Ferill 567. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
151. löggjafarþing 2020–2021.
Þingskjal 1102 — 567. mál.
Svar
dómsmálaráðherra við fyrirspurn frá Karli Gauta Hjaltasyni um útskrifaða nemendur úr diplómanámi í lögreglufræðum.
1. Hversu margir þeirra sem útskrifuðust úr diplómanámi í lögreglufræðum frá Háskólanum á Akureyri á árunum 2018 til og með 2020 voru við lögreglustörf 1. febrúar 2021? Hversu margir þeirra höfðu verið skipaðir og hversu margir ráðnir? Hjá hvaða lögregluembættum störfuðu þeir?
Alls hafa 142 nemendur brautskráðst frá Háskólanum á Akureyri úr diplómanámi í lög reglu fræðum fyrir verðandi lögreglumenn á árunum 2018 til 2020. Af þeim voru 129 starf andi þann 1. febrúar 2021 eða 91% útskrifaðra nemenda á tímabilinu. Af þeim 13 sem ekki voru starfandi voru átta í fæðingarorlofi, einn í launalausu leyfi, einn lánaður tímabundið til ann ars stjórnvalds og þrír voru ekki á launaskrá 1. febrúar þrátt fyrir að hafa verið starfandi hjá lögreglu síðastliðin ár. Ekki liggja fyrir upplýsingar um hvort lögreglumennirnir hafi verið skipaðir eða settir í embætti.
| Embætti | Fjöldi |
| Héraðssaksóknari | 1 |
| Lögreglustjórinn á Austurlandi | 1 |
| Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu | 74 |
| Lögreglustjórinn á Norðurlandi eystra | 16 |
| Lögreglustjórinn á Norðurlandi vestra | 2 |
| Lögreglustjórinn á Suðurlandi | 15 |
| Lögreglustjórinn á Suðurnesjum | 14 |
| Lögreglustjórinn í Vestmannaeyjum | 0 |
| Lögreglustjórinn á Vestfjörðum | 1 |
| Lögreglustjórinn á Vesturlandi | 4 |
| Ríkislögreglustjóri | 1 |
| Samtals | 129 |
2. Hvert er hlutfall kvenna í útskriftarárgöngunum þremur og hvert er hlutfall kvenna meðal þeirra útskriftarnema sem hafa verið skipaðir eða ráðnir miðað við 1. febrúar 2021?
Í heildina er hlutfall kvenna sem útskrifuðust á umræddu tímabili 51%. Hlutfall útskrifaðra lögreglukvenna við störf 1. febrúar 2021 var 49,6%. Starfsmenn í fæðingarorlofi teljast ekki með þegar tölur um starfandi lögreglumenn eru teknar út ár hvert, þann 1. febrúar. Af brautskráðum lögreglumönnum árin 2018–2020 voru 6 konur og 2 karlar í fæðingarorlofi þann 1. febrúar sl.
3. Hversu margir stunda nú nám til BA-prófs í lögreglu- og löggæslufræði við Háskólann á Akureyri og hversu margir hafa lokið náminu, sundurliðað eftir kyni?
Alls eru 90 nemendur nú skráðir í BA-nám í lögreglu- og löggæslufræði við Háskólann á Akureyri og þar af eru 39% þeirra konur og 61% karlar. Nú þegar hafa 33 nemendur brautskráðst með BA-próf, þar af 73% konur og 27% karlar.