Ferill 327. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


151. löggjafarþing 2020–2021.
Þingskjal 1035  —  327. mál.




Svar


mennta- og menningarmálaráðherra við fyrirspurn frá Ásmundi Friðrikssyni um kostnað við þáttagerð og verktöku hjá Ríkisútvarpinu.


     1.      Hver var heildarfjöldi starfsmanna á launaskrá Ríkisútvarpsins, RÚV, 31. desember 2019 og 30. september 2020? Hversu margir þeirra voru einnig verktakar við þáttagerð hjá RÚV?
    Samkvæmt upplýsingum frá Ríkisútvarpinu ohf. samsvaraði samanlagður fjöldi starfsmanna á launaskrá hjá Ríkisútvarpinu 271 stöðugildi hinn 31. desember 2019. Hinn 30. september 2020 samsvaraði fjöldinn 261 stöðugildi. Starfsmenn á launaskrá hjá Ríkisútvarpinu sinna ekki störfum sem verktakar á sama tíma og þeir eru launþegar. Ýmis dæmi eru um það að starfsfólk sinni störfum þvert á miðla og ef greitt er fyrir slíkt sérstaklega er það hluti af launagreiðslum viðkomandi. Einnig eru dæmi um það að fólk sem hefur sinnt dagskrárgerð í verktöku hafi verið ráðið inn sem launþegar og öfugt, en ekki eru nein dæmi um það að undanförnu að fólk sinni starfi launþega og verktaka samtímis hjá Ríkisútvarpinu.

     2.      Hvaða þættir RÚV voru unnir af starfsmönnum stofnunarinnar sem verktakar á árunum 2015–2020? Óskað er eftir upplýsingum um heiti hvers þáttar.
    Samkvæmt upplýsingum frá Ríkisútvarpinu ohf. var enginn þáttur unninn undir slíku fyrirkomulagi þar sem starfsmenn Ríkisútvarpsins vinna ekki sem launþegar og verktakar á sama tíma.

     3.      Hver er heildarkostnaður hvers þáttar sem spurt er um í 2. tölul.? Hversu lengi hefur hver þáttur verið á dagskrá og hver er samanlagður kostnaður frá upphafi? Óskað er eftir sundurliðun kostnaðar hvers þáttar eftir árum þar sem fram komi verktakagreiðslur, greiðslur vegna leigubifreiða-, ferða- og dvalarkostnaðar og annar kostnaður RÚV.
     4.      Hverjar voru tekjur RÚV af tækjaleigu, notkun á húsnæði og eldra dagskrárefni RÚV við gerð þátta sem verktakar unnu að?
     5.      Hvað hefur viðgengist lengi að starfsmenn RÚV séu jafnframt verktakar og sparast launakostnaður þegar þeir sinna jafnframt verktöku?

         Vísað er til svara við 1. og 2. tölul. fyrirspurnarinnar.

     6.      Greiddi RÚV öðrum fjölmiðlum, starfsmönnum annarra fjölmiðla eða fyrirtækjum í þeirra eigu verktakagreiðslur á árunum 2017–2020? Ef svo er, í tengslum við hvaða verkefni voru þær greiðslur inntar af hendi?
    Samkvæmt upplýsingum frá Ríkisútvarpinu ohf. kaupir Ríkisútvarpið þjónustu af fjölmörgum verktökum ár hvert, m.a. í tengslum við dagskrárgerð sem og aðra þjónustu og starfsemi. Ríkisútvarpið safnar ekki upplýsingum um það hvort og þá fyrir hverja aðrir verktakar starfa í föstu starfi eða sem verktakar.

     7.      Hvert var heildarumfang greiðslna RÚV til sjálfstæðra verktaka á öðrum fjölmiðlum á árunum 2017–2020? Óskað er eftir sundurliðuðum upplýsingum um skiptingu heildarfjárhæðar í krónum.
    Líkt og fram kemur í svari við 6. tölul. fyrirspurnarinnar hefur Ríkisútvarpið ekki upplýsingar um það hvar verktakar sem starfa hjá Ríkisútvarpinu eru annars staðar í föstu starfi eða sem verktakar. Heildaryfirlit yfir kaup Ríkisútvarpsins af sjálfstæðum framleiðendum ár hvert, listað upp eftir verkefnum, aðilum og fjárhæðum, má m.a. sjá í árlegu mati fjölmiðlanefndar á almannaþjónustuhlutverki Ríkisútvarpsins og er að finna á vefsvæði fjölmiðlanefndar.

     8.      Eru fengnir fastir álitsgjafar reglulega í spjallþætti í morgunútvarpi og síðdegisútvarpi RÚV? Ef svo er, fá álitsgjafarnir greiðslu fyrir og hver er þá fjárhæð slíkrar greiðslu?
    Samkvæmt upplýsingum frá Ríkisútvarpinu ohf. fá álitsgjafar eða viðmælendur í þáttum í útvarpi eða sjónvarpi ekki greitt fyrir slík viðtöl og skiptir þá ekki máli hversu oft hlutaðeigandi er fenginn til viðtals. Fastir pistlahöfundar og gagnrýnendur, bæði í útvarpi og sjónvarpi, fá greitt fyrir störf sín sem verktakar og fara greiðslur eftir fjölda og umfangi þeirra verkefna sem um er að ræða hverju sinni.