Ferill 565. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
151. löggjafarþing 2020–2021.
Þingskjal 1286 — 565. mál.
Svar
umhverfis- og auðlindaráðherra við fyrirspurn frá Karli Gauta Hjaltasyni um flokkun úrgangs sem er fluttur úr landi.
Hver er flokkun úrgangs sem árlega er fluttur úr landi samkvæmt svari ráðherra á þskj. 583 á yfirstandandi þingi, sundurliðað eftir tegund úrgangs, þ.e. blandaður úrgangur, plast, pappír, málmar, spilliefni og aðrir flokkar úrgangs sem kunna að eiga við?
Árlegur útflutningur á úrgangi tímabilið 2017–2019 var samkvæmt upplýsingum frá Skattinum og Umhverfisstofnun eftirfarandi (námundaðar tölur):
| Ártal | Magn (tonn) |
| 2017 | 119.741 |
| 2018 | 121.621 |
| 2019 | 125.075 |
Úrgangur sem fluttur var úr landi tímabilið 2017–2019 flokkast með eftirfarandi hætti (námundaðar tölur):
| Magn (tonn) | |||
| Tegundir úrgangs | 2017 | 2018 | 2019 |
| Úrgangsefni kemísks og skylds iðnaðar | 2.534 | 0 | 2.475 |
| Plastúrgangur | 6.839 | 9.099 | 10.136 |
| Úrgangur úr gúmmíi | 0 | 1.541 | 478 |
| Úrgangur úr harðgúmmíi | 0 | 271 | 0 |
| Endurheimtur pappír eða pappi | 29.984 | 28.099 | 25.856 |
| Úrgangur úr góðmálmum | 0 | 0 | 11 |
| Járnúrgangur | 72.389 | 75.339 | 69.704 |
| Koparúrgangur | 473 | 368 | 335 |
| Nikkelúrgangur | 0 | 1 | 0 |
| Álúrgangur | 5.689 | 4.783 | 10.385 |
| Blýúrgangur | 64 | 56 | 52 |
| Sinkúrgangur | 51 | 69 | 23 |
| Rafhlöður og rafgeymar | 1.717 | 1.996 | 2.602 |
| Blandaður heimilisúrgangur | 0 | 0 | 3.017 |
| Samtals | 119.741 | 121.621 | 125.075 |
Við úrvinnslu fyrirspurnarinnar uppgötvaðist varðandi svar ráðherra sem vísað er til í fyrirspurninni, sbr. þskj. 583 á yfirstandandi þingi, að í töflu í svari við fyrstu spurningu af þremur er magn úrgangs sem flutt var út birt í kílógrömmum en samkvæmt yfirskrift töflunnar má ætla að magnið sé talið í tonnum. Þá tóku upplýsingar úr tollakerfi Skattsins, sem svarið byggist á, ekki til tollskrárnúmers sem blandaður heimilisúrgangur er jafnan skráður á við útflutning. Þetta leiddi til þess að í svarið vantar 3.017 tonn af heimilisúrgangi sem flutt voru til Hollands árið 2019. Til leiðréttingar á þessu hefur umrædd tafla úr fyrra svari verið uppfærð og er hún sett fram sem hluti þessa svars.