Ferill 322. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
151. löggjafarþing 2020–2021.
Þingskjal 1109 — 322. mál.
Frumvarp til laga
um opinberan stuðning við nýsköpun.
(Eftir 2. umræðu, 24. mars.)
1. gr.
Markmið.
2. gr.
Stofnun einkahlutafélags.
Við stofnun félagsins skal allt hlutafé þess vera í eigu ríkissjóðs.
3. gr.
Tilgangur félagsins.
Félagið skal vera óhagnaðardrifið og ekki greiða út arð til hluthafa.
Félagið skal bjóða upp á tæknilega aðstöðu fyrir frumkvöðla og sprotafyrirtæki á sviði hátækni, verkfræði, raunvísinda og skyldra greina, þar á meðal aðgang að aðstöðu og sérhæfðum tækjabúnaði, m.a. búnaði til byggingarrannsókna.
Félagið skal veita viðskiptavinum ráðgjöf og þjónustu og vera heimilt að taka þátt í rannsóknarverkefnum ef við á.
Félagið skal hafa yfir að ráða sérhæfðu starfsfólki og vera heimilt að gera hvers konar samninga til að ná tilgangi sínum á sem hagkvæmastan hátt.
Tilgangi félagsins skal nánar lýst í samþykktum þess.
4. gr.
Forræði á hlutafé ríkisins.
5. gr.
Stofnhlutafé.
6. gr.
Stjórn félagsins.
Fjöldi varamanna skal ákveðinn í samþykktum félagsins.
7. gr.
Frávik frá lögum um einkahlutafélög.
Upplýsingalög gilda um starfsemi félagsins.
8. gr.
Samningar ríkisins við félagið.
9. gr.
Nýsköpunarstuðningur.
Ráðherra skal setja á fót stafræna nýsköpunargátt fyrir upplýsingagjöf um stuðning við nýsköpun og tryggja að ráðgjöf á fyrstu stigum nýsköpunarverkefna sé gjaldfrjáls og aðgengileg hvar sem er á landinu, m.a. leiðsögn við umsóknarferli innan stuðningsumhverfis nýsköpunar. Ráðherra skal í reglugerð kveða nánar á um framkvæmd ráðgjafar um nýsköpun.
Ráðherra skal veita sértæka styrki, Lóu – verkefnastyrki, til eflingar nýsköpun á landsbyggðinni. Hlutverk styrkjanna er að styðja við nýsköpun og frumkvöðlastarfsemi, verðmætasköpun og atvinnulíf sem byggist á hugviti og þekkingu, á forsendum svæðanna sjálfra. Lóu – verkefnastyrkjum skal úthlutað utan höfuðborgarsvæðisins, eins og það er skilgreint á gildandi byggðakorti ESA og leiðbeinandi reglum þar um. Styrkjum má einnig úthluta til verkefna sem stuðla að uppbyggingu vistkerfis fyrir nýsköpunarstarfsemi og frumkvöðlastarf. Ráðherra skal í reglugerð setja nánari ákvæði um framkvæmd styrkveitinga, fresti til að skila umsóknum um styrki, form og skilyrði umsókna og matsnefnd vegna styrkveitinga.
10. gr.
Gildistaka.
Við gildistöku laga þessara falla úr gildi lög um opinberan stuðning við tæknirannsóknir, nýsköpun og atvinnuþróun, nr. 75/2007.
11. gr.
Breytingar á öðrum lögum.
1. Lög um byggingarvörur, nr. 114/2014:
a. Orðin „Nýsköpunarmiðstöðvar Íslands eða annars“ í 2. mgr. 12. gr. laganna falla brott.
b. Orðin „Nýsköpunarmiðstöð Íslands“ í 14. gr. laganna falla brott.
2. Lög um vísitölu byggingarkostnaðar, nr. 42/1987: Í stað orðanna „í samráði við Nýsköpunarmiðstöð Íslands“ í 2. málsl. 1. gr. laganna kemur: skv. 3. gr.
3. Lög um mannvirki, nr. 160/2010:
a. Við 5. gr. laganna bætast tveir nýir töluliðir sem verða 8. og 14. tölul., svohljóðandi, og breytist röð annarra töluliða samkvæmt því:
8. að annast rannsóknir, kynningu, fræðslu og gagnasöfnun í tengslum við byggingar- og mannvirkjarannsóknir,
14. að annast umsýslu samkeppnissjóðs um byggingar- og mannvirkjarannsóknir, sbr. 54. gr. a.
b. Á eftir 54. gr. laganna kemur ný grein, 54. gr. a, ásamt fyrirsögn, svohljóðandi:
Samkeppnissjóður.
Hlutverk sjóðsins er að styrkja byggingarrannsóknir með áherslu á nýsköpun og samfélagslegar áskoranir á sviði mannvirkjagerðar hverju sinni.
Ráðherra er heimilt að setja nánari reglur um starfsemi sjóðsins í reglugerð, svo sem um úthlutunarreglur og fagráð.
c. Við 60. gr. laganna bætist nýr töluliður, svohljóðandi: Nánari reglur um starfsemi samkeppnissjóðs um byggingar- og mannvirkjarannsóknir.
Ákvæði til bráðabirgða.
I.
II.
III.
Um biðlaunarétt sem kann að fylgja störfum einstakra starfsmanna Nýsköpunarmiðstöðvar Íslands gilda ákvæði laga um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins.
Þegar starfsemi Nýsköpunarmiðstöðvar Íslands verður lögð niður, sbr. ákvæði til bráðabirgða I, fer um réttindi og skyldur starfsfólks Efnis-, líf- og orkutækni og Rannsóknastofu byggingariðnaðarins jafnframt eftir lögum um réttarstöðu starfsmanna við aðilaskipti að fyrirtækjum, nr. 72/2002, eftir því sem við á. Félag skv. 2. gr. skal bjóða öllu fastráðnu starfsfólki framangreindra deilda störf.
IV.
Ráðherra er heimilt að ákveða að félag skv. 1. mgr. taki við verkefnum og tækjum Efnis-, líf- og orkutækni, tækjabúnaði Rannsóknastofu byggingariðnaðarins og frumkvöðlastuðningi í hátækni eigi síðar en 1. júlí 2021. Félagið getur jafnframt fyrir þann tíma yfirtekið hlut Nýsköpunarmiðstöðvar Íslands í gildandi samningum sem og aðrar skuldbindingar vegna rannsóknarverkefna stofnunarinnar.
V.
Að öðru leyti færast eignir, réttindi og skyldur stofnunarinnar til ráðherra nýsköpunarmála við gildistöku laga þessara nema kveðið sé á um annað í lögum þessum.
VI.
VII.