul. 39. gr. komi: 1. tölul.
     7.      Við 43. gr.
                  a.      5. tölul. 1. mgr. falli brott.
                  b.      Í stað orðsins „flöggunartilkynninga“ í 11. tölul. 1. mgr. komi: tilkynningar.
                  c.      Í stað orðanna „sem fjárhagslegur ávinningur af brotinu nemur“ í 6. mgr. komi: sem nemur fjárhagslegum ávinningi af broti eða tapi sem forðað er með broti.
     8.      6. mgr. 44. gr. falli brott.
     9.      Við 2. mgr. 52. gr. bætist: samkvæmt tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 2004/109/EB.
     10.      Við 57. gr.
                  a.      Í stað „ 3006/49/EB“ í 2. tölul. komi: 2006/48/EB, 2006/49/EB.
                  b.      Við 3. tölul. bætist: Tilskipunin var birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 7 frá 28. janúar 2021, bls. 424–438.
     11.      Við 59. gr.
                  a.      Í stað „VII., VII.“ í b-lið c-liðar 2. tölul. komi: VII., VIII.
                  b.      D-liður 2. tölul. orðist svo: Orðin „VII., VIII., IX. og“ í 1.–3. mgr. 135. gr. og 1. mgr. 136. gr. og orðin „VII., VIII., IX. eða“ í 1. málsl. 1. mgr. 137. gr. laganna falla brott.
     12.      Fyrirsögn frumvarpsins orðist svo: Frumvarp til laga um upplýsingaskyldu útgefenda verðbréfa og flöggunarskyldu.