Ferill 653. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


151. löggjafarþing 2020–2021.
Þingskjal 1122  —  653. mál.




Fyrirspurn


til forsætisráðherra um ráðgjafarþjónustu, verktöku og tímabundin verkefni.

Frá Gunnari Braga Sveinssyni.


     1.      Hver hefur verið kostnaður ráðuneytisins við hvers kyns ráðgjafarþjónustu frá 1. janúar 2018?
     2.      Af hvaða fyrirtækjum eða einstaklingum hefur ráðgjafarþjónusta verið keypt á tímabilinu, hvenær hófst þjónustan og hvenær lauk henni, ef henni er lokið? Hve mikið hefur hverjum aðila verið greitt?
     3.      Hve marga samninga hefur ráðuneytið gert um kaup á ráðgjöf, hvenær voru þeir gerðir, við hverja og til hve langs tíma?
     4.      Hvaða fyrirtæki eða einstaklingar hafa þegið verktakagreiðslur frá 1. janúar 2018?
     5.      Hvaða einstaklingar hafa verið ráðnir í tímabundin verkefni frá 1. janúar 2018? Hvaða verkefni voru þeir ráðnir í og hvaða verkefnum er lokið?


Skriflegt svar óskast.