Ferill 738. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
151. löggjafarþing 2020–2021.
Þingskjal 1233 — 738. mál.
Fyrirspurn
til samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra um lagningu bundins slitlags á umferðarlitla vegi.
Frá Líneik Önnu Sævarsdóttur.
1. Hvaða reglum þarf Vegagerðin að fylgja við vinnu að markmiði 2.1.6 í samgönguáætlun fyrir árin 2020–2034 um að unnið verði „að lagningu á bundnu slitlagi á umferðarlitla vegi sem hafa viðunandi burðarþol þrátt fyrir að veghönnun sé að einhverju leyti ábótavant“?
2. Hvaða verkefni hafa verið unnin í samræmi við þetta markmið?
3. Hvaða verkefni er áætlað að vinna í samræmi við þetta markmið á 1. tímabili samgönguáætlunar?
4. Telur ráðherra að skýra þurfi reglur (verklagsreglur, viðmið eða staðla) til að tryggja framkvæmdir í samræmi við þetta markmið?
Skriflegt svar óskast.